Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir vinnumálastofnunar

13.12.2004

Ráðstefna um minnkandi atvinnuþátttöku í ESB

Dagana 25. og 26. nóvember var haldin ráðstefna í Hollandi um vandamál sem verða vegna minnkandi atvinnuþátttöku í Evrópuríkjunum næstu árin, m.a. vegna breyttrar aldurssamsetningar. Var sjónum beint að atvinnuleysi ungs fólks, lítilli atvinnuþátttöku eldra fólks á vinnumarkaði, langtímaatvinnulausum og innflytjendum á vinnumarkaði, með tilliti til hvernig auka mætti vinnuframboð þessara hópa.

10.12.2004

Atvinnuleysi 2,6% í nóvember

Í nóvembermánuði síðastliðnum voru skráðir 85.377 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.885 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.  Þessar tölur jafngilda 2,6% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í nóvember 2004.  Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í nóvember 2004 er 148.557.

7.12.2004

Skýrsla um úrræði 2003

Út er komin skýrsla um úrræði svæðisvinnumiðlana fyrir atvinnuleitendur.  Þar kemur m.a. fram að mikil fjölgun hefur orðið á þátttakendum í úrræðum en fjöldi þeirra ríflega tvöfaldaðist milli áranna 2002 og 2003.  Ennfremur að af þeim atvinnuleitendum sem ljúka þátttöku í úrræði eru 38% ekki á atvinnuleysisskrá þremur mánuðum síðar sem gefur ákveðna vísbendingu um árangur úrræða.

30.11.2004

Skýrsla um mannaflaþörf og útgáfu atvinnuleyfa

Í nýútkominni skýrslu Vinnumálastofnunar um mannaflaþörf kemur fram að gera má ráð fyrir að gefa þurfi út milli 1.300 og 1.800 atvinnuleyfi næstu 3 ár vegna þeirra framkvæmda sem þegar eru hafnar við uppbyggingu virkjana og stóriðju, flest strax á næsta ári. Bygging álvers á Reyðarfirði og tengdar framkvæmdir eru þar fyrirferðarmestar, ástamt stækkun álvers Norðuráls, bygging virkjana á Hellisheiði og á Reykjanesi og bygging Kárahnjúkavirkjunar og tengdra framkvæmda.

30.11.2004

Gríðarleg fjölgun gjaldþrota og ábyrgðarleysi stjórnenda skýrir útgjaldaaukningu hjá Ábyrgðarsjóði launa

Vinnumálastofnun og stjórn Ábyrgðarsjóðs launa hafa nýverið látið taka saman lögfræðilega álitsgerð um hina miklu aukningu sem hefur orðið á síðustu árum á greiðslum úr Ábyrgðasjóði launa og hvað skýrir hana. Greiðslur úr sjóðnum hafa tvöfaldast frá árinu 2001 til 2002 og 2003 og stefnir í enn meiri aukningu á þessu ári.

Í álitsgerðinni er komist að þeirri niðurstöðu að meginorsök útgjaldaaukningarinnar er gríðarleg fjölgun gjaldþrotaskipta á búum fyrirtækja og fleiri stærri gjaldþrot en áður hefur verið. Ábyrgð stjórnenda fyrirtækja vegur einnig þungt, því bú eru í mörgum tilfellum að koma alltof seint til skipta  og mikill meirihluti þrotabúa er eignalaus, þannig að lítið sem ekkert fæst upp í kröfur. Er það m.a. vegna  ákveðinna flöskuhálsa varðandi framkvæmd fjárnáma, en Sýslumannsembættið í Reykjavík sætir talsverðri gagnrýni fyrir mikinn seinagang í afgreiðslu fjárnámsbeiðna. Oft á tíðum eru fyrirtæki farin á kennitöluflakk og búin skjóta undan eignum. Í álitinu er einnig komist að þeirri niðurstöðu að breytt viðskiptaumhverfi þar sem lánastofnanir eiga nú orðið svokölluð allsherjarveð í öllum eigum fyrirtækja eigi sinn þátt í að lítið fæst greitt upp í kröfur annarra kröfuhafa.

19.11.2004

ISS Ísland og Landsvirkjun hlutu „Lóð á vogarskálina“

Viðurkenningin Lóð á vogarskálina var veitt öðru sinni á ráðstefnu Hollvina hins gullna jafnvægis miðvikudaginn 17. nóvember sl. fyrir framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki.  Viðurkenninguna hlutu Landsvirkjun úr flokki opinberra stofnana og fyrirtækja í opinberri eigu og ISS Ísland úr flokki fyrirtækja á almennum markaði.

12.11.2004

Atvinnuleysi 2,7% í október

Í októbermánuði síðastliðnum voru skráðir 81.459 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.880 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.  Þessar tölur jafngilda 2,7% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í október 2004.  Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í október 2004 er 145.628.

12.10.2004

Atvinnuleysi 2,6% í september

Í septembermánuði síðastliðnum voru skráðir 85.538 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.891 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.  Þessar tölur jafngilda 2,6% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í september 2004.
Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í september 2004 er 147.411.

5.10.2004

Ráðstefna Eures um stórframkvæmdir

Í síðustu viku stóð EES-vinnumiðlun á Íslandi (EURES) fyrir ráðstefnu á Egilsstöðum með yfirskriftinni Major Projects and Derived Labour Market Shortages.  Tilgangur ráðstefnunnar var fyrst og fremst sá að stuðla að auknum hlut EES-vinnumiðlunar í að útvega starfsfólk til stórframkvæmdanna á Austurlandi.  Þátttakendur á ráðstefnunni voru hátt í 40, þar af 16 erlendir EES vinnumiðlarar og fór hún því öll fram á ensku.

28.9.2004

Ársfundur Vinnumálastofnunar -erindi og fréttir

Ársfundur Vinnumálastofnunar var haldinn að Engjateigi 11 föstudaginn 24. september síðast liðinn, frá kl. 14 til 16.

Mikill áhugi var á fundinum og aðsókn góð, enda á dagskrá áhugaverð erindi um íslenskan vinnumarkað. Fundinn sátu hann um 80 manns víða að úr þjóðfélaginu og er ljóst að atvinnumál eru fólki ofarlega í huga.

27.9.2004

Ráðstefna um aðlögunarhæfni á evrópskum vinnumarkaði

Þann 21. september var í Brussel haldin ráðstefna / seminar um aðlögunarhæfni (adaptability) á evrópskum vinnumarkaði með tilliti til samkeppnishæfni á alþjóðamarkaði og viðbragða við örum þjóðfélags- og tæknibreytingum.

15.9.2004

Ársfundur Vinnumálastofnunar 24. september nk.

Ársfundur Vinnumálastofnunar verður haldinn í Kiwanishúsinu  2. hæð, Engjateigi 11, Reykjavík, föstudaginn 24. september nk. 

Fundurinn stendur frá kl. 14:00 – 16:00. 

Öllum er frjáls aðgangur að fundinum.

10.9.2004

Atvinnuleysi í ágústmánuði 2004

Í ágústmánuði síðastliðnum voru skráðir 98.011 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.452 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.  Þessar tölur jafngilda 2,9% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í ágúst 2004.
Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í ágúst 2004 er 153.865.

6.9.2004

Vika símenntunar: Ekki bara hugsa um það!

Vika símenntunar verður haldin dagana 12.-18. september nk. en hún er nú haldin í fimmta sinn hér á landi.  Að þessu sinni er athyglinni beint að ungu fólki undir slagorðinu EKKI BARA HUGSA UM ÞAÐ!  Nánari upplýsingar um vikuna er að vinna á vefsíðu vikunnar http://www.mennt.net/simenntun/

31.8.2004

Vinna við greiðslur til fiskvinnslustöðva flutt til Blönduóss 1. september 2004

Ákveðið hefur verið að vinna við greiðslur til fiskvinnslustöðva vegna kauptryggingar fiskvinnslufólks flytji frá Vinnumálastofnun til Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands vestra, Þverbraut 1, 540 Blönduós frá og með 1. september 2004.

 

13.8.2004

Atvinnuleysi í júlímánuði 2004

Í júlímánuði síðastliðnum voru skráðir 103.648 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.712 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 3% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í júlí 2004.
Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í júlí 2004 var 156.500.

13.7.2004

Atvinnuleysi í júnímánuði 2004

Í júnímánuði síðastliðnum voru skráðir 107.279 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.877 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.  Þessar tölur jafngilda 3,1% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í júní 2004.  Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í júní 2004 var 157.875.

11.6.2004

Atvinnuleysi í maímánuði 2004

Í maímánuði síðastliðnum voru skráðir 102.875 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.900 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 3,3% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í maí 2004. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í maí 2004 var 147.620.

9.6.2004

Þjónustu vinnumiðlunarkerfisins á völdum svæðum á Norðurlöndum

Á árinu 2003 unnu Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri og Háskólanum í Færeyjum rannsóknaverkefni sem var fjármagnað af Norrænu ráðherranefndinni og laut yfirstjórn Vinnumálastofnunar á Íslandi. Meginmarkmið verkefnisins var að gefa innsýn í þá aðferðafræði sem notuð hefur verið við uppbyggingu vinnumarkaðsþjónustu á völdum svæðum á Norðurlöndunum. Á Íslandi var sjónum beint að Norðurlandi eystra með áherslu á tvö sveitarfélög, Húsavíkurbæ og Skútustaðahrepp.

2.6.2004

Forgangur til atvinnuleyfa

Samkvæmt viðauka B við aðildarsamning EES, er núverandi aðildarríkjum gert að veita launamönnum sem eru ríkisborgarar hinna nýju aðildarríkja sem gengu til liðs við Evrópusambandið og þar með evrópska efnahagssvæðið EES 1. maí sl. forgang fram yfir ríkisborgara þriðju ríkja að því er varðar aðgengi að vinnumarkaði sínum á því tímabili sem innlendum ráðstöfunum er beitt.

2.6.2004

Heimsókn á Kárahnjúkasvæðið

Stjórn Vinnumálastofnunar og forstöðumenn svæðisvinnumiðlana ásamt forstjóra og sviðsstjórum á Vinnumálastofnun heimsóttu fyrir skömmu Kárahnjúkasvæðið og áttu fund með talsmönnum Impregilo um starfsmannahald og ráðningarmál.

25.5.2004

Ánægja með þjónustu EES-vinnumiðlunar

Í þjónustukönnun sem Félagsvísindastofnun vann fyrir Vinnumálastofnun á þjónustu EES vinnumiðlunar og náði til allra vinnuveitenda sem leitað höfðu eftir þjónustu hennar, kom fram að almenn ánægja ríkir með þjónustuna.

Meðal helstu niðurstaðna er að flestir réðu 1-4 starfsmenn (í allt 182 ráðningar), flestir voru annað hvort mjög eða frekar ánægðir með þá sem þeir réðu, hjá 47% svarenda tók viku eða minna að fá niðurstöðu af beiðni um útvegun starfsfólks, 89% voru mjög eða frekar ánægðir með þjónustu EES vinnummiðlunar og yfir 90% vinnuveitenda töldu mjög eða frekar líklegt að þeir myndu leita aftur til EES vinnumiðlunar.

21.5.2004

Úthlutun styrkja vegna atvinnumála kvenna

Úthlutað hefur verið 44 styrkjum vegna atvinnumála kvenna, samtals að upphæð 20 milljónum króna. Verkefnin eru af ýmsum toga, en alls bárust 178 umsóknir.

17.5.2004

Atvinnuleysisbætur hækka um 11,3% frá 1. mars 2004.

Laugardaginn 15. maí 2004 var samþykkt frumvarp félagsmálaráðherra um hækkun atvinnuleysisbóta sem lög frá Alþingi.
Skv. lögunum hækka atvinnuleysisbætur um 11,3% frá 1. mars 2004.
Dagpeningar bótaþega sem er með fullar bætur hækka úr kr. 3.681.- í kr  4.096.-
Fullar atvinnuleysisbætur á mánuði hækka úr kr. 79.767.- í kr. 88.760.-
Greiðslur vegna hækkunar bótanna verður greidd bótaþegum innan tveggja vikna.
Í athugasemdum með lagafrumvarpinu kemur einnig m.a. fram hvaða hækkanir atvinnuleysisbóta eru áætlaðar á næstu árum.

Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að atvinnuleysisbætur hækki um 3% 1. janúar 2005, 2,5% 1. janúar 2006 og um 2,25% 1. janúar 2007.

14.5.2004

Atvinnuleysi í aprílmánuði 2004

Í aprílmánuði síðastliðnum voru skráðir 107.855 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.904 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 3,5% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í apríl 2004. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í apríl 2004 var 142.104.

13.5.2004

Kynning á úthlutunum úr starfsmenntasjóði

Á blaðamannafundi í Árbæjarsafninu í dag kynnti Árni Magnússon félagsmálaráðherra úthlutun styrkja úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins til starfsmenntunar í atvinnulífinu en alls var rúmum 55 milljónum króna úthlutað til 55 verkefna.  Meðal þeirra sem hlutu styrk voru SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu sem fengu kr. 2,5 milljónir til námsbrautar fyrir verslunarfólk.  Með námsbrautinni er verið að bæta úr mjög brýnni þörf fyrir starfstengt nám í einni fjölmennustu starfsgrein á landinu.

12.5.2004

Fundur um atvinnuleysistryggingamál

Föstudaginn 7. maí var haldinn fundur um atvinnuleysistryggingamál, ætlaður formönnum og starfsmönnum úthlutunarnefnda og starfsfólki Vinnumálastofnunar og svæðisvinnumiðlana sem hafa með atvinnuleysistryggingamál að gera.

23.4.2004

Úthlutun úr starfsmenntasjóði

Starfsmenntaráð hefur lokið úthlutun úr starfsmenntasjóði en alls fengu 45 aðilar úthlutað samtals kr. 55.375.000 til 55 verkefna. Sjá nánar.

16.4.2004

Atvinnuleysi í marsmánuði 2004

Í marsmánuði síðastliðnum voru skráðir 114.789 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.991 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 3,5% af áætlun Efnahagsskrifstofu  fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í mars 2004. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í mars 2004 var 141.457.

2.4.2004

Skýrsla um stöðu og horfur á vinnumarkaði

Stjórn Vinnumálastofnunar hefur lagt fyrir félagsmálaráðherra skýrslu sem inniheldur upplýsingar um stöður og horfur á vinnumarkaði, yfirlit um vinnumarkaðsaðgerðir og tillögur um vinnumarkaðsúrræði á árinu 2004.

2.4.2004

Útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs árið 2003

Heildarútgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs á árinu 2003 námu 4.640 milljónum króna, þar af fóru 3.944 milljónir til greiðslu atvinnuleysisbóta og til kauptryggingar fiskvinnslufólks. Heildarútgjöld sjóðsins árið 2002 voru 3.387 milljónir.

23.3.2004

Ráðstefna EES-vinnumiðlunar

EES-vinnumiðlun (EURES) á Íslandi stóð fyrir ráðstefnu föstudaginn 19. mars sl. fyrir þá starfsmenn Vinnumálastofnunar og svæðisvinnumiðlana sem tengjast starfi EES-vinnumiðlunar.  Tilgangur ráðstefnunnar var m.a. að stuðla að auknu samstarfi á sviði vinnumála við nokkur nágrannaríki okkar og heyra viðhorf og væntingar Pólverja til inngöngu í ESB.

22.3.2004

Tölur Vinnumálastofnunar um atvinnuleysi

 

 

Í fréttaviðtölum í Morgunblaðinu og ríkisútvarpinu nú um helgina kom fram að í þeim tölum sem Vinnumálastofnun birtir yfir atvinnuleysi fælist vanmat á raunverulegu atvinnuleysi í landinu.

Vegna vanþekkingar sem í þessum sjónarmiðum felst er  nauðsynlegt að útskýra þær tölur sem Vinnumálastofnun birtir mánaðarlega.  

12.3.2004

Atvinnuleysi í febrúarmánuði 2004

Í febrúarmánuði síðastliðnum voru skráðir 101.921 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 5.097 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.  Þessar tölur jafngilda 3,6% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í febrúar 2004.  Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í febrúar 2004 var 140.215.

13.2.2004

Atvinnuleysi í janúarmánuði 2004

Í janúarmánuði síðastliðnum voru skráðir 111.880 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 5.088 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 3,7% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði íjanúar 2004. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í janúar 2004 var 138.825.

6.2.2004

Útþrá enn á ný !

ÚTÞRÁ ENN Á NÝ!

Kynning á námi, leik og starfi erlendis
fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára.

 

Föstudaginn 20. febrúar n.k. býðst ungu fólki á aldrinum 15-25 ára að kynna sér þau fjölbreyttu tækifæri sem þeim standa til boða varðandi nám, leik og starf erlendis. Kynningin fer fram í Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-5, og stendur frá kl. 16:00 til 18:00.

3.2.2004

Umsókn um styrk vegna starfsmenntunar 2004

Styrkir vegna starfsmenntunar 2004

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu. Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi.

2.2.2004

Umsókn um styrk vegna atvinnumála kvenna

Árið 2004 er fjárveiting styrkja til atvinnumála kvenna kr. 20 milljónir

Tilgangur styrkveitinga er einkum:

  • Vinnumarkaðsaðgerðir til að draga úr atvinnuleysi meðal kvenna
  • Viðhalda byggð um landið
  • Auðvelda aðgang kvenna að fjármagni
  • Auka fjölbreytni í atvinnulífi

Hluta fjárins verður varið í verkefni á svæðum þar sem atvinnulíf er einhæft og hlutfall atvinnuleysis hátt. Ekki verða gerðar eins strangar kröfur um arðsemi þeirra verkefna en engu að síður miðað við að styrkurinn sé ekki félagslegt úrræði heldur um raunverulega atvinnusköpun að ræða. Allt að 15-20 bestu verkefnin valin úr eftir ákveðnum forsendum og þeim veittur hærri styrkur. Allar konur hvaðanæva af landinu geta sótt um styrk.

27.1.2004

Fjárhæð vasapeninga til útlendinga sem ráðnir eru í vist á íslensku heimili

Vinnumálastofnun hefur ákveðið að fjárhæð vasapeninga til þeirra útlendinga sem eru ráðnir í vist á íslensku heimili (au-pair ráðning) skuli ekki vera lægri en kr. 37.910 á mánuði á árinu 2004.

22.1.2004

Opinn fundur starfsmenntaráðs

Hinn árlegi opni fundur Starfsmenntaráðs verður haldinn þriðjudaginn 3. febrúar kl. 12:00 á Litlu-Brekku, Bankastræti 2 í Reykjavík (bak við Lækjarbrekku).

16.1.2004

Atvinnuleysi í desembermánuði 2003

Í desembermánuði síðastliðnum voru skráðir 108.790 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.728 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 3,1% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði
í desember 2003. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í desember 2003 var 150.846.

12.1.2004

Atvinnuleysistölur birtar á ákveðnum degi kl. 12:00

Nú frá áramótum mun Vinnumálastofnun birta skýrslu sína um atvinnuástand sl. mánuð á ákveðnum degi kl. 12:00 á hádegi.  Birtingaráætlun fyrir nýhafið ár er að finna á heimasíðunni undir liðnum um útgefið efni og talnaefni. 

5.1.2004

Atvinnuleysisbætur hækka um 3%

Árni Magnússon félagsmálaráðherra hefur að fengnu samþykki ríkisstjórnarinnar ákveðið að hækka atvinnuleysisbætur um 3% frá 1. janúar 2004.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu