Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Fréttir Þjónustuskrifstofa vestfjarða

17.4.2012

Vinnumálastofnun á Vestfjörðum


Vinnumálastofnun á Vestfjörðum er lokuð í dag miðvikudaginn 18. apríl
vegna fundar starfsmanna


Hægt er að hafa samband við þjónustuver Vinnumálastofnunar s. 512 7790 varðandi afgreiðslu og upplýsingar. Skráning í atvinnuleit og umsóknir um atvinnuleysisbætur er gerðar á vef Vinnumálastofnunar: vinnumalastofnun.is en koma þarf innan 14 daga frá því að umsókn var gerð með tilskilin gögn. ATHUGIÐ að sækja þarf um á vefnum. Ef verið er að skila gögnum má skila þeim í afgreiðslu Háskólaseturs.

Ef áríðandi má hafa samband við forstöðumann í s. 861 7285. Með óskum um gleðilegt sumar með þökkum fyrir samstarfið á vetrinum sem er að líða.

Starfsmenn Vinnumálastofnunar á Vestfjörðum

4.4.2012

Styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað

Í gær var úthlutað styrkjum til atvinnumála kvenna og hlutu 36 verkefni styrk að upphæð alls kr. 26.010.000.

2.2.2012

Breytt verklag vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu

Eftirfarandi breytingar á verklagi hafa nú tekið gildi vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu:
Ekki er heimilt að starfa við rekstur á eigin kennitölu / taka að sér verktakavinnu samhliða atvinnuleysisbótum.

13.1.2012

Atvinnuleysi 7,3% í desember

Skráð atvinnuleysi í desember s.l. var 7,3% sem svarar til þess að 11.760 einstaklingar hafi verið án atvinnu. Var það 412 fleiri en í nóvember en þá var skráð atvinnuleysi 7,1%.

9.1.2012

Breyting á lögum um viðbótarlífeyrissparnað - Vinnumálastofnun sér um breytingar

Alþingi samþykkti í árslok að breyta tekjuskattslögum á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekjuskattsstofni verði 2% í stað 4% næstu þrjú ár. Lagasetningin kallar ekki á að breyta þurfi núgildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldastofni. Vinnumálastofnun hefur því lækkað sparnað umsækjenda um atvinnuleysisbætur niður í 2% og þurfa þeir sem vilja greiða hærra iðgjald að óska sérstaklega eftir því með því að senda beiðni á greidslustofa@vmst.is.

22.9.2011

Svanni - lánatryggingasjóður kvenna tekur til starfa

Svanni- lánatryggingasjóður kvenna verður formlega settur á laggirnar á morgun föstudaginn 23. september. Svanni veitir lánatryggingar til kvenna með góðar viðskiptahugmyndir og er í samstarfi við Landsbankann um lánafyrirgreiðslu. Sjóðurinn veitir helmin ábyrgðar á móti banka.  

Eingöngu verkefni/fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um tryggingu og gerð er krafa um að í verkefninu felist nýsköpun/nýnæmi að einhverju marki. Einnig er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.  Hægt verður að sækja um lánatryggingar á heimasíðu  Svanna frá þeim degi og er umsóknarfrestur til og með 19. október í þessari fyrstu umsóknarlotu.  Nánari upplýsingar um verkefnið er hægt að nálgast hér.

20.9.2011

Breytingar á starfstengdum vinnumarkaðsúrræðum

Alþingi samþykkti í byrjun september 2011 breytingu á  lögum um  starfstengd vinnumarkaðsúrræði hjá Vinnumálastofnun. Frá og með 2. september  telja starfstengd vinnumarkaðsúræði eins og  starfsþjálfun, reynsluráðning, átaksverkefni og starfsorkan  ekki af bótarétti atvinnuleitanda.  Þannig að bótaréttur þessa fólks er í raun frystur á meðan á úrræðinu stendur. Allir þeir sem eru í vinnumarkaðsúrræðum eru því afskráðir og þurfa ekki að stimpla sig á meðan þeir eru í vinnu.

Ef starfsmaðurinn er atvinnulaus eftir að  samningstíma lýkur  er nauðsynlegt að koma með vottorð vinnuveitenda  og skrá sig aftur  hjá Vinnumálastofnun.

12.7.2011

Atvinnuleysið 6,7% í júní

Skráð atvinnuleysi í júní 2011 var 6,7% en var 7,4% í maí og 8,1% í apríl. Að meðaltali voru 11.704 manns atvinnulausir í júnímánuði og fækkaði atvinnulausum um 849 að meðaltali frá maí eða um 0,7 prósentustig.

7.7.2011

Nám er vinnandi vegur - ætlar þú að vera með?

Umsóknarfrestur  um þátttöku í átakinu Nám er vinnandi vegur rennur út 5. ágúst næstkomandi. Ef þú ert á atvinnuleysisskrá og uppfyllir skilyrði um þátttöku svo sem að hafa verið komin/n á atvinnuleysisskrá fyrir 1. mars 2011 og ert að fara í fullt nám í haust þá gætir þú átt rétt á að nýta þér þetta tækifæri.

Ef þú ert búin/n að sækja um nám í framhaldsskóla eða háskóla og ert komin/n með staðfestingu um skólavist þá skaltu snúa þér til ráðgjafa Vinnumálastofnunar fyrir 5. ágúst og hafa staðfestingu um skólavistina með þér.


7.6.2011

Atvinnuleysisbætur hækka

Atvinnuleysistryggingar hækka frá og með 1. júní 2011. Grunnatvinnuleysisbætur hækka um 12.000 kr. sem svarar til krónutöluhækkunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, þær  verða því kr. 161.523 á mánuði í stað kr. 149.523 áður. Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta hækkar einnig og verður að hámarki kr. 254.636  á mánuði.

 

Jafnframt verður greidd út eingreiðsla til þeirra atvinnuleitenda sem hafa verið tryggðir á tímabilinu 20. febrúar til 19. maí s.l. Þeir einstaklingar sem hafa verið að fullu tryggðir á tímabilinu munu fá greiddar kr. 50.000 í eingreiðslu. Atvinnuleitendur sem eru hlutfallslega tryggðir eða hafa ekki staðfest atvinnuleit á öllu tímabilinu 20. febrúar til 19. maí sl. fá greitt í hlutfallslega við bótarétt og lengd atvinnuleitar.  Eingreiðslan verður greidd 10. júní nk.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu