Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir vinnumálastofnunar

10.2.2012

Evrópuverkefni GET mobile

Vinnumálastofnun er þátttakandi í Evrópuverkefninu GET mobile en það snýst um að hvetja konur og lítil fyrirtæki til að taka þátt í mannaskiptaverkefnum á vegum Evrópusambandsins. Þannig á að þróa aðferið til að veita þjálfun til fyrirtækja og kvenna og gefa út leiðbeinandi efni til lítilla og meðalstórra fyrirtækja og nýútskrifaðra kvenna og þá sérstaklega atvinnulausra kvenna sem útskrifaðar eru úr vísinda eða viðskiptabrautum.
Mannaskiptaverkefni eru oft vannýtt auðlind fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Evrópu og kannanir sýna að fyrirtækin, sérstaklega í eigu kvenna, hika oft við að taka við lærlingum og sérstaklega þeim sem ekki tala tungumálið. Dæmi um ávinninga geta verið aukin nýsköpun og frumkvæði í fyrirtækinu, fjölmenning og tungumálaþekking.

Samstarfsaðilar verkefnis eru Inova ráðgjafarfyrirtækið (Bretland) VHTO – Félag kvenna í vísindum og tækni (Holland) Viðskiptaráð Genova ( Ítalía), YES – Samband evrópska frumkvöðla (Belgía) Félag fyrir konur í óhefðbundnum atvinnugreinum í Evrópu (Þýskaland) og frumkvöðlasetur fyrir konur (Tyrkland).

Tilgangur og markmið verkefnis

  • Að yfirfæra og þróa undirbúningshópa í Holland og Íslandi.
  • Að yfirfæra og aðlaga fyrirmyndarleiðbeiningar fyrir fyrirtæki sem hafa hug á því að taka þátt í mannaskiptaverkefnum.
  • Að hvetja nýútskrifaðar konur í viðskiptum og vísindum til að taka þátt í verkefnum. Sérstök áhersla verður á að ná til atvinnulausra kvenna eða þeirra sem eru ekki í starfi sem hæfir þeirra menntun og hæfni.
  • Að kynna gildi mannaskiptaverkefna til lítilla og meðalstórra fyrirtækja en sérstaklega verður horft til fyrirtækja í eigu kvenna sem geta verið fyrirmyndir annara kvenna.
  • Að styðja við fyrirtæki til að taka þátt í mannaskiptaverkefnum og að finna konur er starfa í vísinda - og viðskiptagreinum í verkefnin eða þær sem eru að huga að stofnun rekstrar.
  • Að undirbúa fyrirtæki, nýútskrifaðar og atvinnulausar konur til að taka þátt í mannaskiptaverkefnum.
  • Að kynna möguleika á mannaskiptaverkefnum til kvennafyrirtækja og lítilla og meðastórra fyrirtækja í Evrópu.

Markhópar
Markhópar verkefnis eru konur sem eru útskrifaðar úr vísinda og/eða viðskiptagreinum og hafa ekki vinnu við hæfi þeirra menntunar, eigendur lítilla og meðalstórra fyrirtækja og örfyrirtækja og er sérstaklega einblínt á kvennafyrirtæki.
Samfélagsmiðlar verða notaðir til að ná til kvenna ásamt atvinnuleitarvélum og vinnumiðlunum í háskólum og atvinnulífinu.
Reynt verður að ná til fyrirtækja í gegnum greinaskrif í dagblöðum, fréttatilkynningar í viðeigandi miðlum og í gegnum tengslanet svo sem viðskiptaráð viðkomandi landa/greina.

Útkoma verkefnis
Eitt aðalmarkmið verkefnis er yfirfærsla, aðlögun og þróun leiðbeininga til fyrirtækja sem yaka þátt í mannaskiptaverkefnum í viðskipta- og vísindagreinum og gerð verður handbók með þeim þáttum er skipta mestu máli.
Annað markmið er yfirfærsla, aðlögun og þróun nýrra þjálfunaraðferða undirbúningshópa fyrir atvinnulausar konur, þær sem ekki eru í starfi sem hæfi menntun þeirra og nýútskrifaðar konur í vísindum og viðskiptum. Ennfremur að byggja upp sjálfstraust og persónulega hæfni til að undirbúnings samkeppni á evrópskum vinnumarkaði og til að hvetja til hreyfanleika í Evrópu.

Markmið er að hvetja smá og meðalstór fyrirtæki í Evrópu til að ráða nýútskrifað fólk, og þá sérstaklega konur í viðskiptum og vísindum. Ennfremur að efla stuðning auka hæfni þeirra með það að markmiði að þær fái starf við sitt hæfi.

Sett verður upp heimasíða þar sem vetvangur verður fyrir konur annarsvegar og fyrirtæki hinsvegar. Þar verður hægt að leita að samstarfsaðilum og þátttakendum í mannaskiptaverkefnum.
Einnig verður boðið upp á stutt námskeið (webinars) sem verður dreift í gegnum heimasíðu og youtube.

Tengiliður verkefnisins á Íslandi er Ásdís Guðmundsdóttir sem veitir allar upplýsingar um verkefnið


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu