Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir vinnumálastofnunar

17.2.2012

Atvinnutorg opnað

Atvinnutorg fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 16-25 ára var opnað í dag í  Vinnumálastofnun. Ungt fólk í atvinnuleit fær aðstoð þar óháð rétti til atvinnuleysisbóta en aðaláherslan er þó á hóp ungs fólks sem er án bótaréttar eða er um það bil að klára bótarétt. Verkefnið er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar, velferðarráðuneytis og Vinnumálastofnunar. Atvinnutorgið er staðsett í Kringlunni 1 en ungmenni munu fá tilvísun til Atvinnutorgsins í gegnum virkniráðgjafa þjónustumiðstöðvanna og ráðgjafa Vinnumálastofnunar.

Skortur er á tækifærum fyrir ungt fólk til að öðlast starfsreynslu á vinnumarkaði en Þetta er sá hópur atvinnuleitandi sem hefur minnsta menntun og starfsreynslu og þarf meiri stuðning en ella.
Atvinnutorgi er ætlað að koma til móts við þennan hóp. Á Atvinnutorgi munu ungmenni 16-25 ára fá einstaklingsmiðaða ráðgjöf og gerðar verða áætlanir með þarfir þeirra í huga.

Störfin eða Starfsþjálfunin felur í sér að svið, stofnun eða fyrirtæki borgarinnar bjóða ungmennum til sín í þjálfun í einn til þrjá mánuði, tvo til fimm daga vikunnar. Starfshlutfall og verkefni fara eftir aðstæðum hverju sinni og samkomulagi við ungmenni. Tímabundin ráðning felur í sér að svið, stofnanir og fyrirtæki borgarinnar ráða ungmenni til sín í 6 mánuði í 50% -100% starf. Eingöngu er um tímabundnar stöður að ræða þar sem ungmennin öðlast starfsreynslu en fá meðmæli sem ættu að hjálpa þeim út á almennan vinnumarkað.

Þegar búið er að vísa máli ungmennis til Atvinnutorgsins munu ráðgjafar fylgja málum hvers og eins eftir og verða stuðningur bæði fyrir viðkomandi einstakling og starfsstað.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu