Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Jafnréttisstefna

Jafnréttisstefna Vinnumálastofnunar

Vinnumálastofnun lýsir þeim vilja að vinna að jafnrétti og jafnri stöðu kvenna og karla.  Það er jafnframt vilji Vinnumálastofnunar að jafnréttisstefnan sé sýnileg og virk í framkvæmd.

Jafnréttisstefna Vinnumálastofnunar felur það í sér að virða beri ákvæði laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla,  við ráðningar í störf.  Hvorki skal mis­muna umsækjendum né starfsmönnum eftir kynferði né mismuna þeim á nokkurn hátt um vinnuaðstæður og vinnuskilyrði.

Jafnréttismál og leiðir til að vinna að jöfnun á  stöðu kynjanna skulu vera virkur þáttur í starfsmannastefnu Vinnumálastofnunar.  Leitast skal við að skapa starfsumhverfi sem  stuðlar að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna. 

Þess skal gætt að laus störf hjá Vinnumálastofnun séu auglýst í samræmi við reglur þar um og jafnréttis­sjónar­miða skal gætt þegar ráðið er í stöður.  Það kynið sem er í minnihluta í viðkomandi starfshópi skal að öðru jöfnu ganga fyrir við ráðningar í störf þegar umsækjendur eru jafnhæfir.

Við úthlutun verkefna skal þess gætt að bæði kynin eigi jafna möguleika innan stofn­unarinnar.  Þá skal þess gætt við tilfærslu í störfum og við uppsagnir að kynjum  sé ekki mismunað.  Gæta skal þess að konur og karlar njóti sambærilegra kjara og starfs­aðstæðna sbr. lög nr. 96/2000.  Það telst þó ekki mismunun að taka sérstakt tillit til kvenna  vegna þungunar og  barnsburðar.

Starfsmenn Vinnumálastofnunar skulu eiga kost á sveigjanlegum vinnutíma þar sem því verður við komið.

 

Samþykkt á 58. stjórnarfundi Vinnumálastofnunar föstudaginn 26. janúar 2001.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu