Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Erlendir ríkisborgarar - talnaefni og skýrslur

Forsíða:

Vinnumálastofnun - Útgefið efni og talnaefni - Skýrslur og talnaefni - Erlendir ríkisborgarar talnaefni og skýrslur

Nýjasta efni um málefni útlendinga á íslenskum vinnumarkaði

Áætlaður fjöldi erlendra ríkisborgara á vinnumarkaði og atvinnuleysi - excelskjal. Unnið í mars 2012

Skýrsla um þátttöku útlendinga í úrræðum á árinu 2011. Gefin út í sept. 2011

Skýrsla um erlenda ríkisborgara á vinnumarkaði, vinnuafl og atvinnuleysi.  Gefin út í júní 2011

Sjá ítarlegri lista í dálki til hægri.

 

Um heimild útlendinga til atvinnu hér á landi er fjalla í lögunum um atvinnuréttindi útendinga nr. 97/2002. Reglugerð um atvinnuréttindi útlendinga nr. 339/2005 var gefin út í lok marsmánaðar 2005 en reglugerðin hafði verið í smíðum allt árið 2004. Reglugerð með lögunum um atvinnuréttindi hafði ekki áður verið gefin út og framkvæmd laganna því fyrst og fremst byggst á verklagsreglum og mati á aðstæðum hverju sinni. Reglugerðin hefur því styrkt mjög alla stjórnsýslulega framkvæmd laganna og gert hana skilvirkari og gagnsæjari.

Vinnumálastofnun annast veitingu atvinnuleyfa í umboði félagsmálaráðherra. Atvinnuleyfi veitir rétt til að vinna hér á landi samkvæmt þeim lögum og reglum sem gilda á íslenskum vinnumarkaði. Atvinnurekandi sem óskar eftir tímabundnu atvinnuleyfi til að ráða útlending til starfa skal sækja um leyfið á þar til gerðum eyðublöðum Vinnumálastofnunar. Umsókn skulu fylgja öll þau gögn og vottorð sem Vinnumálastofnun gerir kröfu um til staðfestingar á að umsæ kjandi uppfylli þau skilyrði sem lög um atvinnuréttindi útlendinga og reglugerð þessi kveða á um.

Útlendingastofnun veitir umsókn um atvinnuleyfi viðtöku og áframsendir til Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun skal tilkynna ákvarðanir sínar um veitingu atvinnuleyfa og synjanir til Útlendingastofnunar.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu