Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir vinnumálastofnunar

9.1.2012

Breyting á lögum um viðbótarlífeyrissparnað - Vinnumálastofnun sér um breytingar

 Alþingi samþykkti í árslok að breyta tekjuskattslögum á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekjuskattsstofni verði 2% í stað 4% næstu þrjú ár. Lagasetningin kallar ekki á að breyta þurfi núgildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldastofni. Vinnumálastofnun hefur því lækkað sparnað umsækjenda um atvinnuleysisbætur niður í 2% og þurfa þeir sem vilja greiða hærra iðgjald að óska sérstaklega eftir því með því að senda beiðni á greidslustofa@vmst.is.

 
Breytingin varðar 30. grein laga um tekjuskatt nr. 90/2003 og hljóðar svo:

„Þrátt fyrir ákvæði 2. málsl. 4. og 5. tölul. A-liðar 30. gr. skal heimilaður frádráttur frá tekjum manna, á árunum 2012–2014, vera allt að 2% af iðgjaldsstofni samkvæmt ákvörðun sjóðfélaga vegna iðgjalda sem greidd eru til lífeyrissjóða til aukningar lífeyrisréttinda, til aðila skv. 3. mgr. 8. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, eða til starfstengdra eftirlaunasjóða samkvæmt lögum um starfstengda eftirlaunasjóði. Þeir sem annast iðgjaldaskil samkvæmt samningum um viðbótartryggingavernd og séreignarsparnað á tímabilinu 2012–2014 skulu þrátt fyrir ákvæði umræddra samninga draga að hámarki 2% af iðgjaldsstofni rétthafa nema hann óski sérstaklega eftir því að hlutfall iðgjalds verði hærra.“

 


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu