Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Mannaflaþörf

Þegar þenslan var hér sem mest og skortur var á starfsfólki í flestum greinum gaf Vinnumálastofnun út skýrslur þar sem reynt var að leggja mat á þörf fyrir vinnuafl eftir atvinnugreinum. Reynt var að leggja mat á þróunina á árunum á undan hvað varðar fjölda ráðninga, í hve miklum mæli Íslendingar fengust til ákveðinna starfa, hve mikil þörf er fyrir erlent vinnuafl og hve mikið þyrfti að gefa út af atvinnuleyfum.

Alveg síðan efnahagskerfið fór hér kollsteypu haustið 2008 hefur ríkt meira atvinnuleysi en við höfum átt að venjast. Dæmið snérist alveg við og í greinum þar sem áður hafði verið mikil mannaflaþörf var nú mikið atvinnuleysi. Ekki hefur verið talin mikil þörf á að gera mat á mannaflaþörf við það atvinnuleysisstig sem hér hefur ríkt á undanförnum árum, en síðasta skýrsla var fyrir árin 2007 og 2008.

 


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu