Námskeið
Námskeið í boði Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum
Vinnumálastofnun greiðir að fullu námsskeiðskostnað vegna eftirtalinna námskeiða:
Árangursríkari starfsleit
Námskeið fyrir þá sem ekki eiga ferilskrá eða vilja aðstoð við að uppfæra ferilskrá sína. Á námskeiðinu er þátttakendum leiðbeint við gerð færnimöppu og ferilskráar og þeim hjálpað við að hlaða ferilskránni niður á „mitt svæði“ á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Fyrirkomulag námskeiðsins er sem hér segir: Dagur 1 - fyrirlestur og færnimappa (3 klst), Dagur 2 - ferilskrá og niðurhal á vef (3 klst). Námskeiðið er samtals 6 klukkustundir og verða haldin tvö námskeið á viku, annars vegar mánudag og þriðjudag og hins vegar fimmtudag og föstudag milli klukkan 9:00 og 12:00. Atvinnuleitandi getur óskað eftir skráningu á námskeið með tölvupósti á radgjafarsudurnes@vmst.is, reynt verður að verða við óskum um skráningu ákveðna daga sé það er tekið fram.
Tölvunám.is
Gagnvirkt tölvunám á netinu – Námið hentar bæði byrjendum og lengra komnum og hægt er að velja um kennslu í nýja Microsoft Office skrifstofuvendlinum Office 2007 eða eldri útgáfunni Office Xp. Nemendur fá aðgang að kennslu á Excel, Word, Power Point og Outlook, geta tekið próf og fengið prófskírteini sem staðfestir hæfni. Hafir þú áhuga á þessu getur þú sent póst á radgjafarsudurnes@vmst.is og óskað eftir skráningu.
Íslenska fyrir útlendinga
Atvinnuleitendur fá niðurgreitt að fullu eitt íslensku námskeið. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Saga Akademía halda íslenskunámskeið fyrir útlendinga. Viðkomandi hefur samband við ráðgjafa Vinnumálastofnunar til að athuga sinn rétt á niðurgreiðslu og skráir sig því næst hjá námskeiðshaldara.
Aðrar námstengdar upplýsingar:
NÁMSSAMNINGAR – í samráði við ráðgjafa Vinnumálastofnunar
Námssamningar veita möguleika á að stunda nám í eina námsönn (þrettán vikur). Umsókn og skipulag námsins þarf að vinna í samráði við ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Námssamningar eru háðir eftirfarandi skilyrðum:
- Að hafa starfað sem launamaður samfellt á síðustu sex mánuðum á innlendum vinnumarkaði
- Námið skilgreint sem vinnumarkaðsúrræði
- Námið má ekki vera lánshæft hjá LÍN
- Samráð skal haft við ráðgjafa Vinnumálastofnunar um val á námi og námskeiðum áður en skráning á námskeið fer fram
- Ráðgjafi Vinnumálastofnunar leggur mat á umsókn Umsóknina má nálgast hér.
Nánar má lesa um námssamninga með því að smella á linka hér fyrir neðan.
NÁMSSTYRKIR
Ef atvinnuleitendur hafa áhuga á að sækja önnur námskeið en þau sem þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar býður geta þeir sótt um námsstyrk til að greiða niður námskeiðsgjald. Námsstyrkirnir eru háðir eftirfarandi skilyrðum:
- Að námið auki verulega líkur á vinnu – auk þessi fylgi umsókn:
- Námslýsing frá skóla/námskeiðshaldara (auk upplýsinga um nafn fræðslu-stofnunar og staðsetningu náms)
- Námskostnaður (sundurliðaður ef annar er námskeiðsgjöld)
- Lengd náms, tímasetning og fjöldi kennslustunda
- Umsókn um námsstyrk þarf að liggja fyrir a.m.k. fimm virkum dögum fyrir upphaf námskeiðs til að unnt sé að afgreiða umsóknina áður en námskeiðið hefst. Umsóknina má nálgast hér.
Nánar má lesa um námstyrki með því að smella á þennan link. Námstyrkur
Námskeiðshaldarar og fræðslumiðstöðvar
Hér fyrir neðan eru tenglar á þá námskeiðshaldara og fræðslumiðstöðvar sem algengt er að atvinnuleitendur leiti til Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum með umsókn um námstyrk.
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum – ATH að enn er opið fyrir skráningu í Grunnmenntastoðir og Menntastoðir
Ökuskóli SG í Garðinum - er ekki með heimasíðu - s: 892-6570




English

