Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir vinnumálastofnunar

4.7.2011

Fjórar hópuppsagnir í júnímánuði

Alls bárust Vinnumálastofnun fjórar tilkynningar um hópuppsagnir í júnímánuði 2011. Samtals er sagt upp 123 einstaklingum, sem koma til með að missa vinnuna á tímabilinu ágúst 2011 til janúar 2012, eftir lengd uppsagnarfrests. Tilkynningarnar eru frá fyrirtækjum í verslun, fiskvinnslu, fræðslustarfsemi og menningar-, íþrótta- og tómstundastarfsemi. Þrjár uppsagnir eru frá fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og ná þær til 112 manns og ein frá fyrirtæki á Vestfjörðum, 11 manns.

Aðeins er um að ræða hreinar uppsagnir í einu tilviki, en í tveimur tilvikum er um endurskipulagningu að ræða og líkur á að stór hluti þeirra starfsmanna verði boðin endurráðning, og í einu tilviki er um að ræða sölu fyrirtækis úr þrotabúi og er reiknað með að starfsmenn verði endurráðnir að hluta eða öllu leyti hjá nýjum rekstraraðila.

Sjá nánar skýrslu um hópuppsagnir í júní, skjal með samantekt upplýsinga um hópuppsagnir frá 2008, og síðu með frekari upplýsingum um hópuppsagnir.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu