Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Hópuppsagnir

Hópuppsagnir á árinu 2012

Engar hópuppsagnir bárust í desember 2012. Á árinu 2012 bárust alls 9 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp 293 manns. Flestar uppsagnirnar voru í samgöngum og flutningastarfsemi eða rúmur þriðjungur og að stærstum hluta voru þær á höfuðborgarsvæðinu, eða 84%.

Sjá nánar skýrslu um hópuppsagnir á árinu 2012.

Excelskjal með samantekt á hópuppsögnum 2008 til 2012.

Hópuppsagnir á árinu 2011

Engar hópuppsagnir bárust í desember 2011. Á árinu 2011 bárust alls 23 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp 752 manns. Flestar uppsagnirnar voru í byggingariðnaði eða um þriðjungur og tæp 70% uppsagnanna voru á höfuðborgarsvæðinu.

Sjá nánar skýrslu um hópuppsagnir á árinu 2011.

Hópuppsagnir í desember 2010 og á árinu 2010

Engar hópuppsagnir bárust í desember 2010. Á árinu 2010 hafa Vinnumálastofnun alls borist 29 tilkynningar um hópuppsagnir, þar sem sagt hefur verið upp samtals 742 manns. Flestir hafa misst vinnuna í byggingariðnaði í hópuppsögnum á árinu 2010, 401 eða um 54% allra hópuppsagna á árinu 2010. Næst flestir komu úr fiskvinnslu, 98 manns eða 13%. 65 manns hefur veriðsagt upp í hópuppsögnum í veitustarfsemi, eða 9%. Rúmlega 50 manns hefur verið sagt upp í fjármálastarfsemi eða 7% og sömu sögu er að segja úr upplýsingastarfsemi. Í iðnaði, verslun og veitingarekstri hafa 3%-4% af hópuppsögnum átt sér stað, í hverjum geira fyrir sig. Þær hópuppsagnir sem tilkynntar voru á árinu 2010 hafa flestar komið til framkvæmda nú þegar. Um 61% hópuppsagna á árinu 2010 eru á höfuðborgarsvæðinu, um 20% á Vestfjörðum og um 15% á Suðurlandi, um 3% á Suðurnesjum og um 1% dreifast á önnur svæði landsins.

Skýrsla gefin út 4. janúar 2011

 

Hópuppsagnir í desember 2009 og á árinu 2009

Vinnumálastofnun bárust 5 hópuppsagnir í desembermánuði 2009 þar sem sagt var upp 167 manns. Um er að ræða fyrirtæki í fiskvinnslu, iðnaði, verslun, flutningastarfsemi og upplýsinga‐ og útgáfustarfsemi. Ástæður uppsagnanna eru verkefnaskortur, hráefnisskortur, greiðslustöðvun og endurskipulagning vegna minnkandi verkefna og rekstrarerfiðleikar. Nokkrir hafa fengið ráðningu hjá öðrum fyrirtækjum sem tóku yfir verkefni og stefnt er að endurráðningum í stöku tilvikum.

Alls bárust Vinnumálastofnun tilkynningar um uppsagnir 1.789 manns á árinu 2009 í hópuppsögnum. Mestur var fjöldinn í mannvirkjagerð (42%) og svo fjármálastarfsemi (18%), en einnig í iðnaði (12%) og flutningastarfsemi (9%).

Skýrsla gefin út 5. janúar 2010

 

Hópuppsagnir í desember 2008 og á árinu 2008

Í desembermánuði bárust Vinnumálastofnun aðeins 4 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals 94 einstaklingum. Ein tilkynning var úr mannvirkjagerð, samtals 19% þeirra sem sagt var upp með þessum hætti, ein úr verslunargeiranum, samtals um 36% uppsagna, og tvær úr upplýsinga‐ og sérfræðistarfsemi, samtals um 45% þeirra sem sagt var upp.

Alls var tæplega 5.100 manns sagt upp á árinu 2008 með hópuppsögnum. Stærstur hluti uppsagnanna barst í lok október eða tæp 60%, 11% uppsagnanna barst í nóvembermánuði og færri í öðrum mánuðum.

Langflestar uppsagnirnar ná til starfsfólks sem búsett er á höfuðborgarsvæðinu. Upplýsingar um búsetu fólks koma þó ekki alltaf fram í tilkynningum um hópuppsagnir, en áætlað er að milli 80 og 85% hópuppsagna snúi að fólki á höfuðborgarsvæðinu, milli 5 og 10% af Suðurnesjum, tæp 5% af Vesturlandi en lægra hlutfall af öðrum landsvæðum.

Skýrsla gefin út 5. janúar 2009


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu