Fréttir vinnumálastofnunar
16.2.2012
Atvinnumessa 8. mars í Laugardagshöll
Nú stendur fyrir dyrum atvinnumessa á höfuðborgarsvæðinu þann 8. mars nk. Með því er verið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem eiga að tryggja allt að 1500 atvinnuleitendum störf og starfstengd úrræði. Sérstök áhersla er lögð á langtímaatvinnulausa í þessu átaki. Slíkar atvinnumessur munu einnig fara fram nokkru síðar í Reykjanesbæ og á Akureyri.
Samráðshópur stjórnvalda, stjórnmálaflokka og aðila vinnumarkaðarins um menntun og vinnumarkaðsúrræði skilaði 31. mars 2011 tillögum sínum til ríkisstjórnarinnar um átak til þriggja ára. Tillögur hópsins báru yfirskriftina Í NÁM – TIL VINNU.
Tillögurnar og fjármögnun þeirra voru til umfjöllunar í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í maí 2011 og varð samkomulag um það efni, sem fram kom í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí 2011.
Nú er verið að hrinda í framkvæmd aðgerðum sem eiga að tryggja allt að 1.500 atvinnuleitendum störf og starfstengd úrræði. Sérstök áhersla er lögð á hvata og úrræði fyrir langtímaatvinnulausa. Átakið hefur hlotið nafnið VINNANDI VEGUR.
Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg munu beita sér fyrir því að sveitarfélögin skapi a.m.k. helming starfa eða starfstengdra úrræða innan verkefnisins, alls 750 störf. Áætlað er að fyrirtæki á almennum vinnumarkaði munu skapa hinn helminginn.
Hér eru reifuð helstu atriði er skipta máli varðandi þátttöku fyrirtækja í VINNANDI VEGI - sameiginlegu átaki sveitarfélaga, samtaka atvinnurekenda, stéttarfélaga og ríkisins. Áréttað er að verið er að ganga frá setningu reglugerðar um málið og gætu einstök útfærsluatriði breyst lítilsháttar.
Átakið tekur til allra atvinnuleitenda með sérstakri áherslu á þá einstaklinga sem hafa verið án vinnu lengur en 12 mánuði.
Almennt gildir um átakið
- Ráðningartímabil átaksins er stutt og afmarkað og stendur frá 15. febrúar til 31. maí.
- Atvinnurekandi getur fengið sérstakan styrk til ráðningu atvinnuleitanda ef með slíkri ráðningu sé sannarlega verið að fjölga starfsfólki.
- Tímalengd styrks er óháð þeim tíma sem atvinnuleitandi getur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Þannig getur atvinnurekandi fengið styrk vegna ráðningar einstaklings af atvinnuleysisskrá svo fremi sem viðkomandi hafi verið tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins þegar hann var ráðinn.
- Sé ráðið í hlutastarf greiðist styrkur eftir starfshlutfalli.
- Skilyrði fyrir greiðslu styrks á grundvelli samnings eru eftirfarandi:
- Að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannafjölda hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar.
- Að fyrirtæki hafi að minnsta kosti einn starfsmann á launaskrá.
- Að fyrirtæki hafi ekki, síðastliðna sex mánuði, sagt lausum stöðugildum sem fyrirhugað er að ráða atvinnuleitendur til að gegna á grundvelli ákvæðisins.
- Að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda til fyrirtækis feli ekki í sér verulega röskun á samkeppni innan atvinnugreinarinnar á því svæði sem um ræðir hverju sinni.
- Að staðfesting á launagreiðslu til viðkomandi atvinnuleitanda fylgi með reikningi fyrirtækis eða stofnunar til Vinnumálastofnunar.
Um þá sem hafa verið án vinnu í 12 mánuði eða lengur gildir: Grunnbætur fylgja nýjum starfsmanni af atvinnuleysisskrá upp í kjarasamningsbundin laun óháð bótarétti viðkomandi innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Atvinnurekandi fær þannig styrk miðað við að viðkomandi sé að fullu tryggður, eða 167.176 kr. á mánuði, auk 8% framlags í lífeyrissjóð. Tímalengd slíks ráðningarstyrks getur verið allt að 12 mánuðir.
Um þá sem hafa verið án vinnu skemur en 12 mánuði gildir: Styrkur sem fylgir nýjum starfs-manni af atvinnuleysisskrá miðast við bótarétt viðkomandi og getur orðið allt að 6 mánuðir.
Skráning starfa, vinnumiðlun og atvinnumessa
Til að efla vinnumiðlun mun Vinnumálastofnun gera samninga við almennar ráðningarstofur og stéttarfélög um ráðningar, samkvæmt sérstökum þjónustusamningi.
Markmiðið er að safna sem flestum störfum í miðlun fyrir atvinnumessu sem haldin verður 8. mars nk. á höfuðborgarsvæðinu. Slíkar atvinnumessur fara einnig fram nokkru síðar í Reykjanesbæ og á Akureyri.
Opnað verður fyrir skráningu á störfum inn á vef Vinnumálastofnunar á slóðinni www.vmst.is/vinnandivegur eftir miðjan febrúar. Þar geta atvinnurekendur skráð störf sem þeir óska að fá miðlað. Einnig geta þeir haft samband við ráðningarstofur eða stéttarfélög í sama tilgangi.




English

