Lög, reglugerðir og úrskurðir
Vinnumálastofnun heyrir undir Félags- og tryggingamálaráðuneytið og fer meðal annars með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu Atvinnuleysistryggingasjóða
Lög og reglugerðir
Vinnumálastofnun starfar samkvæmt lögum nr. 54/2006 um Atvinnuleysistryggingar og samkvæmt lögum nr. 55/2006 um Vinnumarkaðsaðgerðir. Markmið laganna er að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir þáttakendur á vinnumarkaði, auk þess sem lögunum er ætlað að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í landinu.
Úrskurðir
Velferðarráðherra skipar þriggja manna úrskurðanefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og jafnmarga til vara. Hlutverk úrskurðanefndar er að kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Úrskurðir úrskurðanefndarinnar fela í sér endanlega stjórnvaldsákvörðun. Hægt er að sækja eyðublað um kæru til úrskurðanefndar hér og skoða úrskurði síðustu ára hér.





English

