Austurland
2.2.2012
Breytt verklag vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu
Eftirfarandi breytingar á verklagi hafa nú tekið gildi vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu:
Ekki er heimilt að starfa við rekstur á eigin kennitölu / taka að sér verktakavinnu samhliða atvinnuleysisbótum.
- Atvinnuleitandi þarf að skrá sig af atvinnuleysisbótum þá daga sem verkefni stendur yfir.
- Afskráning þarf að eiga sér stað áður en verkefni hefst og að loknu verkefni þarf atvinnuleitandi að koma á þjónustuskrifstofu og óska eftir endurskráningu.
- Leggja þarf fram afrit af reikningi vegna vinnunnar eða skýringar sé ekki búið að gefa út reikning.
- Afrit af reikningi þarf að berast Vinnumálastofnun án ástæðulausrar tafar þegar reikningur er gefinn út.
- Afskrá þarf heilan dag þrátt fyrir að verktakavinna vari skemur en 8 klst.
- Jafnframt er ekki heimilt að safna upp tímum vegna verktakavinnu sbr. atvinnuleitandi sem kennir 2x2 klst í viku jafngildir afskráningu í 2 daga.
13.1.2012
Atvinnuleysi 7,3% í desember
Skráð atvinnuleysi í desember s.l. var 7,3% sem svarar til þess að 11.760 einstaklingar hafi verið án atvinnu. Var það 412 fleiri en í nóvember en þá var skráð atvinnuleysi 7,1%.
9.1.2012
Breyting á lögum um viðbótarlífeyrissparnað - Vinnumálastofnun sér um breytingar
Alþingi samþykkti í árslok að breyta tekjuskattslögum á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekjuskattsstofni verði 2% í stað 4% næstu þrjú ár. Lagasetningin kallar ekki á að breyta þurfi núgildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldastofni. Vinnumálastofnun hefur því lækkað sparnað umsækjenda um atvinnuleysisbætur niður í 2% og þurfa þeir sem vilja greiða hærra iðgjald að óska sérstaklega eftir því með því að senda beiðni á greidslustofa@vmst.is.
Hjá Vinnumálastofnun Austurland eru 9 laus störf í 6 starfsauglýsingum. Ný störf í dag eru 0.
20.2.2012 - Austurland
Störf á sjúkrahúsi
17.2.2012 - Austurland
heimilishjálp
14.2.2012 - Austurland
Starfsmaður Menningarmiðstöðvar
3.2.2012 - Austurland
Grétar / Sigríður
Þessi síða er í vinnslu.
Upplýsingar um stöðu á vinnumarkaði, atvinnuleysi, annað talnaefni og útgefið efni er að finna hér
Úrræði og átaksverkefni
Hér koma staðbundin úrræði og átaksverkefni á Austurlandi.
Tenglar og ábendingar
Hér koma staðbundnir tenglar og ábendingar á Austurlandi.
Hafa samband
Vinnumálastofnun á Austurlandi
Miðás 1
700 Egilsstaðir
Sími 512-8280
Bréfasími 471-2287
Netfang: austurland@vmst.is
Starfsfólk
Opið alla virka daga frá klukkan 9:00 til 15:00,




English

