Beint á leiđarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiđarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíđu

Fréttir vinnumálastofnunar

27.12.2009

Ungt fólk til athafna

Hrint hefur verið af stað stórátaki til að skapa ný tækifæri fyrir unga atvinnuleitendur. Nánari upplýsingar er að finna á síðu verkefnisins. Sjá einnig meðfylgjandi auglýsingu.

10.12.2009

Atvinnuleysi í nóvember var 8%

Skráð atvinnuleysi í nóvember 2009 var 8% eða að meðaltali 13.357 manns og eykst atvinnuleysi um 5,3% að meðaltali frá október eða um 675 manns.  Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 3,3% eða 5.445 manns.

 

Sjá nánar skýrslu um stöðu á vinnumarkaði í nóvember 2009.

 

 

3.12.2009

Verkefnisstjórn 50+ lýkur störfum

Verkefnisstjórn 50+ skipuð af félagsmálaráðherra til 5 ára árið 2005 lauk formlega störfum í dag. Verkefnisstjórnin var skipuð fulltrúum ykkar stofnana/samtaka. Verkefnisstjórnin hefur haldið úti vefsíðu http://50.felagsmalaraduneyti.is og mun henni verða viðhaldið þó svo starfi verkefnisstjórnarinnar sé nú lokið.

3.12.2009

Starfsmenntaverđlaunin afhent

Starfsmenntaverðlaunin voru afhent í tíunda sinn föstudaginn 27. nóvember síðastliðinn.

2.12.2009

Ţrjár hópuppsagnir í nóvember

Vinnumálastofnun bárust 3 hópuppsagnir í nóvembermánuði, þar sem sagt var upp 118 manns.  Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð og framleiðsluiðnaði og er ástæðan m.a. endurskipulagning vegna verkefnaskorts og rekstrarerfiðleikar.

Sjá nánar hér

25.11.2009

Stađa ungs fólks án atvinnu og tillögur ađ úrrćđum

Vinnuhópur sem settur var á fót í september til að fjalla um aðgerðir til að stuðla að virkni atvinnulausra hefur skilað tillögum sínum. Félags- og tryggingamálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra stofnuðu vinnuhópinn og fólu honum að fjalla um þau úrræði sem standa til boða fólki sem misst hefur atvinnu sína, kanna námsmöguleika þess og gera tillögur um úrbætur.

20.11.2009

Hádegisfyrirlestur um heilsu og líđan starfsmanna sem misst hafa vinnu

Á vegum Rannsóknarstofu í vinnuvernd verður hádegisfyrirlestur í dag 20. nóvember. Þar greina Helena Jónsdóttir, Cand. Psych. nemi í sálfræði og Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði frá hluta af niðurstöðum rannsóknar á heilsu og líðan starfsmanna fjármálafyrirtækja sem misst hafa vinnu í kjölfar efnahagsþrenginga.

11.11.2009

Atvinnuleysi 7,6% í október

Skráð atvinnuleysi í október 2009 var 7,6% eða að meðaltali 12.682 manns og eykst atvinnuleysi um 4,4% að meðaltali frá september eða um 537 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,9%, eða 3.106 manns. Sjá nánar skýrslu um stöðu á vinnumarkaði í október 2009.

5.11.2009

IĐAN frćđslusetur virkjar iđnađarmenn í atvinnuleit

Í vikunni var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, IÐUNNAR fræðsluseturs og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur.  Náms- og starfsráðgjafar IÐUNNAR fræðsluseturs munu með þessum samningi hvetja iðnaðarmenn í atvinnuleit, sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, til virkni.

3.11.2009

Ný rannsókn um innflytjendur á íslandi

Niðurstöður úr rannsókn Félagsvísindastofnunar og Fjölmenningarseturs sem var unnin 2008 og 2009 liggur nú fyrir. Ekki er hægt að alhæfa um innflytjendur á landsvísu út frá niðurstöðunum, en rannsóknin gefur mikilvæga sýn inn í líf og reynslu innflytjenda á Íslandi. Draga má þá ályktun af lestri skýrslunnar að reynsla  innflytjenda og þekkingu hefur ekki nýst okkur sem skyldi. Um helmingur hefur í raun ekki fengið vinnu við sitt hæfi þ.e.a.s. menntun þeirra nýtist ekki að fullu í störfum á Íslandi. Mikil ónýtt þekking og reynsla býr því með þessum hópi og innflytjendur á íslandi því ekki síður mikilvægur mannauður á tímum kreppu en á þenslutímum.

 

2.11.2009

Virkjum fjölbreyttari mannauđ - norrćn ráđstefna 9.-10. nóv.

Norræn ráðstefna -  Virkjum fjölbreyttari mannauð - verður haldin dagana 9.-10. nóvember nk. á Hótel Nordica. Frítt er á ráðstefnuna og fer skráning fram á yourhost.is/arbejdetilalle2009. Ráðstefnan fer fram á ensku.

 

2.11.2009

Lokaráđstefna og niđurstöđur rannsóknar um samţćttingu atvinnu og einkalífs.

Vinnumálastofnun stóð fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um samþættingu atvinnu og einkalífs í byrjun síðasta mánaðar þar sem  fjallað var um niðurstöður fjölþjóðlegrar rannsóknar sem Vinnumálastofnun var aðili að. Rannsóknin fjallaði um stöðu fyrirtækja í tilliti til samþættingar atvinnu og einkalífs og hugsanlegt hlutverk hins opinbera í því ferli.

Það sem kom í ljós varðandi íslenskan vinnumarkað er að samþætting atvinnu og einkalífs virðist vera mjög óformleg, þrátt fyrir að kveðið sé á um það í lögum að í jafnréttisáætlunum skuli fjallað sérstaklega um samþættingu atvinnu og einkalífs og úrræði séu sett fram með formlegum hætti. Úrræði til handa starfsfólki virðast vera einstaklingsbundin sem  kann að koma sumum vel en öðrum illa, sérstaklega þeim  sem kunna að standa höllum fæti á vinumarkaði eða innan einstakra fyrirtækja.

 

29.10.2009

Fleiri náms- og starfsráđgjafar virkjađir í ţágu atvinnuleitenda

Á  miðvikudag var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, KVASIS, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur.  Á vegum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva starfa náms- og starfsráðgjafar, sem munu með þessum samningi  taka þátt í að ná til atvinnuleitenda  sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins og hvetja þá til virkni.

26.10.2009

Ársfundur Vinnumálastofnunar

Ársfundur Vinnumálastofnunar verður haldinn á Hótel Hilton Nordica, 2. hæð, föstudaginn 30. október nk. kl. 13-15.

21.10.2009

Fyrirlestur um stefnumótun og ráđgjöf í kjölfar atvinnuleysis

Debbie Brewin frá Oxford Cognitive Therapy Centre (OCTC) mun flytja hádegisfyrirlestur föstudaginn 23.október kl.12-13. Hann er á vegum Félags um hugræna atferlismeðferð, Vinnumálastofnunar og Oxford Cognitive Therapy Centre og einkum ætlaður þeim, sem vinna að mótun stefnu og annast ráðgjöf einstaklinga og fjölskyldna, sem orðið hafa atvinnulausar í kreppunni. Fyrirlesturinn er einnig ætlaður þeim, sem takast á við afleiðingar efnahagskreppu og atvinnuleysis á Íslandi.

20.10.2009

Velferđ á tímum efnahagsţrenginga - Ráđstefna

Hvernig er hægt að hlúa að þjóðinni á krepputímum og hvers konar gildi og viðhorf viljum við að ríki í samfélaginu? Leitað verður svara við þessum og öðrum spurningum á ráðstefnunni Velferð á tímum efnahagsþrengingasem haldin verður á Hótel Sögu miðvikudaginn 21. október, kl. 9-16:15. Markmiðið er að miðla þekkingu á því hvernig draga megi úr áhrifum kreppunnar og laða fram nýjar og skapandi lausnir fyrir samfélagið.

15.10.2009

30 milljónum úthlutađ í aukaúthlutun úr starfsmenntasjóđi félags- og tryggingam.ráđuneytisins

Verkefnið „Endurmenntun til starfa á nýju sviði“, sem eykur möguleika rafiðnaðarmanna sem misst hafa atvinnu að skipta um starfsumhverfi, var eitt þeirra verkefna sem hlaut styrk úr aukaúthlutun starfsmenntasjóðs félags- og tryggingamálaráðuneytisins 2009. Úthlutað var til 17 verkefna að þessu sinni, alls um 25 milljónum króna. Að auki var ráðgjafasviði Vinnumálastofnunar veittur styrkur að fjárhæð kr. 5.000.000.- til úrræða fyrir atvinnulausa á höfuðborgarsvæðinu.

12.10.2009

Atvinnuleysi 7,2% í september

Skráð atvinnuleysi í september 2009 var 7,2% eða að meðaltali 12.145 manns og minnkar atvinnuleysi um 9,3% að meðaltali frá ágúst eða um 1.242 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,3%, eða 2.229 mannsþ

9.10.2009

Starfsmenntaverđlaunin - auglýst eftir tilnefningum/umsóknum

Starfsmenntaráð óskar eftir tilnefningum/umsóknum um Starfsmenntaverðlaunin 2009. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem vinna framúrskarandi starf í fræðslumálum og starfsmenntun. Sjá nánar meðfylgjandi auglýsingu.

2.10.2009

Fjórar hópuppsagnir í september

Vinnumálastofnun bárust 4 hópuppsagnir í septembermánuði þar sem sagt var upp 87 manns.  Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð, upplýsinga – og útgáfustarfsemi og flutningum og er ástæðan rekstrarerfiðleikar og endurskipulagning.

24.9.2009

Hádegisfyrirlestur um tengsl vinnu og hjartasjúkdóma

Á morgun, laugardaginn 25. september  verður fyrsti hádegisfyrirlesturinn á vegum Rannsóknarstofu í vinnuvernd á þessu haustmisseri. Bolli Þórsson, læknir hjá Hjartavernd og sérfræðingur í innkirtlasjúkdómum mun halda fyrirlestur  um tengsl vinnu og hjartasjúkdóma.

 

21.9.2009

Greiđsluseđlar á rafrćnu formi

Frá og með næstu mánaðarmótum verða greiðsluseðlar atvinnuleysisbóta ekki sendir út með pósti á pappírsformi, heldur aðeins birtir rafrænt á heimasvæði einstaklinga á umsóknarvef Vinnumálastofnunar og hjá Tryggingastofnun á www.tryggur.is, undir Rafrænar greiðslur.

10.9.2009

Atvinnuleysi 7,7% í ágúst

Skráð atvinnuleysi í ágúst 2009 var 7,7% eða að meðaltali 13.387 manns og minnkar atvinnuleysi um 2,7% að meðaltali frá júlí eða um 369 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,2%, eða 2.136 manns.

2.9.2009

Ţrjár hópuppsagnir í ágúst

Vinnumálastofnun bárust 3 hópuppsagnir í ágústmánuði þar sem sagt var upp samtals 50 manns. Um er að ræða fyrirtæki í byggingariðnaði eða skyldri starfsemi og er ástæðan fyrirsjáanlegur verkefnaskortur og að verkefnum er að ljúka á næstu vikum.

27.8.2009

Um nám á atvinnuleysisbótum

Vinnumálastofnun vekur athygli á að atvinnuleitendum er ekki heimilt að stunda nám samhliða töku atvinnuleysisbóta nema mat ráðgjafa  Vinnumálastofnunar liggi fyrir um að heimila slíkt og gerður hafi verið sérstakur námssamningur þar um.

13.8.2009

Atvinnuleysi 8,0% í júlí

Atvinnuleysi í júlímánuði mældist 8% og er útlistað nánar í skýrslu um stöðu á vinnumarkaði í júlí. Þetta jafngildir því að 13.756 manns hafi að jafnaði verið atvinnulausir í júlí. Atvinnuleysi minnkar því um 2,4% frá júní eða um 335 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,1%, eða 1.968 manns.

5.8.2009

Hópuppsagnir í júlímánuđi

Í júlí bárust Vinnumálastofnun 6 hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals 110 manns. Uppsagnirnar koma úr ýmsum greinum, tvær úr byggingariðnaði samtals 28% uppsagnanna, og svo úr fiskvinnslu, verslunargeiranum, iðnaðarstarfsemi og ferðaþjónustu.

23.7.2009

Styrkir vegna starfsmenntunar 2009, AUKAÚTHLUTUN

 

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu.  Til úthlutunar eru um 30 milljónir króna.  Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi.

Starfsmenntaráð hvetur umsækjendur til að sækja um verkefni sem falla undir eftirfarandi áherslur:

Verkefni sem tengjast erfiðri stöðu á vinnumarkaði. 
Gæðaverkefni sem nýtast þeim hópum sem misst hafa atvinnu eða eru í sérstakri áhættu með að missa vinnuna.

Gerð er krafa um samstarf við samtök atvinnurekenda og launafólks við gerð og framkvæmd verkefnisins. 

10.7.2009

Atvinnuleysi 8,1% í júní

Skráð atvinnuleysi í júní 2009 var 8,1% eða að meðaltali 14.091 manns og minnkar atvinnuleysi um 3,5% að meðaltali frá maí eða um 504 manns.  Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,1% eða 1.842 manns.              Sjá nánar

5.7.2009

Hópuppsagnir í júní 2009

Í júní bárust Vinnumálastofnun 4 hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals um 360 manns. Þar af var yfir 270 manns sagt upp hjá einu stóru verktakafyrirtæki í byggingariðnaði og koma þær uppsagnir til framkvæmda á tímabilinu ágúst til nóvember. Af þeim fjölda eru þó yfir 70 manns sem aðeins voru með tímabundna ráðningu og nokkrir í viðbót voru á uppsagnarfresti.

11.6.2009

Atvinnuleysi 8,7% í maí

Skráð atvinnuleysi í maí 2009 var 8,7% eða að meðaltali 14.595 manns og minnkar atvinnuleysi um 1,5% að meðaltali frá apríl eða um 219 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.739 manns.

5.6.2009

Starfsmenn lögđu á flótta

Vinnustaðaeftirlit

Í eftirlitsferð stéttarfélaganna og Vinnumálastofnunar í  gær 4. júní var komið við í húsi sem verið er að breyta við Hverfisgötu. Þegar vinnueftirlitsmenn komu á staðinn brá  svo við að tveir starfsmenn lögðu á flótta og sást til þeirra á Arnarhóli stuttu síðar. Þegar eftirlitsmenn ætluðu að hafa tal af þeim þar tóku þeir á sprett og hurfu sjónum. Í ljós kom að mennirnir hafa verið á atvinnuleysisbótum og mun Vinnumálastofnun í framhaldinu kanna hvort þeir hafi verið í vinnu á sama tíma.


Í venjubundnu eftirliti sem nokkur stéttarfélög ásamt Vinnumálastofnun hafa framkvæmt  undanfarin ár hefur aðaláhersla verið lögð á eftirlit með erlendum starfsmönnum sem hafa starfa hér á landi, að þeir hafi atvinnuleyfi og starfi hér löglega. Að undanförnu með tilliti til breyttra aðstæðna hefur eftirlitið þróast og breyst yfir í það að vera meira eftirlit með því hvort starfsmenn séu að greiða lögbundin gjöld og launatengd. Þá hefur verið athugað hvort starfsmenn séu á atvinnuleysisbótum og í vinnu á sama tíma.

 

5.6.2009

Ţátttaka í úrrćđum í apríl 2009

Tekin hefur verið saman skýrsla um þátttöku atvinnuleitenda í vinnumarkaðsúrræðum í aprílmánuði 2009. Alls tóku 1.740 manns þátt í úrræðum af einhverju tagi í aprílmánuði, þar af voru 622 á náms-samningi. Námssamningar voru  gerðir að mestu leyti í janúar og gilda yfirleitt til maíloka, að auki voru 143 í annarskonar námsúrræðum. 

3.6.2009

Ein hópuppsögn barst í maí

Aðeins ein hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í maí þar sem tilkynnt var um uppsagnir 17-20 einstaklinga frá fyrirtæki með um 30-40 starfsmenn. Um er að ræða fyrirtæki úr iðnaði og er fyrirsjáanlegur verkefnaskortur á haustmánuðum ástæða uppsagnanna.

13.5.2009

Atvinnuleysi 9,1% í apríl

Skráð atvinnuleysi í apríl 2009 var 9,1% og jókst úr 8,9% í mars, eða um 1,8%. Að meðaltali voru 14.814 manns atvinnulausir í apríl eða 268 fleiri að jafnaði en í mars. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.717 manns að jafnaði.

12.5.2009

Námsmenn og atvinnuleysisbćtur sumariđ 2009

Hér er lýst því ferli sem gildir fyrir námsmenn sem hafa ekki fengið sumarvinnu og hyggjast sækja um atvinnuleysisbætur.

8.5.2009

Lög um skráning á erlendu vinnuafli frá nýju ríkjum ESB fallin úr gildi

Lög um skráningu á erlendu vinnuafli frá nýju ríkjum ESB féllu úr gildi  1. maí s.l. Atvinnurekendum sem ráða til sín ríkisborgara frá frá þessum ríkjum, þ.e. Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Póllandi, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklandi og Ungverjalandi, ber því ekki lengur að tilkynna um ráðninguna til Vinnumálastofnunar.

5.5.2009

Hópuppsagnir í apríl

Í apríl bárust Vinnumálastofnun 6 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals 283 einstaklingum. Tvær tilkynningar voru úr mannvirkjagerð, ein tilkynning úr flutningastarfsemi, ein tilkynning úr sérfræðiþjónustu, ein tilkynning úr iðnaði og ein tilkynning úr ýmissi þjónustu.

22.4.2009

Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna

Umhverfisvænar byggingareiningar, táknmálsvefur, rjómabú, baðhús í Stykkishólmi, þaraböð á Reykhólum, örlitameðferð til að bæta útlit eftir veikindi eða slys og hólkar úr bylgjupappír sem nota má sem skilrúm eru á meðal þeirra viðskiptahugmynda sem fá úthlutað úr sjóði félags- og tryggingamálaráðuneytis til atvinnumála kvenna að þessu sinni.

19.4.2009

Atvinnutćkifćri í Kanada

Vinnumálastofnun hefur borist listi yfir störf sem standa Íslendingum til boða í Kanada. Listann og aðrar hagnýtar upplýsingar um atvinnuleit í Kanada er hægt að finna með því að velja tenglinn „Atvinna í Kanada“ hægra megin á síðunni. Ath. umsækjendur eru beðnir að koma með ferilskrá á ensku og þýdd prófskírteini á skrifstofu Vinnumálastofnunar, Borgartúni 7.

15.4.2009

Atvinnuleysi 8,9% í mars

Skráð atvinnuleysi í mars 2009 var 8,9% eða að meðaltali 14.546 manns og eykst atvinnuleysi um 9,6% að meðaltali frá febrúar eða um 1.270 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.674 manns.

4.4.2009

Húsfyllir á námsstefnu um vinnumarkađsúrrćđi

Húsfyllir var á námsstefnu um vinnumarkaðsúrræði sem haldin var í dag á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar þar sem mættu hátt í 200 manns. Námsstefnunni var sjónvarpað beint á Netinu og er upptaka aðgengileg á vef ráðuneytisins, ásamt glærum fyrirlesaranna.

2.4.2009

Hópuppsagnir í mars ná til um 300 manns

Í mars bárust Vinnumálastofnun 7 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals 357 einstaklingum.

24.3.2009

Styrkjum fyrir 35 milljónir útlhutađ úr Starfsmenntasjóđi

Félagsmálaráðherra úthlutaði styrkjum úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins vegna ársins 2009 sl. föstudag.  Athöfnin fór fram í húsakynnum IÐUNNAR fræðsluseturs. 

16.3.2009

Fjölmennur fundur um kynningu á atvinnutćkifćrum í Kanada

Fjölmenni var á fundi sem haldinn var af Vinnumálastofnun og Kanadíska sendiráðinu um atvinnutækifæri í Manitoba í Kanada á föstudaginn var. Kynntar voru upplýsingar um helstu atvinnutækifæri og hvernig fólk á að snúa sér hafi það áhuga á að leita fyrir sér um störf í Manitoba. Upptöku frá fundinum má nálgast á þessari slóð: http://sjonvarp.khi.is/ 

11.3.2009

Atvinnuleysi 8,2% í febrúar

Skráð atvinnuleysi í febrúar 2009 var 8,2% eða að meðaltali 13.276 manns og eykst atvinnuleysi um 27% að meðaltali frá janúar eða um 2.820 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.631 manns. 

10.3.2009

Kynningarfundur um atvinnutćkifćri í Kanada

Fundur um atvinnutækifæri í Kanada, með áherslu á Manitoba fylki, verður haldinn í fundarsalnum Skriðu, Háskóla Íslands, Stakkahlíð (gamli Kennaraháskólinn), föstudaginn 13. mars, 2009 frá kl. 15–17.

4.3.2009

Menntatorg - föstudaginn 6. mars

Föstudaginn 6. mars næstkomandi efnir Fræðslumiðstöð atvinnulífsins til viðburðar undir yfirskriftinni: „Menntatorg“, en líkt og nafnið bendir til snýst viðburðurinn um menntun og fræðslu, sérstaklega þau úrræði sem atvinnulausum bjóðast til að auka við menntun sína og færni á tilteknum sviðum.  

3.3.2009

Engar hópuppsagnir tilkynntar Vinnumálastofnun í febrúar

Engar hópuppsagnir voru tilkynntar Vinnumálastofnun í febrúar. Því eru upplýsingar um hve margar hópuppsagnir koma til framkvæmda næstu mánuði óbreyttar, þ.e. um 480 koma til framkvæmda nú í mars, um 230 í apríl og um 120 í maí. Nánari upplýsingar er að finna í áður útgefnum skýrslum um hópuppsagnir, sjá skýrslu fyrir janúar 2009 og desember 2008.

17.2.2009

Styrkir til atvinnumála kvenna auglýstir

Ertu kona með góða viðskiptahugmynd? Vinnumálastofnun og Félags- og tryggingamálaráðuneyti hafa auglýst styrki til atvinnumála kvenna lausa til umsóknar. Styrkir þessir hafa verið veittir síðan 1991 og á síðasta ári voru 50 milljónum úthlutað til 56 kvenna um land allt.

17.2.2009

Atvinnutćkifćri í Manitoba í Kanada

Vinnumálastofnun bendir þeim sem hafa áhuga á hugsanlegum atvinnutækifærum í Manitoba í Kanada á heimasíðuna, www.immigratemanitoba.com, en þar er að finna gagnlegar upplýsingar.  Áhugasamir geta jafnframt beint fyrirspurnum ( á ensku ) á eftirfarandi  netfang,  immigratemanitoba@gov.mb.ca. Gott er að láta upplýsingar um menntun og starfsreynslu fylgja með.

13.2.2009

Störfum mun fćkka um 4% fram á vor skv. könnun SA

Samtök Atvinnulífsins hafa gert könnun meðal aðildarfyrirtækja sambandsins sem bendir til að störfum muni fækka um nálægt 4% næstu mánuði. Gert er ráð fyrir að fjöldi þeirra sem verða alveg án atvinnu fari hæst í 15-16 þúsund í maí, en um 3 þúsund verði þá að auki atvinnulausir að hluta til.

13.2.2009

Atvinnuleysi verđur 8-9% nćstu ár ađ mati ASÍ

Hagdeild ASÍ kynnti nýja hagspá fyrr í vikunni þar sem fram kemur að horfur í íslensku efnahagslífi séu dökkar næstu 2 ár en það taki að rofa til að nýju á árinu 2011. Búast má við að atvinnuleysi verði á bilinu 8-9% á árunu 2009-2011.

11.2.2009

Atvinnuleysi 6,6% í janúar 2009

Skráð atvinnuleysi í janúar 2009 var 6,6% eða að meðaltali 10.456 manns og eykst atvinnuleysi um 32% að meðaltali frá desember eða um 2.554 manns. Atvinnuleysi hefur ekki verið jafn mikið frá því í janúar árið 1995 en þá var atvinnuleysi 6,8%. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.545 manns. 

6.2.2009

Vinnuafl, fjöldi atvinnulausra og atvinnuleysi

Í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins er birt áætlun um framboð vinnuafls á árinu 2009 eftir landshlutum, kyni og mánuðum - sjá nánar í þessu excelskjali. Um er að ræða áætlun um fjölda ársverka og er aðferðafræðin útskýrð nánar í vefritinu. Vinnumálastofnun byggir á þessari ársverkaáætlun við sína útreikninga á atvinnuleysi og birt er í mánaðarlegri skýrslu stofnunarinnar um stöðu á vinnumarkaði.

5.2.2009

Ungt fólk og vinnumarkađurinn - hádegisfyrirlestur

Föstudaginn 6. febrúar verður hádegisfyrirlestur á vegum Rannsóknastofu í vinnuvernd sem ber heitið Ungt fólk og vinnumarkaðurinn. Fyrirlesarar eru Laufey Eydal og Elísabet Magnúsdóttir hjá samskipta- og þróunarsviði VR.

4.2.2009

Samlistasýning!

Vinnumálastofnun á Norðurlandi Eystra tekur þátt í samlistasýningu undir yfirskriftinni sameining lista, fólks og samfélags.  Ætlunin er að setja upp einhverskonar spunaverk þar sem öllum er boðin þátttaka. Þarna er á ferðinni mjög skemmtilegt verkefni þar sem mjög fjölbreytt kunnátta og hæfni fólks úr öllum áttum mun nýtast á mjög uppbyggilegan hátt. Auglýst er eftir leikurum, dönsurum, myndlistafólki, tónlistafólki, fatahönnuðum, förðunarfræðingum, smiðum, ljósa-og hljóð fólki, matráðum, auglýsingastjóra, bílstjóra og íhlaupafólki og öllum þeim, lærðum og leikum sem vilja vera með.
Nánari upplýsingar hér

3.2.2009

Hópuppsagnir í janúar 2009

Í janúar bárust Vinnumálastofnun 10 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals 167 einstaklingum. Fjórar tilkynningar voru úr mannvirkjagerð með samtals 50% þeirra sem sagt var upp með þessum hætti, aðrar uppsagnir dreifðust á flutningastarfsemi, fjármálastarfsemi, verslun, iðnað og upplýsinga- og útgáfustarfsemi.

30.1.2009

Breyttur opnunartími á Akureyri

Vegna mikils álags og anna við umsýslan og skráningu umsókna um atvinnu og atvinnuleysisbætur verður skrifstofa Vinnumálastofnunar á Akureyri lokuð eftir hádegi á föstudögum. Almennur opnunartími er því frá kl. 9:00 til 15:00 mánudaga til fimmtudaga og frá 9:00 til 12:00 á föstudögum.

26.1.2009

Starfsorka - nýsköpunarverkefni

Starfsorka er átaksverkefni með það markmið að auðvelda fyrirtækjum að ráða fólk í atvinnuleit. Verkefnið er samstarfsverkefni Vinnumálastofnunar og Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þátttaka í verkefninu er opin fyrirtækjum og einstaklingum með rekstur á öllu landinu. Umsóknir um þátttöku verða afgreiddar vikulega fyrsta mánuðinn.

26.1.2009

Glćrur međ fyrirlestri um stöđu á vinnumarkađi

Hér má nálgast glærur sem fylgdu með fyrirlestri um stöðu á vinnumarkaði og horfur næstu mánuði, sem Karl Sigurðsson hélt föstudaginn 23. janúar sl. í Odda í Háskóla Íslands.

21.1.2009

Stađa á vinnumarkađi og horfur nćstu mánuđi

Föstudaginn 23. janúar n.k. kl. 12-13 verður fyrsti hádegisfyrirlestur Rannsóknastofu í vinnuvernd á þessu ári. Fyrirlesari er Karl Sigurðsson forstöðumaður vinnumálasviðs hjá Vinnumálastofnun og fjallar um breytta stöðu á vinnumarkaði í kjölfar bankahrunsins og kreppu í efnahagslífinu.

19.1.2009

Starfsmenntaráđ auglýsir styrki

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu og er umsóknarfresturinn til 30. janúar n.k.

19.1.2009

Morgunverđarfundur um finnskt atvinnlíf í kjölfar efnahagsţrenginga

Þriðjudaginn 20. janúar efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri og Finnsk-íslenska viðskiptaráðið til morgunverðarfundar um hvernig finnskt atvinnulíf snéri vörn í sókn í efnahagsþrengingunum í Finnlandi á árunum 1991-1994.

16.1.2009

Virkjun mannauđs á Reykjanesi opnuđ á Vallarheiđi

Virkjun mannauðs á Reykjanesi, miðstöð fólks í atvinnuleit var formlega opnuð á Vallarheiði í gær. Virkjun er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Vinnumálastofnunar, verkalýðsfélaga, fyrirtækja og menntastofnana á svæðinu s.s. Keilis, miðstöð vísinda og fræða, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.

15.1.2009

Hreyfing og útivist á Akureyri

Vinnumálastofnun á Norðurlandi Eystra er aðili að verkefninu 'Hreyfing og útivist' sem hefst formlega í dag. Hugmyndin er  núna á erfiðum tímum að auðvelda fólki að halda félagslegri, líkamlegri og andlegri virkni sinni. Vinnumálastofnun styður verkefnið fjárhagslega og beinir sínum skjólstæðingum til þátttöku. Verkefnið er þó öllum opið og koma ýmsir aðrir að fjármögnun þess bæði fyrirtæki og hagsmunahópar. Nánari upplýsingar um verkefnið má sjá í gegn um heimasíðu Vinnumálastofnunar Norðurlandi Eystra.

15.1.2009

Atvinnumál einhverfra í nýju ljósi

Í tilefni af frumsýningu íslensku heimildarmyndarinnar „Sólskinsdrengurinn“ mun Skýrslutæknifélag Íslands ásamt Umsjónarfélagi einhverfra og aðstandendum myndarinnar standa fyrir hádegiverðarfundi um stöðu einhverfra í atvinnulífinu.

Fundurinn er föstudaginn 16. janúar kl. 12-14 á Grand Hótel í Reykjavík. Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský og félagsmenn Umsjónafélags einhverfa er 3.800 kr. Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er 4.800 kr. Skýrslutæknifélag Íslands sér um framkvæmd ráðstefnunnar, til að skrá sig á hana þarf að senda póst á sky@sky.is eða hringja í síma 553 2460.

13.1.2009

Atvinnuleysi 4,8% ađ jafnađi í desember

Skráð atvinnuleysi í desember 2008 var 4,8% eða að meðaltali 7.902 manns og eykst atvinnuleysi um 45% að meðaltali frá nóvember eða um 2.458 manns.  Atvinnuleysi hefur ekki verið jafn mikið frá því í janúar árið 1997. Á sama tíma á árinu 2007 var atvinnuleysi 0,8%, eða 1.357 manns.

10.1.2009

Reglugerđir um vinnumarkađsúrrćđi

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur sett tvær reglugerðir um fjölbreytt vinnumarkaðsúrræði og um nám og námsskeið sem atvinnuleitendur geta tekið þátt í samhliða því að fá greiddar atvinnuleysisbætur. Á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins má lesa nánar um málið.

6.1.2009

Alţjóđavinnumálastofnunin og heimskreppan

Juan Somavia aðalritari Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) ein af undirstofnunum Sameinuðu þjóðanna (sjá heimasíðu ILO www.ilo.org) segir í yfirlýsingu* að heimsbyggðin sé lent í kreppu mitt í þeirri kreppu sem hún var í fyrir. Hin viðvarandi kreppa sem hann vitnar til er sú tilhneiging í ríkjandi efnahagskerfi til félagslegrar mismununar.

5.1.2009

Hópuppsagnir í desember og áriđ 2008

Í desembermánuði bárust Vinnumálastofnun aðeins 4 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals 94 einstaklingum. Ein tilkynning var úr mannvirkjagerð, ein úr verslunargeiranum, og tvær úr upplýsinga- og sérfræðistarfsemi.

Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborđ

til baka Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu