Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Forsíða:

Vinnumálastofnun - Lög, reglugerðir og úrskurðir - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Lög um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 - Lög þessi gilda um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Markmið laga þessara er að tryggja launamönnum eða sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir eru að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt.

Gerðar hafa verið breytingar á lögunum af og til frá samþykkt þeirra 2006. Breytingarnar má sjá efst í lögunum á vef Alþingis, þegar smellt er á tengilinn hér að ofan.


Lög um vinnumarkaðsaðgerðir nr. 55/2006
 - Lög þessi gilda um vinnumarkaðsaðgerðir. Með vinnumarkaðsaðgerðum er átt við vinnumiðlun, mat á hæfni atvinnuleitanda og skipulag úrræða sem eru til þess fallin að auka vinnufærni atvinnuleitanda. Atvinnuleitandi í skilningi laga þessara er hver sá sem sækir um þáttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Markmið laga þessara er að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir þáttakendur á vinnumarkaði. Þá er lögum þessum ætlað að stuðla að jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir vinnuafli í landinu.

Reglugerð 012/2009 um þátttöku atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum og um búferlastyrki
 - Reglugerð þessi gildir um þáttöku atvinnuleitenda sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðsaðgerðum, úthlutun Vinnumálastofnunar á sérstökum styrkjum úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna þáttöku þeirra í vinnumarkaðsaðgerðum og úthlutun styrkja vegna búferlaflutninga innanlands vegna starfstilboða. Markmið reglugerðar þessarar er að stuðla að þáttöku atvinnuleitenda í vinnumarkaðsaðgerðum sem og að auðvelda þeim að þiggja starf fjarri lögheimili sínuþ

Reglugerð 013/2009 um nám og námskeið sem eru viðurkennd vinnumarkaðsúrræði 
- Nám og námskeið tilgreind sem eru viðurkennd sem vinnumarkaðsúrræði Vinnumálastofnunar. Breytingar á upprunalegri reglugerð 013/2009: Reglugerð nr. 782/2011 og  reglugerð nr 116/2010 .


Fjárhæð atvinnuleysisbóta

Reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga nr. 1224/2011.

Sbr. reglugerðir nr. 566/2011 sbr. nr. 1219/2008 sbr. nr. 294/2008, sbr. 1253/2007 og 1103/2006.
sem byggja á stofnreglugerð 548/2006  - Reglugerð um fjárhæð atvinnuleysistrygginga.


Fiskvinnslufyrirtæki

Lög nr. 51/1995 um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna fiskvinnslufólks - Vinnumálastofnun greiðir úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna tímabundinnar vinnuslustöðvunar af völdum hráefnisskorts og starfsfræðslunámskeið fyrir fiskvinnslufólk

Breytingar á lögum
: Lög nr 152/2007, um breytingu á ofangreindum lögum um greiðslur vegna fiskvinnslufólks 

Reglugerð um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna kauptryggingar fiskvinnslufólks. - Reglugerð þessi gildir um greiðslur Atvinnuleysistryggingasjóðs til fyrirtækja sem starfrækja verkun og vinnslu sjávarafla, þ.e. í flakavinnslu, frystingu, söltun, skreiðarverkun, rækju- og skelvinnslu og hafa greitt starfsfólki sínu föst laun fyrir dagvinnu í tímabundinni vinnslustöðvun í samræmi við ákvæði kjarasamnings um kauptryggingu verkafólks í fiskvinnslu.


Ábyrgðasjóður launa - Gjaldþrot atvinnurekanda

Reglugerð nr. 111/2010 um innheimtuhlutfall launa í staðgreiðslu 


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu