Beint á leiđarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiđarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíđu

Fréttir vinnumálastofnunar

29.12.2011

Gildistími ákvćđa til bráđabirgđa V og VI í lögum um atvinnuleysistryggingar fellur niđur um nćstu áramót.

Vinnumálastofnun vill benda á að að gildistími ákvæða til bráðabirgða V og VI í lögum um atvinnuleysistryggingar fellur niður um næstu áramót.

Brottfall ákvæðisins felur það í sér að allir sem notið hafa greiðslna úr Atvinnuleysistryggingasjóði skv. þeim eru afskráðir frá og með áramótum. Það á við um þá sem hafa fengið greiddar atvinnuleysisbætur í minnkuðu starfshlutfalli (50% - 70%), eru í hlutastarfi (50%70%) og eru sjálfstætt starfandi með heimild til að hafa opinn rekstur í þrjá mánuði frá umsóknardegi um atvinnuleysisbætur (útborgun 1. Janúar 2012 verður óbreytt).

23.12.2011

Gleđileg jól og farsćlt komandi ár

Vinnumálastofnun óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

 

Vetrarmynd

 

Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða.

12.12.2011

Breyttur opnunartími hjá Fćđingarorlofssjóđi í Kringlunni

Breytingar hafa orðið á opnunartíma Fæðingarorlofssjóðs í Kringlunni en afgreiðslan   er nú opin alla virka daga  frá kl. 09 - 13.

 

New opening hours of the Childbirth leave fund in Kringlan 1.
The reception of the Childbirth leave fund in Kringlan is now open Monday - Friday, from 9 to 1 o'clock.

 

Zmiana w godzinach otwarcia Funduszu Urlopu Macierzyńskiego w Kringlanie.
Fundusz Urlopu Macierzyńskiego przyjmuje interesantów w dni robocze w godzinach od 9. do 13.

 

12.12.2011

Atvinnuleysi í nóvember var 7,1%

Skráð atvinnuleysi í nóvember 2011 var 7,1%, en að meðaltali voru 11.348 atvinnulausir í nóvember og fjölgaði atvinnulausum um 430 að meðaltali frá október eða um 0,3 prósentustig.

2.12.2011

Hópuppsagnir í nóvember

Vinnumálastofnun bárust 2 tilkynningar um hópuppsagnir í nóvember 2011.  Um er að ræða tilkynningu um uppsagnir í fjármálastarfsemi  og iðnaði.  Heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 72 manns. 

22.11.2011

Atvinnuleitendur fá greidda desemberuppbót

Atvinnuleitendur fá greidda desemberuppbót eins og í fyrra.  Reglurnar eru þær sömu, þ.e. þeir sem staðfesta atvinnuleit frá 20. nóvember til 3. desember og hafa verið á 100% bótum í 10 mánuði á árinu 2011 fá greitt að fullu kr. 63.457,- .   Þeir sem hafa verið á hlutabótum fá greiðslu í hlutfalli við bótahlutfallið og þeir sem hafa verið skemur en 10 mánuði frá greitt í réttu hlutfalli við þann tíma sem þeir hafa verið á bótum. Einungis þeir sem staðfesta atvinnuleit   á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember eiga rétt á desemberuppbót.

Greiðsludagur hefur verið ákveðinn miðvikudagur 7. desember n.k.

 

21.11.2011

Atvinnuleitendur á Suđurnesjum!

Viltu vinna 10.000 kr gjafabréf  í Kringluna?  Þú átt möguleika á því ef þú svarar könnun frá Capacent Gallup sem send hefur verið á netfangið þitt.  Markmiðið með könnuninni er að koma til móts við þarfir/óskir atvinnuleitenda varðandi vinnumarkaðsúrræði og að kanna viðhorf og líðan þeirra. Til að niðurstöður nýtist sem best er mikilvægt að sem flestir svari könnuninni.

15.11.2011

Ársfundur Vinnumálastofnunar 2011

Ársfundur Vinnumálastofnunar verður haldinn í Háskólanum í  Reykjavík (fundarsalur M101),  Menntavegi 1, Reykjavík,  miðviku­daginn 16. nóvember nk.  Fundurinn stendur frá kl. 14:00 – 16:00. Allir velkomnir

 

11.11.2011

Atvinnuleysiđ í október var 6,8%

Skráð atvinnuleysi í október 2011 var 6,8%, en að meðaltali voru 10.918 atvinnulausir í október og fjölgaði atvinnulausum um 159 að meðaltali eða um 0,2 prósentustig.

2.11.2011

Hópuppsagnir í október

Vinnumálastofnun bárust 2 tilkynningar um hópuppsagnir í október 2011.  Heildarfjöldi þeirra sem sagt var upp var 67 manns.

13.10.2011

Atvinnuleysiđ var 6,6% í september

Skráð atvinnuleysi í september 2011 var 6,6% en að meðaltali voru 10.759 atvinnulausir í september og fækkaði atvinnulausum um 535 að meðaltali frá ágúst eða um 0,1 prósentustig.

 

7.10.2011

Atvinnutćkifćri í Evrópu

Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 14. október kl. 17:00 – 20:00 og laugardaginn 15. október kl. 12:00 – 18:00. Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða beint og milliliðalaust við evrópska atvinnurekendur.

28.9.2011

Komdu hugmynd í framkvćmd

Helgina 30. september til 2. október fer fram Atvinnu- og nýsköpunarhelgin á Suðurnesjum. Viðburðurinn er haldinn í þeim tilgangi að stuðla að því að góðar hugmyndir verði að veruleika og það kostar ekkert að taka þátt.

Þátttakendur mæta á staðinn, með eða án hugmyndar, og fá innblástur og leiðsögn við að byggja upp viðskiptahugmynd sem gæti í framtíðinni orðið að fullvaxta fyrirtæki og atvinnutækifæri.

22.9.2011

Svanni - lánatryggingasjóđur kvenna tekur til starfa

Svanni- lánatryggingasjóður kvenna verður formlega settur á laggirnar á morgun föstudaginn 23. september. Svanni veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir og er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Sjóðurinn veitir helmin ábyrgðar á móti banka.  

Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu og gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki. Einnig er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.  Hægt verður að sækja um lánatryggingar á heimasíðu  Svanna frá þeim degi og er umsóknarfrestur til og með 19. október í þessari fyrstu umsóknarlotu.  Nánari upplýsingar um verkefnið er hægt að nálgast hér.

20.9.2011

Breytingar á starfstengdum vinnumarkađsúrrćđum

Alþingi samþykkti í byrjun september 2011 breytingu á  lögum um  starfstengd vinnumarkaðsúrræði hjá Vinnumálastofnun. Frá og með 2. september  telja starfstengd vinnumarkaðsúræði eins og  starfsþjálfun, reynsluráðning, átaksverkefni og starfsorkan  ekki af bótarétti atvinnuleitanda.  Þannig að bótaréttur þessa fólks er í raun frystur á meðan á úrræðinu stendur. Allir þeir sem eru í vinnumarkaðsúrræðum eru því afskráðir og þurfa ekki að stimpla sig á meðan þeir eru í vinnu.

Ef starfsmaðurinn er atvinnulaus eftir að  samningstíma lýkur  er nauðsynlegt að koma með vottorð vinnuveitenda  og skrá sig aftur  hjá Vinnumálastofnun.

16.9.2011

Breyting á viđtalstímum hjá Vinnumálastofnun á höfuđborgarsvćđinu

Breyting verður á viðtalstímum hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu frá og með 19. september nk. Ráðgjafar veita viðtöl mánudaga til föstudaga milli klukkan  9-12. Panta þarf tíma fyrirfram með því að hringja í síma 515 4800 eða senda tölvupóst á vidtal@vmst.is

Opnir viðtalstímar eru eftir hádegi frá kl. 13-15 á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.

12.9.2011

Atvinnuleysi í ágúst var 6,7%

Skráð atvinnuleysi í ágúst 2011 var 6,7% en að meðaltali voru 11.294 manns atvinnulausir í ágúst og fækkaði atvinnulausum um 129 að meðaltali frá júlí.

2.9.2011

Hópuppsagnir í ágúst 2011

Engar hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í ágúst.

1.9.2011

Ný tćkifćri fyrir fólk í atvinnuleit

nyskopun2Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Vinnumálastofnun hafa skrifað undir samstarfssamning,  sem miðar að því að skapa aukin tækifæri fyrir fólk í atvinnuleit með fræðslu, handleiðslu og virkri eftirfylgni við þróun eigin viðskiptatækifæra.  Þetta nýja úrræði tekur gildi frá og með 1. september 2011  og er, að mati samningsaðila, nauðsynleg viðbót við þau úrræði, sem þegar eru í boði á markaðnum.

12.8.2011

Atvinnuleysi var 6,6% í júlí

Skráð atvinnuleysi í júlí var 6,6% en að meðaltali 11.423 manns voru atvinnulausir í júlí og fækkaði atvinnulausum um 281 að meðaltali frá júní eða um 0,1 prósentustig.

3.8.2011

Hópuppsagnir í júlí 2011

Engar hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í júlí 2011.

12.7.2011

Atvinnuleysiđ 6,7% í júní

Skráð atvinnuleysi í júní 2011 var 6,7% en var 7,4% í maí og 8,1% í apríl. Að meðaltali voru 11.704 manns atvinnulausir í júnímánuði og fækkaði atvinnulausum um 849 að meðaltali frá maí eða um 0,7 prósentustig.

7.7.2011

Nám er vinnandi vegur - ćtlar ţú ađ vera međ?

Umsóknarfrestur  um þátttöku í átakinu Nám er vinnandi vegur rennur út 5. ágúst næstkomandi. Ef þú ert á atvinnuleysisskrá og uppfyllir skilyrði um þátttöku svo sem að hafa verið komin/n á atvinnuleysisskrá fyrir 1. mars 2011 og ert að fara í fullt nám í haust þá gætir þú átt rétt á að nýta þér þetta tækifæri.

Ef þú ert búin/n að sækja um nám í framhaldsskóla eða háskóla og ert komin/n með staðfestingu um skólavist þá skaltu snúa þér til ráðgjafa Vinnumálastofnunar fyrir 5. ágúst og hafa staðfestingu um skólavistina með þér.


4.7.2011

Fjórar hópuppsagnir í júnímánuđi

Alls bárust Vinnumálastofnun fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í júnímánuði 2011. Samtals er sagt upp 123 einstaklingum, sem koma til með að missa vinnuna á tímabilinu ágúst 2011 til janúar 2012, eftir lengd uppsagnarfrests. Tilkynningarnar eru frá fyrirtækjum í verslun, fiskvinnslu, fræðslustarfsemi og menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi. Þrjár uppsagnir eru frá fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og ná þær til 112 manns og ein frá fyrirtæki á Vestfjörðum, 11 manns.

14.6.2011

Atvinnuleysi í maí var 7,4%

Skráð atvinnuleysi í maí 2011 var 7,4%, en að meðaltali voru 12.553 manns atvinnulausir í maí og fækkaði atvinnulausum um 709 að meðaltali frá apríl eða um 0,7 prósentustig.

7.6.2011

Atvinnuleysisbćtur hćkka

Atvinnuleysistryggingar hækka frá og með 1. júní 2011. Grunnatvinnuleysisbætur hækka um 12.000 kr. sem svarar til krónutöluhækkunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, þær  verða því kr. 161.523 á mánuði í stað kr. 149.523 áður. Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta hækkar einnig og verður að hámarki kr. 254.636  á mánuði.

 

Jafnframt verður greidd út eingreiðsla til þeirra atvinnuleitenda sem hafa verið tryggðir á tímabilinu 20. febrúar til 19. maí s.l. Þeir einstaklingar sem hafa verið að fullu tryggðir á tímabilinu munu fá greiddar kr. 50.000 í eingreiðslu. Atvinnuleitendur sem eru hlutfallslega tryggðir eða hafa ekki staðfest atvinnuleit á öllu tímabilinu 20. febrúar til 19. maí sl. fá greitt í hlutfallslega við bótarétt og lengd atvinnuleitar.  Eingreiðslan verður greidd 10. júní nk.

3.6.2011

Hópuppsagnir í maí 2011

Vinnumálastofnun bárust 4 tilkynningar um hópuppsagnir í maí 2011.  Um er að ræða tilkynningar um uppsagnir í mannvirkjagerð, upplýsingastarfsemi, hugbúnaðargerð og fiskvinnslu.  Heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 81manns. 

1.6.2011

Unniđ ađ hćkkun bóta

Í maí voru undirritaðir kjarasamningar á almennum markaði til þriggja ára. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna samninganna kom m.a. fram eftirfarandi;

Stjórnvöld munu endurskoða bætur almannatrygginga með hliðsjón af niðurstöðum kjarasamninga milli ASÍ og SA, þannig að lífeyrisþegar og atvinnulausir njóti hliðstæðra kjarabóta og samið verður um í kjarasamningum. Unnið er að nánari útfærslu þessarar yfirlýsingar í Velferðarráðuneytinu og Tryggingastofnun Ríkisins. Sameiginleg kynning velferðarráðherra, Vinnumálastofnunar og Tryggingastofnunar á áhrifum þessarar kjarabóta verður í upphafi næstu viku.

1.6.2011

Lánatryggingasjóđur kvenna endurvakinn

Þann 8.mars síðastliðinn var skrifað undir samkomulag eigenda Lánatryggingasjóðs kvenna um starfrækslu sjóðsins til ársins 2014 en eigendur hans eru velferðarráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og Reykjavíkurborg.

27.5.2011

Framhaldsskólarnir opnađir - 1000 ný námstćkifćri fyrir atvinnuleitendur

Öllum umsækjendum um nám í framhaldsskóla að 25 ára aldri sem uppfylla skilyrði verður tryggð skólavist í haust. Einnig verða sköpuð ný námstækifæri fyrir allt að 1.000 atvinnuleitendur haustið 2011. Ef þú hefur áhuga á að fara í framhaldsskóla  þá er umsóknarfrestur til 31. maí nk. Hægt er að sækja um nám í gegnum: http://menntagatt.is/innritun/

17.5.2011

Mikil ađsókn á námsstefnuna

Mikil aðsókn var að námsstefnunni Skólinn opnar dyr sem haldin var í Laugardalshöll 12. maí sl.  Um var að ræða kynningu á námstækifærum í framhalds- og háskólum fyrir ungt fólk og atvinnuleitendur.

nam3

16.5.2011

Skólinn opnar dyr - Námskynning á Suđurnesjum nk. miđvikudag

Nám er vinnandi vegurOpin námskynning verður á Suðurnesjum miðvikudaginn 18. maí frá kl. 14-18 í Stapanum Reykjanesbæ .Þar verður kynning á námsmöguleikum í framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og fullorðinsfræðslu.

12.5.2011

Atvinnuleysi í apríl var 8,1%

Skráð atvinnuleysi í apríl 2011 var 8,1%, en að meðaltali voru 13.262 manns atvinnulausir í apríl og fækkaði atvinnulausum um 495 að meðaltali frá mars.

10.5.2011

Skólinn opnar dyr

FimmNám er vinnandi vegurtudaginn 12. maí verður opin námskynning í Laugardalshöll frá 11-16. Þar verður kynning á námsmöguleikum í framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og fullorðinsfræðslu.

Ráðgjafar frá Vinnumálastofnun og skólunum aðstoða þig við að finna heppilegustu leiðir hvers og eins til að finna heppilegustu leiðirnar til að bæta menntun, auka hæfni og fjölga atvinnumöguleikum.

Kynningin er öllum opin.

5.5.2011

Ţjónusta ráđgjafa og vinnumiđlunar verđur lokuđ föstudaginn 6. maí.

Ráðgjafadeildir og vinnumiðlun Vinnumálastofnunar verða lokaðar á öllu landinu  föstudaginn 06. maí vegna starfsdags. Aðrar deildir verða opnar.

3.5.2011

Hópuppsagnir í apríl 2011

Vinnumálastofnun bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í apríl 2011.  Um er að ræða tilkynningu um uppsagnir í kennslu/stjórnun og við hugbúnaðargerð.  Heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 73 manns.Gert er ráð fyrir að þeim sem sagt hefur verið upp í kennslu/stjórnun standi til boða önnur störf.

15.4.2011

900 sumarstörf fyrir námsmenn og atvinnuleitendur

Velferðaráðuneytið og Vinnumálastofnuna standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum á vegum stofnana ríkisins og sveitarfélaga,  fyrir námsmenn og atvinnuleitendur.  Um 900 störf verða auglýst í sérstöku auglýsingablaði sem dreift verður nú um helgina. Jafnframt verður að finna upplýsingar um störfin á heimasíðum allra sveitarfélaganna sem taka þátt í verkefninu og á heimasíðu Vinnumálastofnunar: vmst.is

12.4.2011

Íslenskir atvinnuleitendur fjársjóđur fyrir norskt atvinnulíf

Mikil eftirspurn eftir íslensku starfsfólki í Noregi

„Finnur þú ekki rétta fólkið heima í Noregi? Lausnin gæti verið að ráða Íslending“ NAV systurstofnun Vinnumálastofnunar í Noregi kynnti væntanlega starfakynningu sem haldin verður hér á landi um næstu helgi með þessum hætti. Einnig var talað um Ísland sem fjársjóðskistu fyrir norskt atvinnulíf þar sem hér sé fjöldi fólks sem býr yfir sérfræðikunnáttu, mikilli hæfni og reynslu og sé tilbúið að flytja sig um set. Íslendingar eigi auðvelt með að aðlagast norsku samfélagi vegna þess hve lík menning og tungumál landana eru og einnig sé vinnusiðferði íslendinga almennt mjög gott. Ljóst er að norsk fyrirtæki eru mjög áhugasöm um að ráða til sín Íslendinga um þessar mundir.

12.4.2011

Atvinnuleysi í mars 8,6%

Skráð atvinnuleysi í mars 2011 var 8,6%, en að meðaltali 13.757 manns voru atvinnulausir í mars og breyttist hlutfallstala atvinnuleysis ekki frá febrúar.

8.4.2011

Lokađur sími á greiđslustofunni á Skagaströnd föstud. 8. apríl og mánud. 11. apríl

Ekki er unnt að svara í síma á greiðslustofunni á Skagaströnd föstudaginn 8. apríl og mánudaginn 11. apríl. Þeir sem þurfa að fá upplýsingar sem lúta að þjónustunni þar eru beðnir um að hafa samband við þjónustuver VMST í síma 515-4800 þessa daga og verður reynt að leysa úr erindum þeirra þar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að skapa.

8.4.2011

Veikindaréttur í atvinnuleysistryggingakerfinu

Þann 1. mars s.l. tóku gildi lög sem veita þeim sem njóta atvinnuleysistrygginga rétt til greiðslna í veikindum. Hinn tryggði á rétt á að fá greidda fimm daga á hverju tólf mánaða tímabili eftir að hafa verið samtals fimm mánuði í kerfinu. Heimilt er að nýta réttinn í tvennu lagi, þ.e. einungis er um tvö skipti á hverju tólf mánaða tímabili að ræða sem unnt er að tilkynna veikindi og fá þá daga greidd.

4.4.2011

Hópuppsagnir í mars 2011

Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsagnir í mars, þar sem sagt var upp 15 manns.  Um er að ræða aðila í heilbrigðisþjónustu. Þeir starfsmenn sem sagt hefur verið upp, koma til með að missa vinnuna í júlí og ágúst 2011.  Ástæða uppsagnanna er endurskipulagning vegna niðurskurðar á fjárveitingum.

 

21.3.2011

Öll ţjónusta Vinnumálastofnunar á höfuđborgarsvćđinu í Kringlunni 1

Öll þjónusta Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu er nú á einum stað í Kringlunni 1 í Reykjavík.

18.3.2011

Lokađ í dag á Engjateigi vegna flutninga

Lokað er í dag hjá þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Engjateigi vegna flutninga í nýtt húsnæði í Kringlunni 1. Opnað verður á mánudaginn 21. mars kl. 9 í Kringlunni.

11.3.2011

Atvinnuleysi í febrúar 8,6%

Skráð atvinnuleysi í febrúar 2011 var 8,6% en að meðaltali 13.772 manns voru atvinnulausir í febrúar og eykst atvinnuleysi um 0,1 prósentustig frá janúar eða um 314 manns að meðaltali.

8.3.2011

Lánatryggingasjóđur kvenna endurvakinn

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í dag samkomulag um lánatryggingasjóð kvenna. Hlutverk sjóðsins er að styðja konur til þátttöku og nýsköpunar í atvinnulífinu með veitingu ábyrgða á lánum.

3.3.2011

Lokađ vegna flutninga

Vegna flutninga í nýtt húsnæði 4. mars verður Vinnumálastofnun lokuð þann dag um allt land. Síma- og tölvusamskipti til stofnunarinnar liggja niðri meðan á flutningum stendur, þar á meðal við Greiðslustofu Vinnumálastofnunar á Skagaströnd og þjónustuskrifstofu Fæðingarorlofssjóðs á Hvammstanga.

Stofnunin opnar aftur mánudaginn 7. mars.

 

2.3.2011

Hópuppsagnir í febrúar 2011

Vinnumálastofnun bárust 3 tilkynningar um hópuppsagnir í febrúar, þar sem sagt var upp 68 manns.  Um er að ræða aðila í  heilbrigðisþjónustu, verslun og fiskvinnslu.  Þeir starfsmenn, sem sagt hefur verið upp, koma til með að missa vinnuna aðallega í júní til september 2011. Ástæður uppsagnanna eru sagðar tímabundin rekstrarstöðvun, endurskipulagning og hráefnisskortur.

 

Tilkynntar hópuppsagnir á árinu 2011

Alls hafa Vinnumálastofnun borist tilkynningar um uppsagnir á 208 manns á árinu 2011 (janúar og febrúar) í hópuppsögnum mest í mannvirkjagerð.

18.2.2011

Vinnumálastofnun flytur/relocates/przenosi

Fimmtudaginn 3. mars mun Vinnumálastofnun hefja flutning á allri starfssemi sinni á höfuðborgarsvæðinu undir eitt þak í Kringlunni 1. Við bjóðum viðskiptavini okkar velkomna í ný og betri húsakynni þann 07. mars.
Nýskráning og móttaka verður áfram staðsett á Engjateig þar til annað verður auglýst.


Thursday the 3rd of March The Directorate of Labour will start moving all it's operations in the capital region under one roof at Kringlan 1. We welcome our customers to the new and improved premises on the 7th of March.

We czwartek 3-go marca Urząd Pracy zmienia lokalizację. Wszystkie 3 biura obsługi w rejonie stolicy znajdą się pod jednym dachem, przy ulicy Kringlan 1. Zapraszamy petentów do nowej ulepszonej siedziby.

11.2.2011

Atvinnuleysi í janúar 2011 var 8,5%

Skráð atvinnuleysi í janúar 2011 var 8,5% en að meðaltali 13.458 manns voru atvinnulausir í janúar og
eykst atvinnuleysi um 0,5 prósentustig frá desember 2010, eða um 713 manns að meðaltali.

10.2.2011

Frćđslufundur

Fræðslufundur um jafngildi náms og gegnsætt menntakerfi sem tryggir mat á námi fullorðinna, hvar sem það er stundað, verður haldinn í BSRB húsinu fimmtudaginn 3. mars kl. 9-15. Fjallað verður um þróun og stöðu heildstæðs menntakerfis sem metur til jafns námsþáttöku innan framhaldsskóla, fullorðinsfræðslu og á vinnustöðum.

2.2.2011

Hópuppsagnir í janúar 2011

Alls bárust Vinnumálastofnun 2 tilkynningar um hópuppsagnir í janúar 2011.  Um er að ræða tilkynningu frá fyrirtæki í mannvirkjagreinum og frá sjúkrastofnun.  Alls var sagt upp 140 manns, 129 manns í mannvirkjagreinum og 11 við rekstur sjúkrastofnunar. 

Þeir starfsmenn, sem sagt hefur verið upp, koma til með að missa vinnuna í mars til ágúst 2011. 

1.2.2011

Lćgri greiđsla atvinnuleysisbóta um ţessi mánađamót !


Að gefnu tilefni vill Vinnumálastofnun vekja athygli á eftirfarandi:
Þann 3. janúar sl. var greitt fyrir tímabilið 20. nóv. til 19. des.  Aftur á móti var persónufrádráttur vegna staðgreiðslu nýttur  fram að áramótum, eða til 31. des.  Af þeim sökum var greiðsla fyrir desember hærri en hún átti í raun að vera.  Á móti kemur að greiðslan nú er ívið lægri, eða sem nemur persónufrádrætti fyrir dagana 20. des. til 31. des.

Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á því að ekki skuli hafa verið tilkynnt um þetta fyrirfram svo þeir gætu gert ráð fyrir lægri fjárhæð þessi mánaðamót.

28.1.2011

Lífshlaupiđ 2011 - ţátttaka atvinnuleitenda

Almenningsíþróttasvið Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands stendur fyrir fræðslu- og hvatningarverkefninu Lífshlaupinu 2. – 22. febrúar 2011. Til þess að koma til móts við atvinnuleitendur og gefa þeim kost á að taka þátt í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins hefur almenningsíþróttasvið ÍSÍ verið í samstarfi við Rauða krossinn...

19.1.2011

Skrifstofa Vinnumálastofnunar á Suđurnesjum flytur

Skrifstofa Vinnumálastofnunar flytur frá Hafnargötu 55, Reykjanesbæ og opnar á nýjum stað í Krossmóa 4, 2. hæð þann 1. febrúar 2011 kl. 09:00. Af þessu tilefni verður skrifstofan lokuð mánudaginn 31. janúar.

Starfsfólk Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum

15.1.2011

Styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar

Þann 15.janúar var opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna.  Atvinnumála kvenna
Ráðherra velferðarmála veitir styrkina, sem veittir hafa verið ár hvert síðan 1991, en umsjón með styrkveitingum hefur  ráðgjafi Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki.  

14.1.2011

Atvinnuleysi í desember 2010 var 8%

Skráð atvinnuleysi í desember 2010 var 8% en að meðaltali 12.745 manns voru atvinnulausir í mánuðinum og eykst atvinnuleysi um 0,3 prósentustig frá nóvember 2010 eða um 382 manns að meðaltali. 

4.1.2011

Hópuppsagnir í desember 2010 og á árinu 2010

Hópuppsagnir í desember 2010:
Engar hópuppsagnir bárust í desember 2010.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborđ

til baka Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu