Beint á leiđarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiđarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíđu

Fréttir vinnumálastofnunar

31.12.2010

Greiđslur vegna bilunar í netţjóni

Greiðslur til atvinnuleitenda sem fengu ekki greitt í gær vegna bilunar í netþjóni en hafa staðfest sig í gær eða dag eru að fara inn á bankareikninga nú upp úr hádegi 31. des. Vinnumálastofnun biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi töf hefur valdið viðskiptavinum og harmar að þetta hafi gerst á þessum viðkvæma tíma.

30.12.2010

Áríđandi tilkynning!

Vegna bilunar þann 20. des. 2010 hafa staðfestingar á atvinnuleit sem framkvæmdar voru fyrir hádegi þann sama dag ekki skilað sér yfir í greiðslukerfi Vinnumálastofnunar!

Við biðjum alla þá sem staðfestu sig á umræddu tímabili um að staðfesta sig aftur í dag. Það er gert með því að fara inni á "Mínar síður" á heimsíðu Vinnumálastofnunar.

23.12.2010

Vinnumálastofnun og Reykjavíkurborg undirrita samkomulag

Vinnumálastofnun og Reykjavíkurborg hafa undirritað samkomulag um vinnumarkaðsaðgerðir fyrir fatlað fólk og samstarf varðandi þjónustu og vinnumarkaðsúrræði fyrir atvinnuleitendur sem njóta félagsþjónustu hjá Reykjavíkurborg.

22.12.2010

Opnunartími Vinnumálastofnunar um hátíđirnar

Skrifstofur Vinnumálastofunar verða lokaðar á aðfangadag og gamlársdag. Þar fyrir utan er opnunartími sá sami og vanalega - sjá hér.

 

21.12.2010

Eingreiđslur vegna desemberuppbótar

Greiðslustofa Vinnumálastofnunar hefur í dag lagt inn á bankareikninga eingreiðslu vegna desemberuppbótar. Greiddar eru tæpar 260 milljónir til 13.555 einstaklinga.

13.12.2010

Atvinnuleysi í nóvember var 7,7%

Skráð atvinnuleysi í nóvember 2010 var 7,7%, en að meðaltali voru 12.363 atvinnulausir í nóvember og eykst atvinnuleysi um 0,2 prósentustig frá október, eða um 301 manns að meðaltali.   

9.12.2010

Félagsvernd minnst á Íslandi en atvinnuţátttaka mest

Ritið Social tryghed i de nordiske lande 2008/09, sem gefið er út af Norrænu hagskýrslunefndinni á sviði félags- og tryggingarmála (Nordisk Socialstatistik Komité (NOSOSKO)) er komið út. Eins og síðustu tvö ár kemur ritið eingöngu út í rafrænni útgáfu.

2.12.2010

Hópuppsagnir í nóvember 2010

Vinnumálastofnun bárust 2 tilkynningar um hópuppsagnir í nóvembermánuði 2010. Um er að ræða tilkynningar frá fyrirtækjum í fiskvinnslu.  Heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 43 manns.

1.12.2010

Atvinnuleitendur fá desemberuppbót

Atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins fá eingreiðslu í desember samkvæmt tillögu Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, sem ríkisstjórnin samþykkti í morgun (1. des). Full uppbót er 44.857 krónur en greiðsla hvers og eins reiknast í hlutfalli við rétt hans til atvinnuleysisbóta árið 2010. 

1.12.2010

Atvinnuleitendur fá desemberuppbót

Atvinnuleitendur sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins fá eingreiðslu í desember samkvæmt tillögu Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, sem ríkisstjórnin samþykkti í morgun.

25.11.2010

Nýr vefur Vinnumálastofnunar

Vefur Vinnumálastofnunar hefur nú verið opnaður í nýrri og endurbættri mynd. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar sem miða að því að bæta enn betur þjónustu við alla þá sem eiga erindi við Vinnumálastofnun.

17.11.2010

Hvađ hvetur, hvađ letur?

Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins verður haldinn fimmtudaginn 18. nóvember á Hótel Hilton Nordica.

11.11.2010

Atvinnuleysi í október 2010 var 7,5%

Skráð atvinnuleysi í október var 7,5% og jókst um 0,4 prósentustig frá september.  Að meðaltali voru 12.062 atvinnulausir í október og fjölgaði um 515 manns.

2.11.2010

Hópuppsagnir í október 2010

Vinnumálastofnun bárust 5 tilkynningar um hópuppsagnir í október 2010, þar sem 184 manns var sagt upp. 

 

28.10.2010

Ársfundur Vinnumálastofnunar 2010

Ársfundur Vinnumálastofnunar verður haldinn í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, föstudaginn 29. oktbóber nk.

12.10.2010

Atvinnuleysi í september 7,1%

Skráð atvinnuleysi í september 2010 var 7,1%, en að meðaltali 11.547 manns voru atvinnulausir í september og minnkar atvinnuleysi um 0,2 prósentustig frá ágúst, eða um 549 manns að meðaltali.

4.10.2010

Hópuppsagnir í september2010

Vinnumálastofnun barst 1 hópuppsögn í september 2010 þar sem sagt var upp 21 starfsmanni.  

30.9.2010

Breyting á greiđslukerfi atvinnuleysistrygginga

Vinnumálastofnun mun taka upp nýtt og endurbætt greiðslukerfi atvinnuleysistrygginga 1. október. Með nýju greiðslukerfi verða atvinnuleysistryggingar reiknaðar út frá mánuðum í stað daga eins og verið hefur og framsetning upplýsinga á greiðsluseðli verður skýrari. Er það von Vinnumálastofnunar að breytingin verði til þess að gera útreikning atvinnuleysistrygginga auðskiljanlegri fyrir viðskiptavini. Þar sem breytingin er umsvifamikil biður stofnunin viðskiptavini að sýna skilning á því ef upp kunna að koma villur í greiðslum.

30.9.2010

Breyting á greiđslukerfi atvinnuleysistrygginga

Vinnumálastofnun mun taka upp nýtt og endurbætt greiðslukerfi atvinnuleysistrygginga 1. október 2010. Með nýju greiðslukerfi verða atvinnuleysistryggingar reiknaðar út frá mánuðum í stað daga eins og verið hefur og framsetning upplýsinga á greiðsluseðli verður skýrari. Er það von Vinnumálastofnunar að breytingin verði til þess að gera útreikning atvinnuleysistrygginga auðskiljanlegri fyrir viðskiptavini. Þar sem breytingin er umsvifamikil biður stofnunin viðskiptavini að sýna skilning á því ef upp kunna að koma villur í greiðslum.

 

13.9.2010

Atvinnuleysi í ágúst 7,3%

Skráð atvinnuleysi í ágúst 2010 var 7,3 % en að meðaltali 12.096 manns voru atvinnulausir í ágúst og minnkar atvinnuleysi um 3,8% frá júlí, eða um 473 manns að meðaltali.

8.9.2010

Fjölsmiđja fyrir ungt fólk stofnuđ á Suđurnesjum

Stofnun Fjölsmiðju fyrir ungt fólk á aldrinum 16 - 24 ára  á Suðurnesjum

Stofnfundur Fjölsmiðju á Suðurnesjum var haldin 7. september sl. í húsnæði Suðurnesjadeildar Rauða krossins.  Undanfarna mánuði hefur á vegum Vinnumálastofnunar, Rauða kross Íslands og sveitarfélaganna á Suðurnesjum verið unnið að undirbúningi þessa en ráðgert er að Fjölsmiðjan starfi með mjög svipuðum hætti og fyrri Fjölsmiðjur sem áður hafa verið stofnaðar þ.e. í Kópavogi og á Akureyri.

2.9.2010

Hópuppsagnir í ágúst 2010

Vinnumálastofnun bárust 2 tilkynningar um hópuppsagnir í ágúst 2010 þar sem alls var sagt upp 45 manns. 

 

20.8.2010

Menntunarúrrćđi innan tćknigreina

Vinnumálastofnun vinnur í samstarfi við Samtök iðnaðarins, háskóla landsins og tækni- og hugverkafyrirtæki  að átaki í menntun einstaklinga í tækni- og raungreinum.  Mikil eftirspurn  er eftir  slíkri menntun og á hún á eftir að aukast enn frekar á næstu árum.  T.d. er  gert er ráð fyrir að það þurfi um 3.000 nýja tæknimenntaða einstaklinga á íslenskan vinnumarkað innan hugverkaiðnaðar á næstu þremur árum.

Lesa nánar um úrræðið

13.8.2010

Atvinnuleysi 7,5% í júlí

Skráð atvinnuleysi í júlí var 7,5%, en að meðaltali voru 12.569 atvinnulausir í júlí og minnkar atvinnuleysi um 3,2% frá júní, eða um 419 að meðaltali.  Sjá nánar:

12.8.2010

Útborgunardagar atvinnuleysisbóta fyrir áriđ 2010

 Upplýsingar um útborgunardaga atvinnuleysisbóta.

12.8.2010

Skerđing bóta vegna greiđslna úr séreigna lífeyrissjóđum?

Ef þú ert 60 ára eða eldri og hefur fengið greiðslur úr séreignarlífeyrissjóði á sama tíma og þú varst á atvinnuleysisskrá á tímabilinu 1. mars 2009 til dagsins í dag, og atvinnuleysisbætur þínar hafa verið skertar af þeim sökum, gætir þú átt rétt á endurgreiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nemur fjárhæð skerðingar

4.8.2010

Hópuppsagnir í júlí 2010

Alls bárust Vinnumálastofnun 2 hópuppsagnir í júlí, báðar í byggingagreinum, þar sem 89 manns var sagt upp störfum.

Sjá nánar:

4.8.2010

Átak gegn langtímaatvinnuleysi


Nú frá 1. ágúst hleypir Vinnumálastofnun af stað sérstöku átaki gegn afleiðingum langtímaatvinnuleysis undir yfirskriftinni ÞOR - þekking og reynsla.  Markmiðið með átakinu er að virkja þann hóp einstaklinga sem hafa verið atvinnulausir í tólf mánuði eða lengur til þátttöku í fjölbreytilegum vinnumarkaðsúrræðum. Á næstu mánuðum verða allir þessir einstaklingar kallaðir til ráðgjafafundar á vegum Vinnumálastofnunar og þeim kynntir með öflugum og markvissum hætti tækifæri og skyldur þeirra til þátttöku úrræðum sem eiga að auka möguleika þeirra í atvinnuleitinni. Um 4000 manns hafa nú verið atvinnulausir í eitt ár eða lengur og Vinnumálastofnun hefur sett sér það markmið að nálgast þá alla fyrir 1. nóvember nk.

21.7.2010

Ert ţú 60 ára eđa eldri og hefur fengiđ greiđslur úr séreignarlífeyrissjóđi?

Vinnumálastofnun vill vekja athygli á því að Alþingi hefur með lögum nr. 70/2010, sem tóku gildi í júní sl., gert breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar. Breytingar þessar fela meðal annars í sér að þeir sem eru 60 ára eða eldri og hafa fengið skertar greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði á tímabilinu 1. mars 2009 til dagsins í dag, vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóði, geta átt rétt á endurgreiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nemur fjárhæð skerðingar.

15.7.2010

Fimm tilkynningar um hópuppsagnir i júní 2010

Alls bárust Vinnumálastofnun fimm tilkynningar um hópuppsagnir í júnímánuði 2010. Um er að ræða fjórar tilkynningar frá fyrirtækjum í byggingariðnaði og ein frá fyrirtæki í fiskvinnslu. Heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 177 manns. Þrjár uppsagnir eru frá fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og ná þær til 105 manns, ein frá fyrirtæki á Vestfjörðum (13 manns) og ein frá fyrirtæki á Suðurlandi (59 manns).

12.7.2010

Atvinnuleysi 7,6% í júní

Skráð atvinnuleysi í júní 2010 var 7,6% en að meðaltali 12.988 manns voru atvinnulausir í júní og minnkar atvinnuleysi um 6,4% frá maí, eða um 887 manns að meðaltali.

5.7.2010

Átaksverkefniđ 856 NÝ STÖRF

Um síðustu áramót var gerð breyting á lögum um atvinnuleysistryggingar þannig að námsmenn á  milli anna höfðu ekki rétt til atvinnuleysisbóta yfir sumartímann. Ákveðið var að verja 250 milljónum úr atvinnuleysistryggingasjóði til að skapa sumarstörf fyrir þessa mámsmenn  í samvinnu við stofnanir ríkisins og sveitarfélög  í gegnum átaksverkefnið 856 Ný störf.

11.6.2010

Atvinnuleysi 8,3% í maí 2010

Skráð atvinnuleysi í maí 2010 var 8,3% en að meðaltali 13.875 manns voru atvinnulausir í maí og minnkar atvinnuleysi um 5,4% frá apríl, eða um 794 manns að meðaltali.  Sjá  nánar skýrslu um  stöðu á vinnumarkaði í maí 2010. 

 

4.6.2010

Styrkir vegna starfsmenntunar 2010

 

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu.  Til úthlutunar eru um 55 milljónir króna.  Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi.

2.6.2010

Alls 2 hópuppsagnir í maí 2010

Tilkynnt var um 2 hópuppsagnir í maí 2010 þar sem alls 27 manns var sagt upp.  Sumir þeirra verða endurráðnir. 

Sjá nánar: 

21.5.2010

Frí sund- og bókasafnskort fyrir atvinnuleitendur á ţjónustumiđstöđvum Reykjavíkurborgar

Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einróma á fundi sínum þann 20. apríl sl. að atvinnuleitendur í Reykjavík og fólk sem nýtur fjárhagsaðstoðar til framfærslu fái frían aðgang að sundstöðum borgarinnar og frí notendakort í Borgarbókasafni Reykjavíkur og útibúum þess til ársloka 2010.

20.5.2010

Stađfesting á atvinnuleit - tilkynning frá Vinnumálastofnun

Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að Vinnumálastofnun aflar upplýsinga um rafrænar staðfestingar á atvinnuleit, m.a. með tilliti til upprunalands staðfestingar.    Samkvæmt c-lið 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi.  Heimilt er að veita undanþágu frá ofangreindum skilyrðum sbr. VIII. kafla laganna.

12.5.2010

Atvinnuleysi 9% í apríl

Skráð atvinnuleysi í apríl 2010 var 9% en að meðaltali 14.669 manns voru atvinnulausir og minnkar atvinnuleysi um 2,6% frá mars, eða um 390 manns að meðaltali. Sjá nánar skýrslu um stöðu á vinnumarkaði í apríl 2010.

11.5.2010

Atvinnumiđstöđ Hafnarfjarđar opnar

Atvinnumiðstöð Hafnarfjarðar  verður opnuð þann 11. maí kl. 16:00 að Strandgötu 4.  Þar verður sinnt  svæðisbundinni vinnumiðlun, ráðgjöf og annarri þjónustu við atvinnuleitendur í Hafnarfirði. Þetta þróunarverkefni byggist á samstarfs- og þjónustusamningi milli Vinnumálastofnunar og Hafnarfjarðarbæjar með aðild  Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði. 

4.5.2010

Nám á atvinnuleysisbótum á sumarönn 2010

Vinnumálastofnun vekur athygli á því að samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar hafa námsmenn sem eru á milli anna í námi eða að fara á milli skólastiga ekki rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Atvinnuleitendum sem fá greiddar atvinnuleysistryggingar hjá Vinnumálastofnun er því ekki heimilt að stunda nám á sumarönn.

15.4.2010

Atvinnuleysi 9,3% í mars

Skráð atvinnuleysi í mars 2010 var 9,3% eða að meðaltali 15.059 manns og breytist atvinnuleysi lítið frá febrúar, fjölgar um 33 manns að meðaltali.  Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 8,9% eða 14.546 að meðaltali.

7.4.2010

Hópuppsagnir í mars 2010

Vinnumálastofnun bárust 3 hópuppsagnir í mars 2010, þar sem sagt var upp 57 manns.  Um er að ræða fyrirtæki í fjármálastarfsemi, mannvirkjagerð og verslunarstarfsemi.

30.3.2010

30 milljónir í fjölbreytt verkefni kvenna

Þann 26.mars síðastliðinn úthlutaði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra 30 milljónum í styrki til atvinnumála kvenna í Hugmyndahúsi háskólanna.   55 styrkhafar hlutu styrki að þessu sinni en umsóknir voru 308 og hafa aldrei verið fleiri.  Styrkir til atvinnumála kvenna hafa verið veittir frá árinu 1991 og á hverju ári hafa um 25 milljónum verið úthlutað.

25.3.2010

Úthlutun styrkja til atvinnumála kvenna

Þann 26.mars næstkomandi mun Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, úthluta styrkjum til atvinnumála kvenna en styrkjum þessum hefur verið úthlutað frá árinu 1991 til fjölbreyttra verkefna kvenna um land allt.

18.3.2010

Vinnumálastofnun semur viđ Íţrótta- og Ólympíusamband Íslands

Vinnumálastofnun hefur samið við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands um að skipuleggja og stjórna sjálfboðaliðastarfi fyrir um 150 unga atvinnuleitendur . Samningurinn er hluti af átaki félags- og tryggingarmálaráðuneytisins og Vinnumálastofnunar í tengslum við átaksverkefnið Ungt fólk til athafna, sem miðar að því að koma á fót um 2.200 menntunar- og starfstengdum vinnumarkaðsúrræðum fyrir unga atvinnuleitendur á þessi ári.

10.3.2010

Atvinnuleysi 9,3% í febrúar

Skráð atvinnuleysi í febrúar 2010 var 9,3% eða að meðaltali 15.026 manns og eykst atvinnuleysi um 2,2% að meðaltali frá janúar eða um 321 manns.  Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 8,2% eða 13.276 að meðaltali.

2.3.2010

Hópuppsagnir í febrúar 2010

Vinnumálastofnun bárust 3 hópuppsagnir í febrúar 2010, þar sem sagt var upp 39 manns.  Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð, og verslun.

1.3.2010

Vinnumálastofnun og Hafnarfjarđarbćr undirrita samstarfssamning

Stofnun atvinnumiðstöðvar í  Hafnarfirði er þróunarverkefni byggt á samstarfs- og þjónustusamningi milli Vinnumálastofnunar og Hafnarfjarðarbæjar með aðild Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði. Atvinnumiðstöðin mun sinna svæðisbundinni vinnumiðlun, ráðgjöf og annarri þjónustu við atvinnuleitendur í Hafnarfirði.

26.2.2010

Vinnumálastofnun í öđru sćti í Lífshlaupinu 2010

 Í keppni Íþróttasambands Íslands „Lífshlaupið 2010"  hlaut Vinnumálastofnun önnur verðlaun í hlutfalli daga(10,83) og þriðju verðlaun fyrir hlutfall mínútna (716,02)  í  hópi fyrirtækja 150-399 starfsmanna.

24.2.2010

Fyrirlestur á vegum Rannsóknarstofu í Vinnuvernd

Næstkomandi föstudag 26. febrúar munu sérfræðingar Vinnumálastofnunar flytja fyrirlestra á vegum Rannsóknarstofu í vinnuvernd um atvinnuleysi og horfur á vinnumarkaði, og um markmið átaksins Ungt fólk til athafna.

10.2.2010

Atvinnuleysi 9% í janúar 2010

Skráð atvinnuleysi í janúar 2010 var 9% eða að meðaltali 14.705 manns og eykst atvinnuleysi um 6,7% að meðaltali frá desember eða um 929 manns.  Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 6,6%, eða 10.456 manns að jafnaði.

2.2.2010

Hópuppsagnir í janúar 2010

Vinnumálastofnun bárust 4 hópuppsagnir í janúar 2010 þar sem sagt var upp 60 manns.  Um er að ræða fyrirtæki í mannvirkjagerð og upplýsinga- og útgáfustarfsemi. 

18.1.2010

Styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar

Nú eru styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar en það er Félags- og tryggingamálaráðherra sem veitir þá ár hvert. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar.

14.1.2010

Atvinnuleysi í desember 2009 var 8,2%

Skráð atvinnuleysi í desember 2009 var 8,2% eða að meðaltali 13.776 manns og eykst atvinnuleysi um 3,1% að meðaltali frá nóvember eða um 419 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 4,8% eða 7.902 manns.

12.1.2010

Evrópusamvinna á Háskólatorgi 14. janúar 2010

 

Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi verður haldin á Háskólatorgi fimmtudaginn 14. janúar 2010 kl. 15-18. Þar gefst færi á að hitta fulltrúa evrópskra samstarfsáætlana á Íslandi og kynna sér möguleika á styrkjum og samstarfi á öllum sviðum menntamála, rannsókna, vísinda, nýsköpunar, menningar og atvinnulífs.

8.1.2010

Breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar

Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar og tóku breytingarnar gildi frá og með 1. janúar síðastliðnum. Breytingarnar snúa að nokkrum þáttum s.s. sjálfstætt starfandi einstaklingum, námsmönnum, tilfallandi vinnu og fl.

5.1.2010

Hópuppsagnir í desember og á árinu 2009

Vinnumálastofnun bárust 5 hópuppsagnir í desembermánuði þar sem sagt var upp 167 manns. Um er að ræða fyrirtæki í fiskvinnslu, iðnaði, verslun, flutningastarfsemi og upplýsinga- og útgáfustarfsemi.

Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborđ

til baka Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu