Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Úrskurðanefnd

Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða

Velferðarráðherra skipar þriggja manna úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og jafnmarga til vara. Nefndarmenn skulu skipaðir til fjögurra ára í senn og skulu þeir allir vera skipaðir án tilnefningar. Velferðarráðherra ákveður hver skal vera formaður nefndarinnar og skal varamaður formanns jafnframt vera varaformaður. Formaður og varamaður hans skulu uppfylla skilyrði til þess að vera skipaðir héraðsdómarar.

Hlutverk úrskurðarnefndarinnar er að kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Úrskurðir úrskurðarnefndarinnar fela í sér endanlega stjórnvaldsákvörðun.

Úrskurðarnefndin er þannig skipuð:

Brynhildur Georgsdóttir, formaður
Helgi Áss Grétarsson
Hulda Rós Rúriksdóttir

Varamenn:

Þuríður Jónsdóttir, varamaður formanns,
Ragnhildur Jónasdóttir
Laufey Jóhannsdóttir

Nefndin var skipuð frá 15. maí 2008 til 14. maí 2012 skv. lögum nr. 12/1997.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu