Fréttir Þjónustuskrifstofa suðurnesja
25.1.2012
Styrkir til atvinnumála kvenna
Hefur þú hugmynd?
Hefur þú góða viðskiptahugmynd? Rekur þú fyrirtæki og vilt þróa nýja vöru eða þjónustu?
Vinnumálastofnun/Velferðarráðuneyti auglýsir styrki til atvinnumála kvenna vegna ársins 2012 lausa til umsóknar. Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.
- Verkefnið sé í eigu konu/kvenna og stjórnað af konu
- Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun
- Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar
- Viðskiptahugmynd sé vel útfærð
- Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetingar og gerðar markaðsáætlunar, þróunar vöru eða þjónustu, hönnunar og efniskostnaðar.
- Ennfremur geta konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun og hafa hug á því að stofna fyrirtæki á næstunni eða hafa stofnað fyrirtæki en ekki hafið rekstur, sótt um styrk til að koma henni í framkvæmd.
Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 30.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 3.000.000. Ekki eru veittir lægri styrkir en kr. 400.000.
Umsóknarfrestur er til og með 14.02.2012 og skal sækja um rafrænt á heimasíðu verkefnisins en þar má ennfremur finna nánari upplýsingar um styrkina.
Fá auglýsingar í pdf formi og jpg
Með því að smella hér getur þú skoðað auglýsingu verkefnisins.




English

