Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Suðurnes

2.2.2012

Breytt verklag vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu

Eftirfarandi breytingar á verklagi hafa nú tekið gildi vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu:
Ekki er heimilt að starfa við rekstur á eigin kennitölu / taka að sér verktakavinnu samhliða atvinnuleysisbótum.

  • Atvinnuleitandi þarf að skrá sig af atvinnuleysisbótum þá daga sem verkefni stendur yfir.
  • Afskráning þarf að eiga sér stað áður en verkefni hefst og að loknu verkefni þarf atvinnuleitandi að koma á þjónustuskrifstofu og óska eftir endurskráningu.
  • Leggja þarf fram afrit af reikningi vegna vinnunnar eða skýringar sé ekki búið að gefa út reikning.
  • Afrit af reikningi þarf að berast Vinnumálastofnun án ástæðulausrar tafar þegar reikningur er gefinn út.
  • Afskrá þarf heilan dag þrátt fyrir að verktakavinna vari skemur en 8 klst.
  • Jafnframt er ekki heimilt að safna upp tímum vegna verktakavinnu sbr. atvinnuleitandi sem kennir 2x2 klst í viku jafngildir afskráningu í 2 daga.

25.1.2012

Styrkir til atvinnumála kvenna

Hefur þú hugmynd?

Hefur þú góða viðskiptahugmynd? Rekur þú fyrirtæki og vilt þróa nýja vöru eða þjónustu?

Vinnumálastofnun/Velferðarráðuneyti auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2012 lausa til umsóknar. Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

13.1.2012

Atvinnuleysi 7,3% í desember

Skráð atvinnuleysi í desember s.l. var 7,3% sem svarar til þess að 11.760 einstaklingar hafi verið án atvinnu. Var það 412 fleiri en í nóvember en þá var skráð atvinnuleysi 7,1%.

Hjá Vinnumálastofnun Suðurnes eru 2 laus störf í 2 starfsauglýsingum. Ný störf í dag eru 0.


Hafa samband

Vinnumálastofnun Suðurnesjum
Krossmói 4a - 2. hæð
260 Reykjanesbær

Sími 421-8400
Bréfasími 421-8405

Netföng:

Almennar fyrirspurnir og tilkynningar:

sudurnes@vmst.is

Ráðgjafapóstur:

radgjafarsudurnes@vmst.is

Starfsfólk

Opið alla virka daga frá klukkan 9:00 til 15:00


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu