Fréttir Þjónustuskrifstofa vesturlands
4.4.2012
Styrkjum til atvinnumála kvenna úthlutað
Í gær var úthlutað styrkjum til atvinnumála kvenna og hlutu 36 verkefni styrk að upphæð alls kr. 26.010.000.
2.2.2012
Breytt verklag vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu
Eftirfarandi breytingar á verklagi hafa nú tekið gildi vegna verktakavinnu/reksturs á eigin kennitölu:
Ekki er heimilt að starfa við rekstur á eigin kennitölu / taka að sér verktakavinnu samhliða atvinnuleysisbótum.
13.1.2012
Atvinnuleysi 7,3% í desember
Skráð atvinnuleysi í desember s.l. var 7,3% sem svarar til þess að 11.760 einstaklingar hafi verið án atvinnu. Var það 412 fleiri en í nóvember en þá var skráð atvinnuleysi 7,1%.
9.1.2012
Breyting á lögum um viðbótarlífeyrissparnað - Vinnumálastofnun sér um breytingar
Alþingi samþykkti í árslok að breyta tekjuskattslögum á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekjuskattsstofni verði 2% í stað 4% næstu þrjú ár. Lagasetningin kallar ekki á að breyta þurfi núgildandi samningum um viðbótarlífeyrissparnað, heldur ber launagreiðanda að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2% af iðgjaldastofni. Vinnumálastofnun hefur því lækkað sparnað umsækjenda um atvinnuleysisbætur niður í 2% og þurfa þeir sem vilja greiða hærra iðgjald að óska sérstaklega eftir því með því að senda beiðni á greidslustofa@vmst.is.
20.9.2011
Breytingar á starfstengdum vinnumarkaðsúrræðum
Alþingi samþykkti í byrjun september 2011 breytingu á lögum um starfstengd vinnumarkaðsúrræði hjá Vinnumálastofnun. Frá og með 2. september telja starfstengd vinnumarkaðsúræði eins og starfsþjálfun, reynsluráðning, átaksverkefni og starfsorkan ekki af bótarétti atvinnuleitanda. Þannig að bótaréttur þessa fólks er í raun frystur á meðan á úrræðinu stendur. Allir þeir sem eru í vinnumarkaðsúrræðum eru því afskráðir og þurfa ekki að stimpla sig á meðan þeir eru í vinnu.
Ef starfsmaðurinn er atvinnulaus eftir að samningstíma lýkur er nauðsynlegt að koma með vottorð vinnuveitenda og skrá sig aftur hjá Vinnumálastofnun.
12.7.2011
Atvinnuleysið 6,7% í júní
Skráð atvinnuleysi í júní 2011 var 6,7% en var 7,4% í maí og 8,1% í apríl. Að meðaltali voru 11.704 manns atvinnulausir í júnímánuði og fækkaði atvinnulausum um 849 að meðaltali frá maí eða um 0,7 prósentustig.
7.7.2011
Nám er vinnandi vegur - ætlar þú að vera með?
Umsóknarfrestur um þátttöku í átakinu Nám er vinnandi vegur rennur út 5. ágúst næstkomandi. Ef þú ert á atvinnuleysisskrá og uppfyllir skilyrði um þátttöku svo sem að hafa verið komin/n á atvinnuleysisskrá fyrir 1. mars 2011 og ert að fara í fullt nám í haust þá gætir þú átt rétt á að nýta þér þetta tækifæri.
Ef þú ert búin/n að sækja um nám í framhaldsskóla eða háskóla og ert komin/n með staðfestingu um skólavist þá skaltu snúa þér til ráðgjafa Vinnumálastofnunar fyrir 5. ágúst og hafa staðfestingu um skólavistina með þér.
7.6.2011
Atvinnuleysisbætur hækka
Atvinnuleysistryggingar hækka frá og með 1. júní 2011. Grunnatvinnuleysisbætur hækka um 12.000 kr. sem svarar til krónutöluhækkunar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, þær verða því kr. 161.523 á mánuði í stað kr. 149.523 áður. Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta hækkar einnig og verður að hámarki kr. 254.636 á mánuði.
Jafnframt verður greidd út eingreiðsla til þeirra atvinnuleitenda sem hafa verið tryggðir á tímabilinu 20. febrúar til 19. maí s.l. Þeir einstaklingar sem hafa verið að fullu tryggðir á tímabilinu munu fá greiddar kr. 50.000 í eingreiðslu. Atvinnuleitendur sem eru hlutfallslega tryggðir eða hafa ekki staðfest atvinnuleit á öllu tímabilinu 20. febrúar til 19. maí sl. fá greitt í hlutfallslega við bótarétt og lengd atvinnuleitar. Eingreiðslan verður greidd 10. júní nk.
1.6.2011
Unnið að hækkun bóta
Í maí voru undirritaðir kjarasamningar á almennum markaði til þriggja ára. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna samninganna kom m.a. fram eftirfarandi;
Stjórnvöld munu endurskoða bætur almannatrygginga með hliðsjón af niðurstöðum kjarasamninga milli ASÍ og SA, þannig að lífeyrisþegar og atvinnulausir njóti hliðstæðra kjarabóta og samið verður um í kjarasamningum. Unnið er að nánari útfærslu þessarar yfirlýsingar í Velferðarráðuneytinu og Tryggingastofnun Ríkisins. Sameiginleg kynning velferðarráðherra, Vinnumálastofnunar og Tryggingastofnunar á áhrifum þessarar kjarabóta verður í upphafi næstu viku.
27.5.2011
Framhaldsskólarnir opnaðir - 1000 ný námstækifæri fyrir atvinnuleitendur
Öllum umsækjendum um nám í framhaldsskóla að 25 ára aldri sem uppfylla skilyrði verður tryggð skólavist í haust. Einnig verða sköpuð ný námstækifæri fyrir allt að 1.000 atvinnuleitendur haustið 2011. Ef þú hefur áhuga á að fara í framhaldsskóla þá er umsóknarfrestur til 31. maí nk. Hægt er að sækja um nám í gegnum: http://menntagatt.is/innritun/




English

