Nįm og nįmsleišir į Sušurlandi
Námskeið í boði Vinnumálastofnunar á Suðurlandi
Vinnumálastofnun greiðir að fullu námsskeiðskostnað vegna eftirtalinna námskeiða:
Til að skrá sig á námskeiðin er hægt að senda tölvupóst svava.jonsdottir@vmst.is eða í síma 512-7780
Erum einnig á FACEBOOK
Skrifstofuskólinn
Skrifstofuskólinn: 240 stunda nám, helstu námsþættir eru:
Tölvu- og upplýsingatækni, verslunarreikningur og bókhald, enska, þjónusta, sjálfsstyrking og námstækni.
Námið fer fram á Selfossi
Opin smiðja:
120 stunda námskeið í samvinnu við Stúdíó Sýrland í kvikmyndagerð, tónlist, hljóðvinnslu og leiklist.
Stúdíó Sýrland býður nú upp á fjölbreytt námskeið í samstarfi við Vinnumálastofnun. Þar kynnast þátttakendur vinnu við mismunandi listgreinar og tæknivinnu þeim tengdum. Námskeiðið er blanda af fyrirlestrum, styttri námskeiðum og viðtölum. Áhersla er lögð á að sýna þátttakendum fram á möguleika við að skapa sér atvinnutækifæri með þjálfun og þekkingu, í þessu tilfelli tengt listum. Mikil áhersla er lögð á að hver þátttakandi sé virkur í öllu ferlinu og að sveigjanleiki sé fyrir hendi til að enginn sitji eftir í einstökum námsgreinum. Leitast er við að hver og einn ráði við þau verkefni sem lögð eru fyrir.
Nám og þjálfun
Nám og þjálfun er námskeið sem tekur mið af námskrá framhaldsskólans. Áhersla er lögð á áfanga í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku. Einnig er kennd sjálfsstyrking, námstækni og samskipti. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám. Meta má námið til eininga.
Dale Carnegie
Langar þig að öðlast sjálfstraust og hugsun sigurvegarans, eflast við hverja raun og vinna markvisst að því að draumar þínir rætist? Þráir þú að ná markmiðum þínum í vinnunni og einkalífinu á auðveldan og skipulagðan hátt? Þú getur skapað þína eigin velgengni í stað þess að efast um eigið ágæti og líta þá öfundaraugum sem ná árangri í lífinu. Þú getur orðið leiðtogi á öllum sviðum og haft stjórn á áhyggjum og streitu. Þér standa allir vegir færir. Ef þú vilt!
5 drifkraftar velgengninnar
Á Dale Carnegie námskeiðinu gefst þér kostur á að byggja upp hæfileika þína á fimm sviðum. Þetta eru í raun drifkraftar velgengninnar og markmið námskeiðsins er að:
1) Efla sjálfstraustið
2) Bæta hæfni í mannlegum samskiptum
3) Efla tjáningarhæfileikana
4) Þróa leiðtogahæfileika
5) Bæta lífsviðhorf okkar
Vinnuvélanámskeið
Vinnuvélanámskeið er skjót leið til starfsmenntunar og gefur rétt til próftöku á allskyns vinnuvélar.
Aðrar námstengdar upplýsingar:
NÁMSSAMNINGAR – í samráði við ráðgjafa Vinnumálastofnunar
Námssamningar veita möguleika á að stunda nám í eina námsönn (þrettán vikur). Umsókn og skipulag námsins þarf að vinna í samráði við ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Námssamningar eru háðir eftirfarandi skilyrðum:
- Að hafa starfað sem launamaður samfellt á síðustu sex mánuðum á innlendum vinnumarkaði
- Námið skilgreint sem vinnumarkaðsúrræði
- Námið má ekki vera lánshæft hjá LÍN
- Samráð skal haft við ráðgjafa Vinnumálastofnunar um val á námi og námskeiðum áður en skráning á námskeið fer fram
- Ráðgjafi Vinnumálastofnunar leggur mat á umsókn Umsóknina má nálgast hér.
Nánar má lesa um námssamninga með því að smella á linka hér fyrir neðan.
NÁMSSTYRKIR
Ef atvinnuleitendur hafa áhuga á að sækja önnur námskeið en þau sem þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar býður geta þeir sótt um námsstyrk til að greiða niður námskeiðsgjald. Námsstyrkirnir eru háðir eftirfarandi skilyrðum:
- Að námið auki verulega líkur á vinnu – auk þessi fylgi umsókn:
- Námslýsing frá skóla/námskeiðshaldara (auk upplýsinga um nafn fræðslu-stofnunar og staðsetningu náms)
- Námskostnaður (sundurliðaður ef annar er námskeiðsgjöld)
- Lengd náms, tímasetning og fjöldi kennslustunda
- Umsókn um námsstyrk þarf að liggja fyrir a.m.k. fimm virkum dögum fyrir upphaf námskeiðs til að unnt sé að afgreiða umsóknina áður en námskeiðið hefst. Umsóknina má nálgast hér.
Nánar má lesa um námstyrki með því að smella á þennan link. Námsstyrkur
Námskeiðshaldarar og fræðslumiðstöðvar
Hér fyrir neðan eru tenglar á þá námskeiðshaldara og fræðslumiðstöðvar sem algengt er að atvinnuleitendur leiti til Vinnumálastofnunar á Suðurlandi með umsókn um námsstyrk.
Fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja
Hafa samband
Vinnumálastofnun Suðurlandi
Austurvegur 56
800 Selfoss
Sími 512-7780
Bréfasími 571-0790
Netfang: sudurland@vmst.is
Starfsmenn
Opið alla virka daga frá klukkan 9:00 til 15:00,
Vinnumálastofnun í Vestmannaeyjum
Heiðarvegi 15
900 Vestmannaeyjar
Sími 512-7780
Bréfasími 481-1802
Netfang: sudurland@vmst.is
Starfsmenn
Opið alla virka daga frá klukkan 9:00 til 12:30,




English

