Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir Þjónustuskrifstofa suðurnesja

4.4.2012

Styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað

Í gær var úthlutað styrkjum til atvinnumála kvenna og hlutu 36 verkefni styrk að upphæð alls kr. 26.010.000.

16.3.2012

Svanni – lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum

 

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um lánatryggingar í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna og er umsóknarfrestur til og með 16. apríl. Sótt er um rafrænt á heimasíðunni www.svanni.is en gert er ráð fyrir því að úthluta lánatryggingum eigi síðar en 16.júní.

 

Sérstök athygli er vakin á því að nú er hægt er að sækja um lánatryggingar allt árið um kring en úthlutað verður tvisvar á ári, að vori og að hausti.

 

Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um lánatryggingu. Einnig er gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki og að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.
Viðskiptaáætlun þarf að fylgja umsóknum ásamt ítarlegum fjárhagsupplýsingum. Mikilvægt er að umsóknir séu vel unnar og vandaðar.

2.2.2012

Breytt verklag vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu

Eftirfarandi breytingar á verklagi hafa nú tekið gildi vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu:
Ekki er heimilt að starfa við rekstur á eigin kennitölu / taka að sér verktakavinnu samhliða atvinnuleysisbótum.

25.1.2012

Styrkir til atvinnumála kvenna

Hefur þú hugmynd?

Hefur þú góða viðskiptahugmynd? Rekur þú fyrirtæki og vilt þróa nýja vöru eða þjónustu?

Vinnumálastofnun/Velferðarráðuneyti auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2012 lausa til umsóknar. Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

13.1.2012

Atvinnuleysi 7,3% í desember

Skráð atvinnuleysi í desember s.l. var 7,3% sem svarar til þess að 11.760 einstaklingar hafi verið án atvinnu. Var það 412 fleiri en í nóvember en þá var skráð atvinnuleysi 7,1%.

13.1.2012

ÞOR og UFTA vorönn 2012

Ákveðnum hópi atvinnuleitenda hefur nú borist tölvupóstur þar sem bent er á úrval vinnumarkaðsúrræða sem þeim stendur til boða á vorönn 2012. Aðrir atvinnuleitendur fá sent bréf eða tölvupóst á næstu dögum þar sem þeim verður gefinn kostur á að velja úrræði. Þetta er liður í átaksverkefnunum ÞOR og UFTA sem hafa verið starfrækt undanfarin misseri.

 

Þú getur smellt hér til að fara inná síðu átaksins.

21.11.2011

Atvinnuleitendur á Suðurnesjum!

Viltu vinna 10.000 kr gjafabréf  í Kringluna?  Þú átt möguleika á því ef þú svarar könnun frá Capacent Gallup sem send hefur verið á netfangið þitt.  Markmiðið með könnuninni er að koma til móts við þarfir/óskir atvinnuleitenda varðandi vinnumarkaðsúrræði og að kanna viðhorf og líðan þeirra. Til að niðurstöður nýtist sem best er mikilvægt að sem flestir svari könnuninni.

28.9.2011

Komdu hugmynd í framkvæmd

Helgina 30. september til 2. október fer fram Atvinnu- og nýsköpunarhelgin á Suðurnesjum. Viðburðurinn er haldinn í þeim tilgangi að stuðla að því að góðar hugmyndir verði að veruleika og það kostar ekkert að taka þátt.

Þátttakendur mæta á staðinn, með eða án hugmyndar, og fá innblástur og leiðsögn við að byggja upp viðskiptahugmynd sem gæti í framtíðinni orðið að fullvaxta fyrirtæki og atvinnutækifæri.

22.9.2011

Svanni - lánatryggingasjóður kvenna tekur til starfa

Svanni- lánatryggingasjóður kvenna verður formlega settur á laggirnar á morgun föstudaginn 23. september. Svanni veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir og er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Sjóðurinn veitir helmin ábyrgðar á móti banka.  

Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu og gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki. Einnig er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.  Hægt verður að sækja um lánatryggingar á heimasíðu  Svanna frá þeim degi og er umsóknarfrestur til og með 19. október í þessari fyrstu umsóknarlotu.  Nánari upplýsingar um verkefnið er hægt að nálgast hér.

20.9.2011

Breytingar á starfstengdum vinnumarkaðsúrræðum

Alþingi samþykkti í byrjun september 2011 breytingu á  lögum um  starfstengd vinnumarkaðsúrræði hjá Vinnumálastofnun. Frá og með 2. september  telja starfstengd vinnumarkaðsúræði eins og  starfsþjálfun, reynsluráðning, átaksverkefni og starfsorkan  ekki af bótarétti atvinnuleitanda.  Þannig að bótaréttur þessa fólks er í raun frystur á meðan á úrræðinu stendur. Allir þeir sem eru í vinnumarkaðsúrræðum eru því afskráðir og þurfa ekki að stimpla sig á meðan þeir eru í vinnu.

Ef starfsmaðurinn er atvinnulaus eftir að  samningstíma lýkur  er nauðsynlegt að koma með vottorð vinnuveitenda  og skrá sig aftur  hjá Vinnumálastofnun.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu