Fréttir Þjónustuskrifstofa norðurlands vestra
4.4.2012
Frumkvöðlasmiðju lokið og ný sprotafyrirtæki í uppsiglingu
Frumkvöðlasmiðju, sem hefur verið í gangi síðustu þrjár vikur á Blönduósi, lauk í dag með glæsilegri kynningu á verkefnum smiðjunnar. Þátttakendur höfðu útfært viðskiptahugmyndir sínar á vandaðan hátt og settu fram myndrænar kynningar á þeim ásamt því að vísa í heimasíður sem þeir höfðu útbúið. Allar líkur eru á að 2-3 viðskiptahugmyndanna verði að veruleika sem er sérlega ánægjulegt.
4.4.2012
Styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað
Í gær var úthlutað styrkjum til atvinnumála kvenna og hlutu 36 verkefni styrk að upphæð alls kr. 26.010.000.
19.3.2012
Landbúnaðarstörf

Vinnumálastofnun á Norðurlandi vestra leitar eftir starfsfólki sem hefur áhuga og getu til að sinna almennum sveitastörfum.
14.3.2012
Frumkvöðlasmiðja á Blönduósi
Í dag hófst þriggja vikna Frumkvöðlasmiðja fyrir atvinnuleitendur á Blönduósi. Vinnumálastofnun stendur fyrir smiðjunni en býður Starfsendurhæfingu Norðurlands og Virk að nýta nokkur pláss í smiðjunni
7.3.2012
Kynningarfundir um "Vinnandi veg" á Norðurlandi vestra.
Kynningarfundir um „Vinnandi veg“ á Norðurlandi vestra tókust vel en þeir voru haldnir í liðinni viku.
Megin markmið með átakinu „Vinnandi vegi“ er að fjölga störfum og minnka atvinnuleysi.
7.3.2012
Kraftakarlar í Skagafirði.
Fimmtudaginn 1. mars lauk námskeiðinu Kraftakarlar sem Vinnumálastofnun hélt fyrir karlmenn sem eru í atvinnuleit í Skagafirði í samstarfi við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki og er það í fyrsta sinn sem þetta námskeið er haldið.
2.2.2012
Breytt verklag vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu
Eftirfarandi breytingar á verklagi hafa nú tekið gildi vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu:
Ekki er heimilt að starfa við rekstur á eigin kennitölu / taka að sér verktakavinnu samhliða atvinnuleysisbótum.
27.1.2012
Styrkir til atvinnumál kvenna lausir til umsókna

Hefur þú góða viðskiptahugmynd? Rekur þú fyrirtæki og vilt þróa nýja vöru eða þjónustu?
Vinnumálastofnun/Velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2012 lausa til umsóknar. Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.





English

