Fréttir vinnumálastofnunar
30.12.2008
Skýrsla um horfur á vinnumarkađi
22.12.2008
EURES og ţjónusta viđ útlendinga flytur í Borgartún 7B
Til að bregðast við auknu álagi á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar að Engjateigi 11 og bæta þjónustu stofnunarinnar, mun Vinnumálastofnun þann 2. janúar n.k. opna til viðbótar aðra þjónustuskrifstofu að Borgarnúni 7B.
Þar verður EURES, evrópska vinnumiðlunin til staðar og þar með öll þjónusta við atvinnuleitendur og atvinnuleysisbótaþega sem ekki tala íslensku. Einnig er þar veitt öll almenn ráðgjöf vegna atvinnuleitar erlendis.
22.12.2008
Takmarkanir á frjálsum atvinnu- og búseturétti ríkisborgara frá Rúmeníu og Búlgaríu framlengdur til ársins 2012
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framlengja heimild er setur skorður á frjálsa för ríkisborgara frá Rúmeníu og Búlgaríu til atvinnuþátttöku hér á landi til ársins 2012. Atvinnuþátttaka þeirra á íslenskum vinnumarkaði verður því áfram háð dvalar- og atvinnuleyfum.
10.12.2008
Atvinnuleysi 3,3% í nóvember
3.12.2008
Upplýsingar um nám, námskeiđ og endurmenntun
2.12.2008
Hópuppsagnir í nóvember og á árinu 2008
26.11.2008
Morgunfundur SA um ţjónustutilskipun ESB
26.11.2008
Fjarvinna - ávinningur eđa ánauđ? Hádegisfyrirlestur
25.11.2008
Styrkir veittir til atvinnumála kvenna
16.11.2008
Morgunverđarfundur um stöđu miđaldra og eldra fólks á vinnumarkađi
16.11.2008
Evrópsk starfakynning 21. og 22. nóv.
Vinnumálastofnun og EURES-samevrópska vinnumiðlunin, standa fyrir Evrópskri starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 21. nóvember frá kl. 17:00 til 21:00 og laugardaginn 22. nóvember frá kl. 12:00 til 18:00.
14.11.2008
Breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og Ábyrgđasjóđ launa
12.11.2008
Samskip og Frćđslusetriđ Starfsmennt hlutu Starfsmenntaverđlaunin 2008
12.11.2008
Atvinnuleysiđ 1,9% í október
5.11.2008
Atvinna fyrir alla? Málţing um atvinnumál
5.11.2008
Ársfundur Vinnumálastofnunar
Ársfundur Vinnumálastofnunar var haldinn föstudaginn 31. október síðast liðinn. Ársskýrslu Vinnumálastofnunar var dreift á fundinum. Hrannar B. Arnarsson, stjórnarformaður Vinnumálastofnunar setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.
4.11.2008
Hópuppsagnir í október 2008
30.10.2008
Rafrćn umsókn um atvinnuleysisbćtur
30.10.2008
Ársfundur Vinnumálastofnunar
29.10.2008
Skýringar međ töflu á forsíđu um fjölda atvinnulausra
27.10.2008
Hádegisfyrirlestur um uppsagnir starfsfólks 29. október
24.10.2008
Spornađ gegn vaxandi atvinnuleysi - ávarp ráđherra á ársţingi ASÍ
22.10.2008
Morgunverđarfundur um launamismunun
21.10.2008
Farseđill til framtíđar - 50 ára afmćlisráđstefna BHM
21.10.2008
Ný könnun SA á horfum á vinnumarkađi
20.10.2008
Bćtt vinnuumhverfi - betra líf
14.10.2008
Hlutastörf í stađ uppsagna
10.10.2008
Starfsmenn sem missa vinnu hjá bönkunum fá greitt út uppsagnarfrest
10.10.2008
Atvinnuleysi 1,3% í september
Atvinnuleysið í septembermánuði var 1,3% og jókst úr 1,2% í ágúst. Að meðaltali voru 2.229 manns atvinnulausir og er það aðeins um 4% aukning frá í ágúst. Atvinnuleysi er nú mun meira en á sama tíma á árinu 2007, þegar það var 0,8%. Vegna samdráttar í efnahagslífinu er líklegt að atvinnuleysið í október muni aukast verulega og verða á bilinu 1,5 til 1,9% en mjög erfitt er að sjá fyrir þróun efnahags- og atvinnulífs og þar með hvernig atvinnuleysi muni þróast næstu vikur og mánuði.
9.10.2008
Samrćmt ţjónustu- og upplýsinganet
8.10.2008
Netkönnun VMST og RHA
2.10.2008
Hópuppsagnir í september og á árinu 2008
2.10.2008
Fyrirlestur um gagnsemi starfsmannastefnu hjá ríkisstofnunum
30.9.2008
Eldri starfsmenn - akkur vinnustađa
Málþingið sem haldið var í Ketilshúsinu á Akureyri tókst mjög vel. Erindi voru fróðleg og málin mikið rædd. Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra byrjaði með erindi þar sem hún kom meðal annars inn á einstaka stöðu Íslands hvað varðaði atvinnuþátttöku þeirra sem eru eldri en 50 ára. Hún talaði um að með þessu fólki byggi mikilvæg lífsreynsla og starfsorka sem bætt gæti samfélagið og stutt það áfram í síbreytileika nútíma vinnumarkaðar.
29.9.2008
Upplýsingar um hópuppsagnir
23.9.2008
Ráđherra opnar heimasíđu Atvinnumála kvenna
Á kynningarfundi um styrki til atvinnumála kvenna að Kjarvalsstöðum í hádeginu opnaði Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhann Sigurðardóttir, heimasíðu Atvinnumála kvenna, www.atvinnumalkvenna.is. Í ávarpi hennar kom fram að rúmlega 330 konur hafa fengið styrki til margvíslegra verkefna á undanförnum árum. Styrkurinn hafi orðið þeim hvatning og stuðningur til uppbyggingar á fyrirtækjum þeirra.
18.9.2008
Eldri starfsmenn - akkur vinnustađa. Ráđstefna 25. september
16.9.2008
Hádegisfyrirlestraröđ Rannsóknarstofu í vinnuvernd ađ hefjast
Hádegisfyrirlestrar Rannsóknastofu í vinnuvernd á haustmisseri eru nú að fara í gang og er fyrsti fyrirlesturinn þann 19. september nk. þar sem Ásta Snorradóttir félagsfræðingur hjá Vinnueftirlitinu flytur erindi sem hún nefnir Konur, örorka og hindranir á vinnumarkaði. Fyrirlestrarnir verða haldnir annan hvern föstudag kl. 12.00 - 13.00 í stofu 101 í Odda.
10.9.2008
Atvinnuleysi 1,2% í ágúst 2008
|
|
Skráð atvinnuleysi í ágúst 2008 var 1,2% eða að meðaltali 2.136 manns og eykst atvinnuleysi um tæp 9% að meðaltali frá júlí eða um 168 manns. Á sama tíma á árinu 2007 var atvinnuleysi 0,9% eða 1.476 manns og hefur því aukist talsvert frá því sem það var með minnsta móti í fyrra.
8.9.2008
Styrkir til atvinnumála kvenna
Nú hefur Vinnumálastofnun/ Félagsmálaráðuneytið auglýst styrki til Atvinnumála kvenna lausa til umsóknar og er umsóknarfrestur til 28.september næstkomandi. Til umráða nú eru 50 milljónir sem að verður úthlutað til kvenna sem hafa góðar viðskiptahugmyndir.
13.8.2008
Atvinnuleysi 1,1% í júlí
Skráð atvinnuleysi í júlí 2008 var 1,1% og voru að meðaltali 1.968 manns á atvinnuleysisskrá. Hlutfall atvinnuleysis er því óbreytt frá júní og er atvinnuleysi enn með minnsta móti. Hins vegar eru að jafnaði 126 fleiri atvinnulausir en í júní sem gerir um 7% aukningu. Árstíðabundin aukning vinnuafls hefur hins vegar áhrif á hlutfall atvinnuleysis á þriðja ársfjórðungi. Atvinnuleysi er nú nokkru meira en á sama tíma fyrir ári þegar það var 0,9%.
31.7.2008
Breytingar á lögum nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga
11.7.2008
Atvinnuleysi 1,1% í júní 2008
Skráð atvinnuleysi í júní var 1,1% og eykst úr 1% í maí sl. Atvinnuleysið var 1% í júní í fyrra.
Að meðaltali voru 1.842 atvinnulausir í júní og fjölgar atvinnulausum um 103 eða um 6% frá maí.
2.7.2008
Hópuppsagnir í júní
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í júnímánuði. Eins og fram hefur komið í fréttum eru erfiðleikar framundan í flugrekstri og snúa bæði tilvikin að flugi og flugþjónustu. Hér er um það að ræða að um það bil 300 manns missi vinnuna og áætlað að um 1/3 eða nálægt 100 þeirra sem sagt er upp búi á Suðurnesjum þar sem atvinnuleysi mælist mest á landsvísu. Þessar uppsagnir koma því sérstaklega þungt niður á Suðurnesjum.
30.6.2008
Stađa og horfur á vinnumarkađi í lok júní

Atvinnuleysi hefur verið um 1% frá áramótum. Töluverð aukning varð þó á meðalfjölda á atvinnuleysisskrá á milli mánaða eða úr 1.739 í maí, í 2.300 í júní. Því má búast við að atvinnuleysi í júní mælist hærra en í fyrri mánuði og verði um 1,2%. Aukning atvinnuleysis nú síðustu vikur er nánast eingöngu á höfuðborgarsvæðinu og fer þar líkast til úr 0,8% í maí í 1,1% í júní, en helst nánast óbreytt á landsbyggðinni eða 1,4%. Aukningin er heldur meiri meðal kvenna.
20.6.2008
Hópuppsagnir
11.6.2008
Atvinnuleysiđ 1% í maí
10.6.2008
Eures-ráđstefna um samkeppni um sérhćft starfsfólk á EES-svćđinu
EES-vinnumiðlun (EURES) á Íslandi stóð fyrir ráðstefnu föstudaginn 30. maí sl. þar sem fjallað var um um fyrirséðan skort á sérfræðingum og samkeppni um hæfasta fólkið á EES-svæðinu. Enn fremur markaði ráðstefnan upphaf samstarfs EURES á Íslandi, Noregi, Írlandi og Danmörku um aðgerðir til að laða til landana sérhæft starfsfólk.
Öll erindi ráðstefnunar er að finna á heimasíðu Eures á Íslandi, Eures.is
4.6.2008
Vinnumálastofnun tekur ţátt í Evrópuverkefni
Samevrópsk rannsókn
Vinnumálastofnun tekur nú þátt í samevrópskri rannsókn um samþættingu fjölskyldu og atvinnulífs. Rannóknin er gerð að frumkvæði vinnumálastofnunarinnar á Möltu en þátttakendur í rannsókninni eru frá sex löndum, Möltu, Kípur, Sloveníu, Ítalíu, Svíþjóð og Íslandi. Tilgangur rannsóknarinnar er að greina hugsanlegt hlutverk hins opinbera í samþættingu fjölskyldu og atvinnulífs.
19.5.2008
Framtíđarhorfur á Evrópskum vinnumarkađi - Baráttan um besta fólkiđ
13.5.2008
Atvinnuleysiđ 1% í apríl
30.4.2008
Stađa og horfur á vinnumarkađi
Vinnumálastofnun hefur tekið saman skýrslu um stöðu og horfur á vinnumarkaði á vormánuðum 2008. Í skýrslunni er litið á þróun atvinnuleysis og eftirspurnar eftir vinnuafli síðustu misseri ásamt spá um líklega þróun atvinnuleysis næstu 2 ár.
11.4.2008
Atvinnuleysi 1% í mars
27.3.2008
Eykur sveigjanleiki í starfi álagiđ á fjölskylduna?
12.3.2008
Atvinnuleysi 1% í febrúar 2008
12.2.2008
Félags- og tryggingarmálaráđherra styrkir atvinnusköpun kvenna
Félags- og tryggingarmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir hefur úthlutað styrkjum til atvinnumála kvenna að upphæð kr. 15.790.000,- Styrkjunum er ætlað að styðja við bakið á konum sem hafa áhuga á að hasla sér völl sem sjálfstæðir atvinnurekendur og eru með áhugaverða viðskiptahugmynd. Að þessu sinni var um að ræða aukaúthlutun styrkja til atvinnumála kvenna fyrir árið 2007 vegna mótvægisaðgerða ríkisstjórnarinnar og því mestu úthlutað til kvenna á landsbyggðinni.
12.2.2008
Atvinnuleysi 1% í janúar 2008
8.2.2008
Samspil hljóđhönnunar og menningar á vinnustađ
23.1.2008
Vinnan í lífi Íslendinga
16.1.2008
Opinn fundur Starfsmenntaráđs um áherslur nćsta árs
11.1.2008
Atvinnuleysi 0,8% í desember
7.1.2008
Málţing um málefni innflytjenda
Félagsmálaráðuneytið og innflytjendaráð standa fyrir málþingi um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda sem haldið verður föstudaginn 11. janúar 2008 klukkan 10–16.30 í Borgartúni 6 í Reykjavík. Með því vill innflytjendaráð kalla eftir sjónarmiðum og hugmyndum við gerð framkvæmdaáætlunar í málefnum innflytjenda.




English

