Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Fræðslustefna

Fræðslustefna Vinnumálastofnunar  

Vinnumálastofnun leggur áherslu á að starfsmenn eigi kost á fræðslu og þjálfun sem eykur hæfni og ánægju þeirra í starfi og gerir þá færari í því að takast á við ný og breytt verkefni.

Markmiðið með fræðslunni er tvíþætt. Annars vegar að stuðla að því að starfsmenn viðhaldi þekkingu sinni og hins vegar að gefa starfsmönnum tækifæri til að vaxa og þroskast í starfi.  Fræðslan þarf að byggja á þörfum stofnunarinnar en einnig skal taka tillit til þarfa og óska starfsmannsins.

Það er jafnt á ábyrgð starfsmanns sem yfirmanns að viðhalda og bæta fagþekkingu og aðra sérþekkingu sem nauðsynleg er starfsins vegna og til að þróast í starfi. 

Starfsmenn skulu sýna frumkvæði við að nýta sér fræðslu og möguleika til starfsþróunar.  Starfsþróun á sér stað þegar starfsmaður tekst á við starf sem gerir auknar kröfur til hans hvort sem það er ofar eða til hliðar við hann í skipuritinu.  Starfsþróun er á ábyrgð bæði starfsmannsins sjálfs og yfirmanns og felst m.a. í  starfsmannasamtölum, símenntun, tilflutningi í starfi og samvinnu.

Framkvæmd fræðslustefnu  

Greining fræðsluþarfar

Gerðar verði starfslýsingar sem lagðar verði til grundvallar greiningu og mati á fræðsluþörf sem  starfsmaður og yfirmaður vinna í sameiningu.  Forstjóri og forstöðumenn annist starfsmannasamtöl þar sem hagsmunir starfsmanna og Vinnumálastofnunar mætast og fram komi gagnkvæmar kröfur og væntingar. 

Umsjón

Sett verði á laggirnar fræðslunefnd og skipaður verði fræðslufulltrúi.  Fræðslunefnd hefur umsjón með því að fræðslustefnu Vinnumálastofnunar sé framfylgt og hefur heildaryfirsýn yfir skipulag fræðslunnar og að það sé samræmi við fjárhagsáætlun stofnunarinnar hverju sinni.   Að öðru leyti er skipulag fræðslunnar á ábyrgð forstöðumanna og forstjóra. 

Fræðslunefnd og fræðslufulltrúi hafa það verkefni að:

  • viðhalda og móta fræðslustefnu Vinnumálastofnunar
  • meta fræðsluþörf
  • meta gæði fræðslustarfsins
  • leggja mat á tölfræðilegar upplýsingar um fræðslu starfsmanna 
  • halda yfirlit um símenntun starfsmanna.

Fræðslunefnd hittist tvisvar á ári en á milli funda starfar  fræðslufulltrúi. Forstöðumenn bera ábyrgð á þjálfun og nauðsynlegri endurmenntun starfsmanna og skipuleggja hana í samráði við fræðslunefnd og fræðslufulltrúa.

Námskeið / Fræðsla

Til fræðslu geta talist t.d. námskeið, ráðstefnur, fræðslufundir eða annað sem að mati yfirmanns nýtist starfsmanni í starfi.  Bæði getur verið um að ræða fræðslu sem starfsmenn Vinnumálastofnunar standa fyrir og aðkeypt námskeið sem fara fram utan stofnunar.

Stefnt skal að því að hver starfsmaður fái tækifæri til að sækja a.m.k. eitt námskeið á ári. Frumkvæði að þátttöku í námskeiði getur komið bæði frá starfsmanni og yfirmanni.  Almennt skulu námskeið vera í tengslum við starf viðkomandi og miðast fjárhagsaðstoð til þátttöku við það.  Starfsmaður skal koma beiðni um námskeið til yfirmanns sem tekur afstöðu til þátttöku. 

Samþykkt á 58. stjórnarfundi Vinnumálastofnunar föstudaginn 26. janúar 2001. 


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu