Fréttir vinnumálastofnunar
13.12.2005
Atvinnuleysi 1,5% í nóvember 2005
Í nóvembermánuði síðastliðnum voru skráðir 49.348 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.247 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.
Þessar tölur jafngilda 1,5% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í nóvember 2005 er 152.120.
1.12.2005
Eingreiðsla til atvinnulausra greidd út fyrir 15. desember
Á ríkisstjórnarfundi þann 18. nóvember var ákveðið að atvinnulausir skyldu fá eingreiðslu að upphæð kr. 26.000 líkt og SA og ASÍ sömdu um að greidd skyldi félögum í aðildarfélögum ASÍ. Verður uppbótin greidd út á næstu dögum og eigi síðar en 15. desember n.k.
23.11.2005
Skýrsla nefndar um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir
22.11.2005
Skýrsla um konur og stoðkerfi atvinnulífsins
Nýlega kom út skýrsla sem unnin er af Byggðastofnun um konur og stoðkerfi atvinnulífsins. Þar er m.a. fjallað um sjóð félagsmálaráðuneytisins sem veitir styrki til atvinnumála kvenna og um lánatryggingasjóð kvenna, en Vinnumálastofnun fer með umsýslu með þessum sjóðum.
22.11.2005
Upplýsingar um veitt atvinnuleyfi
Upplýsingar um veitt atvinnuleyfi eftir tegund og ríkisfangi er að finna á íslensku og ensku á vef Vinnumálastofnunar. Upplýsingarnar eru uppfærðara mánaðarlega.
11.11.2005
Atvinnuleysi 1,4% í október 2005
Í októbermánuði síðastliðnum voru skráðir 46.025 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.193 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 1,4% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í október 2005 er 152.120.
13.10.2005
Atvinnuleysi 1.4% í september 2005
Í septembermánuði síðastliðnum voru skráðir 49.897 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.267 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 1,4% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í september 2005 er 156.683.
4.10.2005
Ráðstefna EES-vinnumiðlunar
Síðastliðinn föstudag stóð EES-vinnumiðlun á Íslandi (EURES) fyrir ráðstefnu á Selfossi um stórframkvæmdir á suðvesturhorni landsins með það að markmiði að auka samstarf við ýmis ríki Evrópusambandsins á sviði vinnumiðlunar.
4.10.2005
Ársfundur Vinnumálastofnunar 2005
Ársfundur Vinnumálastofnunar var haldinn fimmtudaginn 29. september á Kaffi Reykjavík.
23.9.2005
Þjónustusamningur við Fjölsmiðjuna
Þann 21. september s.l. undirritaði Vinnumálastofnun með staðfestingu félagsmálaráðuneytisins þjónustusamning við Fjölsmiðjuna. Samningurinn tekur til greiðslna Vinnumálastofnunar vegna þjónustu Fjölsmiðjunnar við atvinnulausa einstaklinga sem eru á aldrinum 16-24 ára og hafa rétt til bóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði og fá greiddar atvinnuleysisbætur. Samningurinn tekur til þeirra einstaklinga sem eru sendir af Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins eða öðrum svæðisvinnumiðlunum á vegum Vinnumálastofnunar.
13.9.2005
Atvinnuleysi 1,8% í ágústmánuði 2005
Í ágústmánuði síðastliðnum voru skráðir 65.550 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.851 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 1,8% atvinnuleysi. Atvinnleysi minnkar úr 2% í júlí og hefur ekki verið lægra í einstökum mánuði síðan í nóvember 2001. Gera má ráð fyrir að atvinnuleysi í september minnki enn og geti farið niður í allt að 1,6% og hefur þá ekki verið lægra á þessum árstíma síðan á árunum 1999 til 2001.
8.9.2005
Breytt verklag við útgáfu atvinnuleyfa
Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun hafa ákveðið í samráði við ráðuneyti dómsmála og félagsmála að breyta verklagi við afgreiðslu umsókna frá ríkisborgurum hinna 8 nýju ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu, þ.e. Póllands, Tékklands, Ungverjalands, Slóvenínu, Slóvakíu, Eistlands, Lettlands og Litháen.
12.8.2005
Atvinnuleysi 2% í júlímánuði 2005
Í júlímánuði síðastliðnum voru skráðir 65.837 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem
jafngilda því að 3.135 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.
Þessar tölur jafngilda 2% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í júlí 2005 er 156.683.
Meðalfjöldi atvinnulausra var 3,3% minni í júlí en í júní sl. eða að meðaltali 107 færri en í júní og 1.577 færri en í júlí árið 2004 sem er um 33% fækkun frá júlí 2004. Fækkunin ermun meiri meðal karla en kvenna.
12.7.2005
Atvinnuleysi 2,1% í júnímánuði 2005
22.6.2005
Athugasemd við yfirlýsingu Eflingar-stéttarfélags frá 21. júní 2005
Að gefnu tilefni vill Vinnumálastofnun koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum við yfirlýsingu Eflingar-stéttarfélags sem send var fjölmiðlum í gær og lýtur að vinnubrögðum stofnunarinnar við útgáfu atvinnuleyfa til útlendinga.
13.6.2005
Atvinnuleysi 2,2% í maímánuði 2005
Í maímánuði síðastliðnum voru skráðir rúmlega 73.300 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.332 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,2% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í maí 2005 er 153.641.
2.6.2005
Úthlutun styrkja vegna atvinnumála kvenna
Lokið er úthlutun styrkveitinga til atvinnumála kvenna á fyrrihluta árs 2005. Frá árinu 1991 hefur sérstöku fjármagni verið veitt til eflingar atvinnumála kvenna og hefur Vinnumálastofnun annast umsýslu þess fyrir hönd félagsmálaráðuneytis. Umsjón þessa verkefnis hefur nú nýverið færst til Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands vestra. Megin tilgangur með styrkveitingunni er að auðvelda aðgengi kvenna að fjármagni, draga úr atvinnuleysi meðal kvenna og auka fjölbreytni í atvinnulífinu ásamt því að viðahalda byggð um landið og fjölga atvinnutækifærum á landsbyggðinni
30.5.2005
Verkfærakista ráðgjafans-handbók fyrir starfs- og námsráðgjafa
Handbókin, Verkfærakista ráðgjafans, fyrir starfs- og námsráðgjafa er komin út. Um er að ræða níu verkfæri fyrir ráðgjafa til að nýta í viðtölum við ráðþega. Aðferðirnar eru óhefðbundnar og er einkenni þeirra að þær virka hvetjandi bæði á ráðþega og ráðagjafa. Verkefnin eru fjölbreytt og nýta má þau hvert með öðru og styrkja þannig ferlið i viðtalinu. Tilgangurinn með þessari útgáfu er að fjölga verkfærum ráðgjafa í starfi með ráðþegum.
13.5.2005
Atvinnuleysi 2,3% í aprílmánuði 2005
Í aprílmánuði síðastliðnum voru skráðir rúmlega 74.200 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.542 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,3% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í apríl 2005 er 153.641. Atvinnuleysi í apríl hefur ekki mælst jafn lítið síðan í apríl 2001 en þá mældist það 1,6%. Meðalfjöldi atvinnulausra var tæplega 7% minni í apríl en í mars sl. eða að meðaltali 257 færri en í mars og 1362 færri en í apríl árið 2004 sem er um 28% fækkun frá apríl 2004
2.5.2005
Skýrsla um stöðu og horfur á vinnumarkaði
12.4.2005
Atvinnuleysi 2,6% í mars 2005
Í marsmánuði síðastliðnum voru skráðir 87.300 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem
jafngilda því að 3.799 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.
Þessar tölur jafngilda 2,6% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í mars 2005 er 146.035.
Meðalfjöldi atvinnulausra var 8,6% minni í mars en í febrúar sl. eða að meðaltali 356 færri en í febrúar og 1192 færri en í mars árið 2004.
11.3.2005
Atvinnuleysi 2,8% í febrúar 2005
Í febrúarmánuði síðastliðnum voru skráðir 83.077 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.155 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,8% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í febrúar 2005 er 146.035. Meðalfjöldi atvinnulausra var 4,5% minni í febrúar en í janúar s.l. eða að meðaltali 197 færri en í janúar og 942 færri en í febrúar árið 2004.
21.2.2005
Styrkir til atvinnumála kvenna
Árið 2005 er fjárveiting styrkja til atvinnumála kvenna kr 25 milljónir.
Tilgangur styrkveitinga er einkum:
- Vinnumarkaðsaðgerðir til að draga úr atvinnuleysi meðal kvenna
- Efla atvinnulíf í dreifbýli og auka fjölbreytni í atvinnulífi
- Auðvelda aðgang kvenna að fjármagni
Allar konur hvaðanæva af landinu geta sótt um styrk.
Sérstök áhersla er á verkefni frá fyrirtækjum og einstaklingum sem hyggja á samstarf (klasaverkefni) í þeim tilgangi til að bæta rekstrarskilyrði. Í umsókn verður að koma fram ávinningur af slíku samstarfi.
11.2.2005
Atvinnuleysi 3% í janúar 2005
Í janúarmánuði síðastliðnum voru skráðir 91.369 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.352 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 3% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í janúar 2005. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í janúar 2005 er 146.035.
8.2.2005
Styrkir vegna starfsmenntunar 2005
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu. Til úthlutunar eru 55 milljónir. Vinnumálastofnun mun þann 26. janúar hefja að nýju venjubundna afgreiðslu og útgáfu atvinnuleyfa. Vinnumálastofnun sem fer með framkvæmd laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga í umboði félagsmálaráðuneytisins, tók þá ákvörðun að takmarka útgáfu atvinnuleyfanna um tíma, í ljósi þess að ráðuneytinu barst þ. 10. janúar sl. greinargerð frá Alþýðusambandi Íslands um atvinnuleyfisumsóknir ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo vegna stórra hópa sk. þriðju ríkis borgara og um stefnu stjórnvalda varðandi veitingu atvinnuleyfa og málefni vinnumarkaðarins. Þótti stofnuninni eðlilegt að ráðuneytinu gæfist ráðrúm til að yfirfara og gaumgæfa þær athugasemdir sem í greinargerðinni komu fram. Viðbrögð ráðuneytisins liggja nú fyrir m.a. með útgáfu reglugerðar með lögunum nú á næstu dögum og útgáfa hennar mun án vafa styrkja alla framkvæmda laganna. Þá hafa önnur ráðuneyti einnig brugðist við athugasemdunum með ýmsum hætti. Þann 17. janúar s.l. kynnti félagsmálaráðherra niðurstöður nefndar sem kannaði stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Nefndin er sammála um að aðgerða er þörf og leggur til að stjórnvöld hefji nú þegar sérstakt fimm ára verkefni til að styrkja stöðu þessa hóps á vinnumarkaði. Í nýrri skýrslu sem unnin var af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir Fjölmenningarsetur á Ísafirði koma fram ýmsar mikilsverðar upplýsingar um viðhorf og aðstæður innflytjenda á Austurlandi og Vestfjörðum. Skýrslan byggir á könnun sem gerð var meðal innflytjenda á þessum landsvæðum og nær yfir fjölskylduaðstæður þeirra, réttarstöðu, tungumálakunnáttu, þátttöku í félagsstarfi, nýtingu á þjónustu, atvinnumál og fleira. Í desembermánuði síðastliðnum voru skráðir 94.060 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.088 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 2,7% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í desember 2004. Áætlaður mannafli á vinnumarkaði í desember 2004 er 152.204. Þann 1. janúar 2005 hækkuðu atvinnuleysisbætur um 3% og hækkuðu dagpeningar bótaþega sem er með fullar bætur úr kr. 4.096.- í kr. 4.219.- Fullar atvinnuleysisbætur á mánuði hækka þar með úr kr. 88.760.- í kr. 91.426.- Hér má sjá dagpeningaskrá sem gildir frá 1. janúar 2005.
25.1.2005
Fréttatilkynning vegna útgáfu atvinnuleyfa
21.1.2005
Staða miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði
18.1.2005
Könnun á viðhorfum og aðstæðum innflytjenda á Austurlandi og Vestfjörðum
17.1.2005
Atvinnuleysi 2,7% í desember 2004
5.1.2005
Atvinnuleysisbætur hækkuðu um 3% þann 1. janúar
Leit




English

