Eldra fólk á vinnumarkaði
Forsíða:
Vinnumálastofnun - Útgefið efni og talnaefni - Skýrslur og talnaefni - Eldra fólk á vinnumarkaðiÁrið 2004 skipaði félagsmálaráðherra nefnd sem var m.a. ætlað að kanna á hvern hátt unnt væri með lagasetningu að sporna við því að fólk væri látið gjalda aldurs á vinnustað, hvort heldur með uppsögnum eða mismunun í starfi. Í ljós kom að hópur þessi hefur lítið verið rannsakaður en ýmislegt lá fyrir af tölfræði sem nefndin vann úr og hafði hún síðan frumkvæði að því að gerð var könnun á viðhorfum til stöðu miðaldra fólks á vinnumarkaði sem IMG-Gallup annaðist. Nefndin lagði til að vinnu sinni lokinni að stjórnvöld hæfu fimm ára verkefni til þess að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Verkefninu yrði sérstaklega ætlað að skapa jákvæða umræðu um miðaldra og eldra fólk á vinnumarkaði, bæta ímynd þeirra og skapa farveg fyrir nauðsynlega viðhorfsbreytingu meðal aðila vinnumarkaðarins og í þjóðfélaginu í heild.
Skýrsla þessi er samantekt yfir starfsemi verkefnisstjórnarinnar frá 2005 til og með 2009.
Gefin út 17. nóvember 2009.
Yfirlit skýrslu:
- Samantekt og niðurstöður
- Inngangur
- Verkefnisstjórnin
- Gestir
- Fundir með aðilum
- Verkefni
- Ritgerðir/Rannsóknir
- Þáttaka í ráðstefnum
- Kynningarfundir
- Málþing á Akureyri
- Kynningarefni
- Vefsíða
- Lógó




English

