Önnur lög og reglugerðir sem snerta starfsemi VMST
Forsíða:
Vinnumálastofnun - Lög, reglugerðir og úrskurðir - Önnur lög og reglugerðir sem snerta starfsemi VMSTÁbyrgðasjóður launa
Lög um Ábyrgðasjóð launa nr. 88/2003 - Markmið laga þessara er að tryggja launamönnum og lífeyrissjóðum greiðslur vegna vangoldinna krafna þeirra við gjaldþrot vinnuveitanda eða þegar dánarbú hans er til opinberra skipta og erfingjar ábyrgjast ekki skuldbindingar.
Reglugerð um Ábyrgðasjóð launa nr. 462/2003 - Ábyrgðasjóður launa ábyrgist greiðslu á kröfum um vangoldin laun, bætur vegna slita á ráðningarsamningi, orlof, bætur vegna vinnuslysa og lífeyrisiðgjöld í bú vinnuveitanda sem hefur staðfestu og rekur starfsemi hér á landi. Í þeim tilvikum sem vinnuveitandi hefur staðfestu í fleiri en einu ríki ábyrgist sjóðurinn kröfur vegna þeirra launamanna sem að öllu leyti eða að jafnaði inna af hendi starfsskyldur sínar hér á landi, enda njóti kröfur þeirra ekki ábyrgðar í öðru ríki.
Reglugerð um hámark ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa nr. 1107/2006 - Hámarksábyrgð á kröfum launamanna skv. a- og b-lið 5. gr. laga um Ábyrgðasjóð launa, nr. 88/2003, skal vera 312.000 kr. miðað við hvern mánuð. Hámarksábyrgð á kröfum skv. c-lið 5. gr. laganna skal vera 499.100 kr.
Reglur um greiðslur Ábyrgðasjóðs launa á innheimtukostnaði vegna krafna sem njóta ábyrgðar sjóðsins nr. 644/2003 - Ábyrgðasjóður launa ábyrgist þann kostnað sem hlýst af innheimtu kröfu á hendur þrotabúi vinnuveitanda að því leyti sem hann hefur ekki fengist endurgreiddur úr þrotabúinu.
Starfsmenntun
Lög um starfsmenntun í atvinnulífinu nr. 19/1992 - Markmið laga þessara er að hvetja til aukinnar starfsmenntunar í atvinnulífinu
Hópuppsagnir
Lög um hópuppsagnir nr. 63/2000 - Lög þessi gilda um hópuppsagnir atvinnurekanda á starfsmönnum af ástæðum sem ekki tengjast hverjum einstökum þeirra þegar fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á 30 daga tímabili er miðað við a, b, eða c.
Ættleiðing
Lög nr. 152/2006 um ættleiðingarstyrki - Lög þessi taka til fjárstyrkja úr ríkissjóði til kjörforeldra sem ættleitt hafa erlent barn eða börn í samræmi við lög um ættleiðingar. Lög þessi taka ekki til alþjóðlegra fjölskylduættleiðinga.
Evrópskt samstarfsráð
Lög um evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum nr. 61/1999 - Markmið laga þessara er að bæta rétt starfsmanna til upplýsinga og samráðs í fyrirtækjum eða fyrirtækjasamstæðum er starfa í a.m.k. tveimur ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES).
Réttarstaða starfsmanna
Lög um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum nr. 72/2002 - Lög þessi gilda um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtæki eða hluta fyrirtækis innan Evrópska efnahagssvæðisins, í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum.]
Lög um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla nr. 19/1979 - Nú hefur verkafólk unnið eitt ár samfellt hjá aðilum, sem fást við atvinnurekstur innan sömu starfsgreinar, og ber því þá eins mánaðar uppsagnarfrestur frá störfum, enda hafi uppsögn hjá fyrri atvinnurekendum borið að með löglegum hætti.
Lög um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda nr. 55/1980 - Laun og önnur starfskjör, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um, skulu vera lágmarkskjör, óháð kyni, þjóðerni eða ráðningartíma fyrir alla launamenn í viðkomandi starfsgrein á svæði því er samningurinn tekur til. Samningar einstakra launamanna og atvinnurekenda um lakari kjör en hinir almennu kjarasamningar ákveða skulu ógildir.
Vinnuvika
Lög um 40 stunda vinnuviku nr. 88/1971 - Í hverri viku skulu ekki vera fleiri en 40 dagvinnutímar, sem vinna ber á því dagvinnutímabili á virkum dögum vikunnar, sem aðilar koma sér saman um. Heimilt er að semja um skemmri vinnuviku.
Að jafnaði skulu unnar 8 klukkustundir í dagvinnu á degi hverjum frá mánudegi til föstudags, nema annar vinnutími henti betur af sérstökum ástæðum og um það sé samið af aðilum.
Orlofsréttindi
Lög um orlof nr. 30/1987 - Allir þeir, sem starfa í þjónustu annarra gegn launum, hvort sem þau eru greidd í peningum eða öðrum verðmætum, eiga rétt á orlofi og orlofslaunum samkvæmt reglum þessara laga.




English

