Fréttir Þjónustuskrifstofa höfuðborgarsvæðisins
4.4.2012
Styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað
Í gær var úthlutað styrkjum til atvinnumála kvenna og hlutu 36 verkefni styrk að upphæð alls kr. 26.010.000.
7.3.2012
Atvinnumessa í Laugardagshöll
Atvinnumessa í Laugardagshöll verður haldin fimmtudaginn 8. mars frá kl. 10. -16. Á messunni verða kynnt um þúsund ný tækifæri í störfum og starfsþjálfun. Ráðgjafar og ráðningarþjónusta
verða til taks allan daginn og leiðbeina atvinnuleitendum um hentug störf, umsóknarferlið og
atvinnuviðtalið. Messan er hluti af átakinu Vinnandi vegur en markmið þess er að skapa 1.500 ný störf
fyrir atvinnuleitendur fyrir lok maí. sjá nánar dagskrá.
2.2.2012
Breytt verklag vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu
Eftirfarandi breytingar á verklagi hafa nú tekið gildi vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu:
Ekki er heimilt að starfa við rekstur á eigin kennitölu / taka að sér verktakavinnu samhliða atvinnuleysisbótum.
13.1.2012
Atvinnuleysi 7,3% í desember
Skráð atvinnuleysi í desember s.l. var 7,3% sem svarar til þess að 11.760 einstaklingar hafi verið án atvinnu. Var það 412 fleiri en í nóvember en þá var skráð atvinnuleysi 7,1%.
9.1.2012
Breyting á lögum um viðbótarlífeyrissparnað - Vinnumálastofnun sér um breytingar
Alþingi samþykkti í árslok að breyta tekjuskattslögum á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekjuskattsstofni verði 2% í stað 4% næstu þrjú ár. Lagasetningin kallar ekki á að breyta þurfi núgildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldastofni. Vinnumálastofnun hefur því lækkað sparnað umsækjenda um atvinnuleysisbætur niður í 2% og þurfa þeir sem vilja greiða hærra iðgjald að óska sérstaklega eftir því með því að senda beiðni á greidslustofa@vmst.is.
22.9.2011
Svanni - lánatryggingasjóður kvenna tekur til starfa
Svanni- lánatryggingasjóður kvenna verður formlega settur á laggirnar á morgun föstudaginn 23. september. Svanni veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir og er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Sjóðurinn veitir helmin ábyrgðar á móti banka.
Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu og gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki. Einnig er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna. Hægt verður að sækja um lánatryggingar á heimasíðu Svanna frá þeim degi og er umsóknarfrestur til og með 19. október í þessari fyrstu umsóknarlotu. Nánari upplýsingar um verkefnið er hægt að nálgast hér.
20.9.2011
Breytingar á starfstengdum vinnumarkaðsúrræðum
Alþingi samþykkti í byrjun september 2011 breytingu á lögum um starfstengd vinnumarkaðsúrræði hjá Vinnumálastofnun. Frá og með 2. september telja starfstengd vinnumarkaðsúræði eins og starfsþjálfun, reynsluráðning, átaksverkefni og starfsorkan ekki af bótarétti atvinnuleitanda. Þannig að bótaréttur þessa fólks er í raun frystur á meðan á úrræðinu stendur. Allir þeir sem eru í vinnumarkaðsúrræðum eru því afskráðir og þurfa ekki að stimpla sig á meðan þeir eru í vinnu.
Ef starfsmaðurinn er atvinnulaus eftir að samningstíma lýkur er nauðsynlegt að koma með vottorð vinnuveitenda og skrá sig aftur hjá Vinnumálastofnun.
16.9.2011
Breyting á viðtalstímum hjá Vinnumálastofnun á höfuðborgarsvæðinu
Breyting verður á viðtalstímum hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar á höfuðborgarsvæðinu frá og með 19. september nk. Ráðgjafar veita viðtöl mánudaga til föstudaga milli klukkan 9-12. Panta þarf tíma fyrirfram með því að hringja í síma 515 4800 eða senda tölvupóst á vidtal@vmst.is
Opnir viðtalstímar eru eftir hádegi frá kl. 13-15 á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.
12.7.2011
Atvinnuleysið 6,7% í júní
Skráð atvinnuleysi í júní 2011 var 6,7% en var 7,4% í maí og 8,1% í apríl. Að meðaltali voru 11.704 manns atvinnulausir í júnímánuði og fækkaði atvinnulausum um 849 að meðaltali frá maí eða um 0,7 prósentustig.
7.7.2011
Nám er vinnandi vegur - ætlar þú að vera með?
Umsóknarfrestur um þátttöku í átakinu Nám er vinnandi vegur rennur út 5. ágúst næstkomandi. Ef þú ert á atvinnuleysisskrá og uppfyllir skilyrði um þátttöku svo sem að hafa verið komin/n á atvinnuleysisskrá fyrir 1. mars 2011 og ert að fara í fullt nám í haust þá gætir þú átt rétt á að nýta þér þetta tækifæri.
Ef þú ert búin/n að sækja um nám í framhaldsskóla eða háskóla og ert komin/n með staðfestingu um skólavist þá skaltu snúa þér til ráðgjafa Vinnumálastofnunar fyrir 5. ágúst og hafa staðfestingu um skólavistina með þér.




English

