Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir Þjónustuskrifstofa suðurlands

4.4.2012

Styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað

Í gær var úthlutað styrkjum til atvinnumála kvenna og hlutu 36 verkefni styrk að upphæð alls kr. 26.010.000.

9.3.2012

Svanni – lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum

Svanni – lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um lánatryggingar í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna og er umsóknarfrestur til og með 16. apríl.  Sótt er um rafrænt á heimasíðunni www.svanni.is  en gert er ráð fyrir því að úthluta lánatryggingum eigi síðar en 16.júní.

Sérstök athygli er vakin á því að nú er hægt er að sækja um lánatryggingar allt árið um kring en úthlutað verður tvisvar á ári, að vori og að hausti.  

Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um lánatryggingu.   Einnig  er gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki og að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.
Viðskiptaáætlun þarf að fylgja umsóknum ásamt ítarlegum fjárhagsupplýsingum. Mikilvægt er að umsóknir séu vel unnar og vandaðar.

Unnt er að sækja um ábyrgð vegna eftirtalinna þátta:

  • Stofnkostnaðar
  • Markaðskostnaðar
  • Vöruþróunar
  • Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu á vöru/þjónustu

Í umsókn skulu eftirfarandi atriði koma fram:

  • Upplýsingar um umsækjanda
  • Greinargóð lýsing á verkefni/fyrirtæki, markmiðum þess og ávinningi
  • Hverjir koma að umsókninni, og tilgreining samstarfsaðila
  • Viðskiptaáætlun (ítarleg fjárhags-, og framkvæmdaráætlun)
  • Lýsing á fjármögnun og staðfesting fjármögnunaraðila ef þeir eru til staðar

Ábyrgð skal ekki vera undir 1 milljónum króna og að jafnaði skal hún ekki fara yfir 10 milljónir króna.  Sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann sem veitir lán og helming ábyrgðar á móti sjóðnum.

Til að fá lánatryggingu þarf að gera samning um handleiðslu og ráðgjöf við ráðgjafa og er slíkur samningur skilyrði fyrir því að ábyrgð sé veitt.  Í samningi skal kveðið á um fjölda viðtala og tilhögun ráðgjafarinnar sem er sniðin að þörfum hvers og eins.

Stjórn Svanna fer yfir og metur umsóknir í samvinnu og samráði við Landsbankann og er sameiginleg ákvörðun tekin um veitingar lánatrygginga.
 
Allar nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri Svanna í síma 582-4914 en einnig er hægt er að senda fyrirspurnir í netfangið svanni@svanni.is

21.2.2012

Vinnandi vegur

vinnandivegur

 

VINNANDI VEGUR er sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, sveitarfélaga, stéttarfélaga og ríkisins. Ávinningur allra er hafður að leiðarljósi: Um leið og atvinnurekendum er gert kleift að nýráða starfsfólk er atvinnuleitendum gefið tækifæri til þátttöku í atvinnulífinu.

Með þátttöku í VINNANDI VEGI eiga atvinnurekendur kost á styrk með ráðningu nýrra starfsmanna úr hópi atvinnuleitenda. Átakið beinir sjónum sérstaklega að einstaklingum sem hafa verið án vinnu lengur en 12 mánuði.

Fyrirtæki og stofnanir geta:

  • Ráðið starfsmann sem hefur verið án vinnu í 12 mánuði eða lengur og fengið 167.176 kr. á mánuði í styrk upp í kjarasamningsbundin laun, auk 8% framlags í lífeyrissjóð. Tímalengd ráðningarstyrks getur verið allt að 12 mánuðir.
  • Ráðið starfsmann sem hefur verið án vinnu skemur en 12 mánuði og fengið allt að 6 mánaða styrk sem miðast við bótarétt starfsmannsins upp í kjarasamningsbundin laun, auk 8% framlags í lífeyrissjóð.

Átakið er tímabundið og stendur eingöngu frá 15. febrúar til 31. maí og tekur til ráðninga á því tímabili.

Tímalengd styrks er óháð þeim tíma sem atvinnuleitandi getur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Þannig getur atvinnurekandi fengið styrk vegna ráðningar starfsmanns af atvinnuleysisskrá svo fremi sem starfsmaðurinn hafi verið tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins þegar hann var ráðinn.

SKILYRÐI:

  1. Að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli í sér fjölgun starfsmanna.
  2. Að fyrir sé að minnsta kosti einn starfsmaður á launaskrá.
  3. Að síðastliðna sex mánuði hafi ekki verið sagt upp starfsmönnum sem gegnt höfðu störfum sem fyrirhugað er að ráða atvinnuleitendur til að gegna.
  4. Að ráðning viðkomandi atvinnuleitanda feli ekki í sér verulega röskun á samkeppni innan atvinnugreinarinnar á því svæði sem um ræðir hverju sinni.
  5. Að staðfesting á launagreiðslu til viðkomandi atvinnuleitanda fylgi með reikningi hlutaðeigandi fyrirtækis eða stofnunar til Vinnumálastofnunar.

LEIÐIR TIL RÁÐNINGA

Við nýráðningar verður boðið upp á mismunandi leiðir sem henta fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum:

1. Almennar ráðningar

2. Reynsluráðningar

3. Starfsþjálfun

4. Nýsköpun innan fyrirtækja og stofnana

5. Eigið frumkvöðlastarf og/eða gerð viðskiptaáætlunar

6. Fyrirtækjanám

7. Vinnustaðaþjálfun

8. Átaksverkefni

HVERNIG GENGUR RÁÐNING FYRIR SIG?

  1. Atvinnurekandi sækir um aðgang að skráningu starfa í grunn verkefnisins Vinnandi vegur. Innan sólarhrings frá því að skráning berst fær atvinnurekandi aðgangsupplýsingar að sínu svæði í kerfinu, en þar er gengið frá öllum skráningum þeirra starfa sem leitað er að fólki í og óskar um leið eftir þjónustu ráðningamiðlunar.
  2. Ráðningarmiðlun, í samstarfi við atvinnurekanda, leitar að starfsmönnum sem uppfylla skilyrði atvinnurekanda og hefur milligöngu um starfsviðtöl.
  3. Við ráðningu starfsmanns skrifar atvinnurekandi undir þríhliða ráðningarsamning sem gerður er milli atvinnuleitanda, atvinnurekanda og Vinnumálastofnunar (VMST). Ráðningarmiðlunin vottar samninginn og sendir VMST til staðfestingar og afgreiðslu styrks.

17.2.2012

Atvinnutorg opnað

Atvinnutorg fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 16-25 ára var opnað í dag í Vinnumálastofnun. Ungt fólk í atvinnuleit fær aðstoð þar óháð rétti til atvinnuleysisbóta en aðaláherslan er þó á hóp ungs fólks sem er án bótaréttar eða er um það bil að klára bótarétt. Verkefnið er samvinnuverkefni Reykjavíkurborgar, velferðarráðuneytis og Vinnumálastofnunar. Atvinnutorgið er staðsett í Kringlunni 1 en ungmenni munu fá tilvísun til Atvinnutorgsins í gegnum virkniráðgjafa þjónustumiðstöðvanna og ráðgjafa Vinnumálastofnunar.

2.2.2012

Breytt verklag vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu

Eftirfarandi breytingar á verklagi hafa nú tekið gildi vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu:
Ekki er heimilt að starfa við rekstur á eigin kennitölu / taka að sér verktakavinnu samhliða atvinnuleysisbótum.

23.1.2012

Hefur þú hugmynd ?

 

Hefur þú hugmynd?

Hefur þú góða viðskiptahugmynd? Rekur þú fyrirtæki og vilt þróa nýja vöru eða þjónustu?   

Vinnumálastofnun/Velferðarráðuneyti  auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2012 lausa til umsóknar.  Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

  • Verkefnið sé í eigu konu/kvenna og stjórnað af konu
  • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun
  • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar
  • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð
  • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetingar og gerðar markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar.
  • Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd. 

Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 30.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 3.000.000.  Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 400.000.

Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2012 og skal sækja um rafrænt á heimasíðu verkefnisins en þar má ennfremur finna nánari upplýsingar um styrkina.

www.atvinnumalkvenna.is

13.1.2012

Atvinnuleysi 7,3% í desember

Skráð atvinnuleysi í desember s.l. var 7,3% sem svarar til þess að 11.760 einstaklingar hafi verið án atvinnu. Var það 412 fleiri en í nóvember en þá var skráð atvinnuleysi 7,1%.

9.1.2012

Breyting á lögum um viðbótarlífeyrissparnað - Vinnumálastofnun sér um breytingar

Alþingi samþykkti í árslok að breyta tekjuskattslögum á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekjuskattsstofni verði 2% í stað 4% næstu þrjú ár. Lagasetningin kallar ekki á að breyta þurfi núgildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldastofni. Vinnumálastofnun hefur því lækkað sparnað umsækjenda um atvinnuleysisbætur niður í 2% og þurfa þeir sem vilja greiða hærra iðgjald að óska sérstaklega eftir því með því að senda beiðni á greidslustofa@vmst.is.

22.9.2011

Svanni - lánatryggingasjóður kvenna tekur til starfa

Svanni- lánatryggingasjóður kvenna verður formlega settur á laggirnar á morgun föstudaginn 23. september. Svanni veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir og er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Sjóðurinn veitir helmin ábyrgðar á móti banka.  

Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu og gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki. Einnig er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.  Hægt verður að sækja um lánatryggingar á heimasíðu  Svanna frá þeim degi og er umsóknarfrestur til og með 19. október í þessari fyrstu umsóknarlotu.  Nánari upplýsingar um verkefnið er hægt að nálgast hér.

20.9.2011

Breytingar á starfstengdum vinnumarkaðsúrræðum

Alþingi samþykkti í byrjun september 2011 breytingu á  lögum um  starfstengd vinnumarkaðsúrræði hjá Vinnumálastofnun. Frá og með 2. september  telja starfstengd vinnumarkaðsúræði eins og  starfsþjálfun, reynsluráðning, átaksverkefni og starfsorkan  ekki af bótarétti atvinnuleitanda.  Þannig að bótaréttur þessa fólks er í raun frystur á meðan á úrræðinu stendur. Allir þeir sem eru í vinnumarkaðsúrræðum eru því afskráðir og þurfa ekki að stimpla sig á meðan þeir eru í vinnu.

Ef starfsmaðurinn er atvinnulaus eftir að  samningstíma lýkur  er nauðsynlegt að koma með vottorð vinnuveitenda  og skrá sig aftur  hjá Vinnumálastofnun.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu