Suðurland
21.2.2012
Vinnandi vegur

VINNANDI VEGUR er sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins. Ávinningur allra er hafður að leiðarljósi: Um leið og atvinnurekendum er gert kleift að nýráða starfsfólk er atvinnuleitendum gefið tækifæri til þátttöku í atvinnulífinu.
Með þátttöku í VINNANDI VEGI eiga atvinnurekendur kost á styrk með ráðningu nýrra starfsmanna úr hópi atvinnuleitenda. Átakið beinir sjónum sérstaklega að einstaklingum sem hafa verið án vinnu lengur en 12 mánuði.
Fyrirtæki og stofnanir geta:
- Ráðið starfsmann sem hefur verið án vinnu í 12 mánuði eða lengur og fengið 167.176 kr. á mánuði í styrk upp í kjarasamningsbundin laun, auk 8% framlags í lífeyrissjóð. Tímalengd ráðningarstyrks getur verið allt að 12 mánuðir.
- Ráðið starfsmann sem hefur verið án vinnu skemur en 12 mánuði og fengið allt að 6 mánaða styrk sem miðast við bótarétt starfsmannsins upp í kjarasamningsbundin laun, auk 8% framlags í lífeyrissjóð.
Átakið er tímabundið og stendur eingöngu frá 15. febrúar til 31. maí og tekur til ráðninga á því tímabili.
Tímalengd styrks er óháð þeim tíma sem atvinnuleitandi getur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Þannig getur atvinnurekandi fengið styrk vegna ráðningar starfsmanns af atvinnuleysisskrá svo fremi sem starfsmaðurinn hafi verið tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins þegar hann var ráðinn.
SKILYRÐI:
- Að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli í sér fjölgun starfsmanna.
- Að fyrir sé að minnsta kosti einn starfsmaður á launaskrá.
- Að síðastliðna sex mánuði hafi ekki verið sagt upp starfsmönnum sem gegnt höfðu störfum sem fyrirhugað er að ráða atvinnuleitendur til að gegna.
- Að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli ekki í sér verulega röskun á samkeppni innan atvinnugreinarinnar á því svæði sem um ræðir hverju sinni.
- Að staðfesting á launagreiðslu til viðkomandi atvinnuleitanda fylgi með reikningi hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar til Vinnumálastofnunar.
LEIÐIR TIL RÁÐNINGA
Við nýráðningar verður boðið upp á mismunandi leiðir sem henta fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum:
1. Almennar ráðningar
2. Reynsluráðningar
3. Starfsþjálfun
4. Nýsköpun innan fyrirtækja og stofnana
5. Eigið frumkvöðlastarf og/eða gerð viðskiptaáætlunar
6. Fyrirtækjanám
7. Vinnustaðaþjálfun
8. Átaksverkefni
HVERNIG GENGUR RÁÐNING FYRIR SIG?
- Atvinnurekandi sækir um aðgang að skráningu starfa í grunn verkefnisins Vinnandi vegur. Innan sólarhrings frá því að skráning berst fær atvinnurekandi aðgangsupplýsingar að sínu svæði í kerfinu, en þar er gengið frá öllum skráningum þeirra starfa sem leitað er að fólki í og óskar um leið eftir þjónustu ráðningamiðlunar.
- Ráðningarmiðlun, í samstarfi við atvinnurekanda, leitar að starfsmönnum sem uppfylla skilyrði atvinnurekanda og hefur milligöngu um starfsviðtöl.
- Við ráðningu starfsmanns skrifar atvinnurekandi undir þríhliða ráðningarsamning sem gerður er milli atvinnuleitanda, atvinnurekanda og Vinnumálastofnunar (VMST). Ráðningarmiðlunin vottar samninginn og sendir VMST til staðfestingar og afgreiðslu styrks.
17.2.2012
Atvinnutorg opnað
Atvinnutorg fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 16-25 ára var opnað í dag í Vinnumálastofnun. Ungt fólk í atvinnuleit fær aðstoð þar óháð rétti til atvinnuleysisbóta en aðaláherslan er þó á hóp ungs fólks sem er án bótaréttar eða er um það bil að klára bótarétt. Verkefnið er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar, velferðarráðuneytis og Vinnumálastofnunar. Atvinnutorgið er staðsett í Kringlunni 1 en ungmenni munu fá tilvísun til Atvinnutorgsins í gegnum virkniráðgjafa þjónustumiðstöðvanna og ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
2.2.2012
Breytt verklag vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu
Eftirfarandi breytingar á verklagi hafa nú tekið gildi vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu:
Ekki er heimilt að starfa við rekstur á eigin kennitölu / taka að sér verktakavinnu samhliða atvinnuleysisbótum.
- Atvinnuleitandi þarf að skrá sig af atvinnuleysisbótum þá daga sem verkefni stendur yfir.
- Afskráning þarf að eiga sér stað áður en verkefni hefst og að loknu verkefni þarf atvinnuleitandi að koma á þjónustuskrifstofu og óska eftir endurskráningu.
- Leggja þarf fram afrit af reikningi vegna vinnunnar eða skýringar sé ekki búið að gefa út reikning.
- Afrit af reikningi þarf að berast Vinnumálastofnun án ástæðulausrar tafar þegar reikningur er gefinn út.
- Afskrá þarf heilan dag þrátt fyrir að verktakavinna vari skemur en 8 klst.
- Jafnframt er ekki heimilt að safna upp tímum vegna verktakavinnu sbr. atvinnuleitandi sem kennir 2x2 klst í viku jafngildir afskráningu í 2 daga.
Hjá Vinnumálastofnun Suðurland eru 9 laus störf í 4 starfsauglýsingum. Ný störf í dag eru 0.
22.2.2012 - Suðurland
Almennir starfsmenn
20.2.2012 - Suðurland
Verkamaður
13.2.2012 - Suðurland
Leikskólakennari / leiðbeinandi
3.2.2012 - Suðurland
Kokkur / Chef
Þessi síða er í vinnslu.
Upplýsingar um stöðu á vinnumarkaði, atvinnuleysi, annað talnaefni og útgefið efni er að finna hér
Úrræði og átaksverkefni
Hér koma staðbundin úrræði og átaksverkefni á Suðurlandi.
Tenglar og ábendingar
Hér koma staðbundir tenglar og ábendingar á Vesturlandi.
Hafa samband
Vinnumálastofnun Suðurlandi
Austurvegur 56
800 Selfoss
Sími 512-7780
Bréfasími 571-0790
Netfang: sudurland@vmst.is
Starfsfólk
Opið alla virka daga frá klukkan 9:00 til 15:00,
Vinnumálastofnun í Vestmannaeyjum
Heiðarvegi 15
900 Vestmannaeyjar
Sími 512-7780
Bréfasími 481-1802
Netfang: sudurland@vmst.is
Opið alla virka daga frá klukkan 9:00 til 15:00,





English

