Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

ÞOR og UFTA úrræði

Námsval í úrræðum UFTA og ÞOR vorönn 2012

 

Vinnumálastofun Suðurnesjum hefur undanfarin misseri boðið atvinnuleitendum sem hafa verið án atvinnu til lengri tíma uppá þátttöku á fjölbreytilegum námskeiðum / vinnumarkaðsúrræðum. Þetta átak heldur áfram og hér neðar á síðunni má sjá það úrval sem atvinnuleitendum stendur til boða þessa önn. Sú breyting er þó á verkefninu að þessu sinni að nú verður öllum atvinnuleitendum boðin þátttaka óháð lengd á atvinnuleysisskrá. Skylduþátttaka verður fyrir þá sem hafa verið á skrá frá 1. október 2011 eða lengur.

Við hvetjum þig til að skoða vel neðangreindan lista. Þú velur  tvö úrræði sem þú hefur áhuga á að sækja, það fyrra sem fyrsta val og það seinna til vara. Því næst sendir þú póst í netfangið radgjafarsudurnes@vmst.is. Þar tekur þú fram nafn þitt, kennitölu og leyniorð (leyniorðið er það sama og þú notar við innskráningu á "mínar síður" við mánaðalega staðfestingu á atvinnuleit). Því næst telur þú upp þau úrræði sem þú hefur áhuga á þátttöku í og skráir tölustafinn 1 fyrir framan það sem þú myndir helst vilja sækja en 2 fyrir framan það sem þú setur í annað sæti (úrræði sem þú myndir vilja fara á fari úrræðið sem þú settir í fyrsta val ekki af stað).

Skráningarfrestur er til og með 22. janúar 2012


Athugið:

Atvinnuleitendur með námssamning eru undanskildir þátttöku.

 

Dæmi um tölvupóst: 

Ath hafa í efnislínu "Val í UFTA" sértu á aldursbilinu 16-29 ára, en "Val í ÞOR" sértu 30 ára eða eldri)

tölvupóstur_dæmi

 

 

Námskeið í boði, raðað í stafrófsröð eftir námsskeiðshaldara:


Bruen

BTM - Breytingar - Tækifæri - Markmið


Fisktækniskólinn

Vélavörður - Fullbókað

Skipstjórnaréttindi (pungapróf) - Fullbókað


Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Aftur í nám - Fullbókað

Fjörefni (-25)

Færni í ferðaþjónustu - Fellt út

Gólfefnasmiðja - Fellt út

Grafísk hönnunarsmiðja - Fullbókað

Grunnmenntaskólinn  

Hljóðsmiðja

Járn- og trésmiðja

Kaffi- og barþjónanámskeið - Fullbókað

Kvikmyndasmiðja

Lífið er yndislegt (55+)

Matarsmiðja - Fellt út

Sjálfstyrking, tjáning og hreyfing! - Fullbókað

Skrifstofuskólinn I

Skrifstofuskólinn II - Fellt út

Textilsmiðja - Fellt út

Tölvur og samskipti

Umhverfissmiðja - Fellt út

 

Íslenska I - V

Landnemaskólinn


Nýsköpunarmiðstöð

Frumkvöðlar og stjórnun


Saga Akademía

Íslenska I - V

 

Tölvuskóli Suðurnesja - öll námskeið farin af stað

Byrjendanámskeið - Fullbókað

Grunnur fyrir störf í gagnaveri A+ 

Tölvunám fyrir lengra komna - Fullbókað

Windows sérfræðingur

 

Önnur virkniúrræði:

 

Rauði krossinn - Sjálfboðaliðastarf - Nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar

Virkjun


 



Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu