Námskeið á vorönn 2012
Á vorönn 2012 verður boðið upp á fjölbreytt úrval námskeiða fyrir atvinnuleitendur á Vesturlandi. Undir ,,tengdar síður" hér hægramegin á síðunni, er að finna yfirlit yfir helstu námskeiðin sem verða í boði og gefst atvinnuleitendum tækifæri til að senda tölvupóst og óska eftir því að verða bókaðir á ákveðin námskeið, sem viðkomandi hefur áhuga á að sækja. Hámarksfjöldi námskeiða sem hægt er að sækja um er þrjú námskeið. Reynt verður að koma til móts við óskir atvinnuleitenda um að fá pláss á a.m.k. einu af þeim námskeiðum sem óskað er eftir.
Óskum um skráningu skal komið á framfæri í tölvupósti. Netfangið er vesturland@vmst.is
Skráningarfrestur á námskeiðin er mismunandi eftir námskeiðum. Möguleiki er að skrá sig eftir að umsóknarfrestur er liðinn en ekki er tryggt að hægt sé að verða við öllum óskum um námskeiðspláss.
Minnum á að atvinnuleitendum stendur til boða að sækja um námsstyrk vegna styttra náms og námskeiða. Eyðublöð fást á þjónustuskrifstofu og hjá skráningaraðilum. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is Einnig er eyðublaðið á netinu. Slóðin er: http://www.vinnumalastofnun.is/files/Umsókn%20um%20námsstyrk%20maí%202010_1464625332.pdf
Fleiri námskeið eru fyrirhuguð og þau verða auglýst síðar.
Með góðum kveðjum,
Vinnumálastofnun Vesturlandi
Tengdar síður
Dale Carnegie - Akranes
Fjármálanámskeið: Borgarnes - Snæfellsnes
Fjármálanámskeið: Akranes - Borgarnes - Snæfellsnes
Frumkvöðlasmiðja á Akranesi
Íslenska fyrir útlendinga á Akranesi
Kvikmyndagerð og leiklist
Kvikmyndagerð og leiklist - Snæfellsnes
Kvíðastjórnun - Akranes
Kvíðastjórnun - Borgarnes
Kvíðastjórnun - Snæfellsnes
Landnemaskólinn á Akranesi
Rafsuðunámskeið á Akranesi
Tölvunámskeið - Akranesi- Borgarnes-Snæfellsnes
Verkfærakistan: Akranes-Borgarnes-Snæfellsnes
Vélgæsla - Akranes
Þjónustuliðar - Akranes
Þjónustuliðar - Borgarnes
Hafa samband
Vinnumálastofnun á Vesturlandi
Stillholt 18, 2.hæð
300 Akranes
Sími 430-5300
Bréfasími 430-5301
Netfang: vesturland@vmst.is
Starfsmenn
Opið alla virka daga frá klukkan 9:00 til 15:00,
nema föstudaga frá klukkan 9:00 til 12:00




English

