Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir Þjónustuskrifstofa norðurlands vestra

27.1.2012

Styrkir til atvinnumál kvenna lausir til umsókna

logo for printing 5x5 cm - Copy

Hefur þú góða viðskiptahugmynd? Rekur þú fyrirtæki og vilt þróa nýja vöru eða þjónustu?

Vinnumálastofnun/Velferðarráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2012 lausa til umsóknar. Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.  

  • Verkefnið sé í eigu konu/kvenna og stjórnað af konu
  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar og gerðar markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar.
  • Ennfremur geta konur sem hafa fullmótað viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 30.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 3.000.000. Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 400.000.

Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2012 og skal sækja um rafrænt á heimasíðu verkefnisins en þar má ennfremur finna nánari upplýsingar um styrkina.

www.atvinnumalkvenna.is

 


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu