Tilkynningar VMST Suðurnesjum
Hér eru birtar tilkynningar til atvinnuleitenda á Suðurnesjum
Tilkynningar eru birtar í dagsetningaröð, nýjustu færslur efst.
13.01.2012
ÞOR og UFTA vorönn 2012
Nú hafa verið sett inn á síðu undir Úrræði og átaksverkefni, úrval vinnumarkaðsúrræða sem standa atvinnuleitendum til boða að velja nú á vorönn. Þetta er liður í átaksverkefnunum ÞOR og UFTA sem hafa verið starfrækt undanfarin misseri.
Atvinnuleitendur sem ekki eru í annari virkni, þ.e. með námssamning eða í hlutastarfi, og hafa verið á bótum samfellt frá 1. október 2011 eða lengur þurfa að velja sér vinnumarkaðsúrræði fyrir mánudaginn 23. janúar.
Vinsamlegast fylgið leiðbeiningum við skráningu. Þú getur smellt hér til að fara inná síðu átaksins.
_______________________________________________________________________
18.11.2011
Atvinnuleitendur á Suðurnesjum!
Viltu vinna 10.000 kr gjafabréf í Kringluna? Þú átt möguleika á því ef þú svarar könnun frá Capacent Gallup sem send hefur verið á netfangið þitt. Markmiðið með könnuninni er að koma til móts við þarfir/óskir atvinnuleitenda varðandi vinnumarkaðsúrræði og að kanna viðhorf og líðan þeirra. Til að niðurstöður nýtist sem best er mikilvægt að sem flestir svari könnuninni.
Job seekers in Suðurnes (Garður, Grindavík, Reykjanesbær, Sandgerði og Vogar)!
Would you like to win a 10.000 krona gift certificate to Kringlan shopping centre? You have the chance if you reply to the Capacent Gallup questionnaire that has been sent to your e-mail address. The aim of the questionnaire is to investigate the attitudes and conditions of job seekers to better meet their needs and wishes with regards to labour market measures. In order for the questionnaire to achieve the most effective results, is important that as many as possible reply.
Osoby poszukujące pracy w Suðurnes (Garður, Grindavík, Reykjanesbær, Sandgerði og Vogar)!
Czy chcesz wygrać bon do centrum handlowego Kringlan o wartości 10.000 kr? Masz taką szansę jeśli odpowiesz na ankietę przeprowadzaną przez Capacent Gallup która zostanie przesłana na Twój adres poczty elektronicznej. Celem ankiety jest poznanie potrzeb / preferencji osób poszukujących pracy dotyczących rozwiązań na rynku pracy oraz zbadanie ich nastawienia i samopoczucia Aby optymalnie wykorzystać wyniki jest bardzo ważne aby jak najwięcej osób odpowiedziało na ankietę.
_______________________________________________________________________
20.10.2011
Þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum verður lokuð fimmtudaginn 27. október frá klukkan 11:30 vegna starfsdags þeirra sem vinna að velferðamálum á Suðurnesjum.
Opnum aftur föstudaginn 28. október klukkan 9, en bendum á að opið verður á fimmtudeginum frá klukkan 9 - 11:30.
_______________________________________________________________________
15.9.2011
Nú hafa verið sett inn á síðu undir Úrræði og átaksverkefni, úrval námskeiða sem stendur atvinnuleitendum til boða að velja nú á haustönn. Þetta er liður í átaksverkefnunum ÞOR og UFTA sem hafa verið starfrækt undanfarin misseri.
Atvinnuleitendur sem ekki eru í annari virkni, þ.e. með námssamning eða í hlutastarfi, og hafa verið á bótum samfellt frá 1. maí 2011 eða lengur þurfa að velja sér námskeið fyrir miðvikudaginn n.k. (21. september). Vinsamlegast fylgið leiðbeiningum við skráningu. Þú getur smellt hér til að fara inná síðu átaksins.
_______________________________________________________________________
01.09.2011
MSS (Miðstöð símnenntunar á Suðurnesjum) hefur bætt við námskeiðsframboð sitt!
Hægt er að finna öll þau námskeið sem MSS býður uppá með því að smella á neðangreindan tengil, til að fá nánari upplýsingar um hvert námskeið er smellt á heiti námskeiðsins. Meðal nýrra námskeiða sem MSS býður uppá eru Ættfræðigrúsk og Veðurfar á Suðurnesjum. Vinnumálastofnun vill þó árétta að tómstundanámskeið eru ekki niðurgreidd af Vinnumálastofnun.
_______________________________________________________________________
26.08.2011
Námskeið fyrir atvinnuleitendur sem vilja taka þátt í verkefninu Félagsvinir atvinnuleitenda eru að fara í gang á suðurnesjum í byrjun september. Verkefnið hefur það markmið að virkja og styrkja atvinnuleitendur í starfsleit sinni. Það er meðal annars gert með því að auka aðgengi þeirra að upplýsingum um þau úrræði sem eru í boði fyrir atvinnuleitendur. Markmiðin fyrir þátttakendur verkefnisins eru: Hjálp til sjálfshjálpar, vinna gegn niðurbroti, stækka tengslanet og auka möguleika til starfa. Vert er að taka fram að námskeiðin eru þátttakendum að kostnaðarlausu en skráning nauðsynleg.
Nánar er hægt að lesa um verkefnið hér.
Guðmundur Ingvar Jónsson er verkefnastjóri þessa verkefnis og er öllum fyrirspurnum beint til hans. Hægt er að hafa samband við Guðmund í síma 420-4706 eða með tölvupósti í netfangið gij@redcross.is
_______________________________________________________________________
25.08.2011
Sú krafa verður nú gerð til atvinnuleitenda að þeir eigi ferilskrá og skili henni inná mínar síður á heimasíðu Vinnumálastofnunar, fljótlega verður birt tilkynning þess efnis inná mínum síðum.
Eins og atvinnuleitendur hafa eflaust orðið varir við er ferilskrá afar mikilvægt verkfæri í atvinnuleit. Góð ferilskrá eykur möguleika á atvinnuviðtali til muna og samhliða því möguleikum á starfi. Eigir þú ferilskrá getur þú nálgast leiðbeiningar um það hvernig henni er skilað inn á "mínar síður" hér.
Eigir þú hins vegar ekki ferilskrá viljum við bjóða þér á námskeið sem ber heitið Árangursríkari starfsleit. Á því námskeiði er farið í gerð færnimöppu og ferilskráar og veitt aðstoð við að koma ferilskránni fyrir á réttum stað. Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráningu má finna hér.
_______________________________________________________________________
22.08.2011
Nú hafa verið settar inn upplýsingar, undir slóð þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar hér á Suðurnesjum, til viðbótar við laus störf. Nýjar upplýsingar sem settar hafa verið inn eru í flipunum: Úrræði og átaksverkefni, Tenglar og ítarefni og Tilkynningar VMST Suðurnesjum. Þeir sem eru með netfang skráð hjá Vinnumálastofnun munu á næstu dögum fá tilkynnigu í tölvupósti um þessa viðbót. Það er von okkar að þetta komi atvinnuleitendum á svæðinu til góða og að þeir komi til með að fylgjast vel með viðbótum og breytingum á síðunni.




English

