Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Greiðslustofa atvinnuleysistrygginga

Forsíða:

Vinnumálastofnun - Þjónustuskrifstofur - Greiðslustofa atvinnuleysistrygginga

Greiðslustofa atvinnuleysistrygginga

Greiðslustofa atvinnuleysistrygginga 
Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd - Sjá kort
Greiðsla atvinnuleysisbóta / skattkort
Sími 582 4900
Bréfasími 582 4920
Opið frá klukkan 9:00 til 15:00 alla virka daga
Netfang: greidslustofa@vmst.is
Starfsfólk greiðslustofu atvinnuleysistryggina

 

Greiðslur atvinnuleysistrygginga/atvinnuleysisbóta fyrir allt landið fara fram hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar

Greiðslur atvinnuleysistrygginga fara fram 1. virka dag hvers mánaðar og er greiðslutímabilið 20.-19. hvers mánaðar á undan.

  • Til dæmis í útborgun þann 1. mars er verið að greiða fyrir tímabilið 20. janúar til 19. febrúar.

Athygli er vakin á því að að umsækjendur þurfa að staðfesta atvinnuleit sína mánaðarlega frá 20. – 25. hvers mánaðar til að tryggja greiðslur um mánaðarmót. Atvinnuleit er staðfest á "Mínar síður" atvinnuleitanda.

  • Greiðslur til umsækjenda sem staðfesta atvinnuleit frá 20. - 25. hvers mánaðar eru afgreiddar fyrsta virka dag í mánuði.
  • Greiðslur til umsækjenda sem staðfesta atvinnuleit sína milli 25. og 3. næsta mánaðar eru ekki afgreiddar fyrr en 5 virkum dögum eftir mánaðamót.
  • Greiðslur til umsækjanda sem staðfesta atvinnuleit sína eftir 3. næsta mánaðar greiðast með útborgun næstu mánaðarmóta.

Athygli er vakin á því að umsækjendur þurfa að gefa upplýsingar um allar tekjur sem þeir hafa. Gögnum er ávallt hægt að skila á Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar. Sjá nánar Réttindi og skyldur atvinnuleitenda.

Skattkortum er skilað inn með umsókninni á Þjónustuskrifstofurnar eða send beint til Greiðslustofunnar. Þau eru vistuð á Greiðslustofunni til að tryggja örugga og skilvirka afgreiðslu. 

Fá sent skattkort frá Vinnumálastofnun

Til að fá skattkort sent til baka er hægt að:

  • Fara inn á "Mínar síður" og smella á "Fá skattkort sent". Þar fyllir þú út upplýsingar um hvert eigi að senda skattkortið.
  • Hringja í Greiðslustofu í síma 582 4900.
  • Senda netpóst á greidslustofa@vmst.is.
  • Óska eftir því hjá Þjónustuskrifstofu.

Skattkortið er sent frá Greiðslustofu eins fljótt og auðið er þegar beiðni um afhendingu berst.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu