Starfsmannastefna
Starfsmannastefna Vinnumálastofnunar
Til að ná markmiðum sínum hefur Vinnumálastofnun sett sér eftirfarandi starfsmannastefnu:
Gott starfsfólk er grunnurinn að góðum árangri og því er lögð áhersla á:
- hæft starfsfólk sem hafi þekkingu á viðfangsefnum stofnunarinnar,
- áhugaverðan og aðlaðandi vinnustað,
- að starfsandi sé góður,
- að viðskiptavinum stofnunarinnar sé sýnt vinsamlegt viðmót og þjónustan sé til fyrirmyndar,
- að þess sé gætt að jafnræði og sanngirni gildi við afgreiðslu mála,
- að gætt sé fyllsta trúnaðar varðandi upplýsingar sem starfsfólk öðlast vegna starfsins,
- að verklagsreglur við meðhöndlun mála hjá stofnuninni séu skýrar og öllum ljósar,
- að starfsfólk Vinnumálastofnunar hafi þekkingu og nýjustu upplýsingar til að vinna eftir s.s. á stjórnsýslulögum og á öðrum þeim lögum og reglugerðum sem um starfsemina varða.
Til að framfylgja starfsmannastefnu sinni mun Vinnumálastofnun:
- setja sér fræðslustefnu ásamt árlegri þjálfunaráætlun til að hver og einn hafi nauðsynlega þekkingu til að takast á við þau verkefni sem honum eru falin,
- gæta þess að starfsmannasamtöl séu tekin a.m.k. árlega til að bæta samskipti á vinnustaðnum og gefa starfsfólki kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri,
- gefa út og viðhalda starfslýsingum eftir samræmdum reglum fyrir öll störf innan stofnunarinnar og svæðisvinnumiðlana.
Samþykkt á 58. stjórnarfundi Vinnumálastofnunar föstudaginn 26. janúar 2001.





English

