Námskeið
Námskeið á döfinni
Náðu árangri á netinu
Námskeiðið verður haldið þann 13. og 14. janúar nk. í Félagsheimilinu á Blönduósi milli kl.9.00-16.00 báða dagana. Á námskeiðinu verða eftirtaldir námsþættir:
Kynntar verða breytingar og aðferðir í markaðssetningu á netinu með tikomu samfélagsmiðla s.s. Facebook og Twitter ásamt notkun leitarvéla.
Hver þátttakandi fær úttekt á heimasíðu sinni með leiðbeiningum og ábendingum um hvernig hæg er að ná betri árangri.
Vegleg vinnubók fylgir.
Boðið verður upp á léttan hádegisverð og kaffiveitingar.
Fyrirlesari er Hjörtur Smárason ráðgjafi.
Skráning er í síma 455-4200 fyrir 12.janúar.
Taktu af skarið, vertu við stjórnborðið
Námskeið fyrir þá sem vilja taka stjórn á eigin lífi og aðstæðum, þá sem vilja vera við stjórnborðið.
Námskeiðið verður haldið á Blönduósi þann 24.janúar kl. 10.00-15.00 í sal Stéttarfélagsins Samstöðu, Þverbraut 1.
Á námskeiðinu verður kennd:
Framkomu-og ræðuþjálfun
Þjálfun í skapandi hugsun (raunhæf markmið) og verður bent á leiðir sem skipta máli í markmiðssetningu.
Léttar veitingar í boði Rauða Kross deildar A-Hún.
Á námskeiðinu verður einnig farið yfir grundvallarmarkmið Rauða Kross Íslands og verkefnið "Félagsvinir atvinnuleitanda" kynnt stuttlega.
Umsjón með námskeiðinu hefur Fjóla Einarsdóttir, verkefnastjóri Félagsvina atvinnuleitenda.
Námskeið er atvinnulausum að kostnaðarlausu og er skráning í síma 455-4200.




English

