Úrræði
Fjallað er um úrræði í lögum um vinnumarkaðsaðgerðir nr. 55/2006. Markmið laga þessara er að veita einstaklingum viðeigandi aðstoð til að verða virkir þátttakendur á vinnumarkaði. Hér til hægri má nálgast gögn og frekari greiningu á úrræðum eftir aldri, búsetu, menntun o.fl.
| Tegundir úrræða | 2010 | 2009 | 2008 | 2007 | 2006 | 2005 |
| Grunnúrræði | 2.662 | 1.379 | 384 | 224 | 639 | 828 |
| Smiðjur og klúbbar | 1.279 | 481 | 48 | 20 | 23 | 8 |
| Tungum.-, tölvu-og skrifstofun. | 2.679 | 1.196 | 338 | 230 | 280 | 395 |
| Starfstengd námskeið | 1.243 | 668 | 113 | 78 | 92 | 128 |
| Námssamningar | 1.480 | 1.435 | 6 | 10 | 17 | 16 |
| Starfsþjálfun og reynsluráðning | 773 | 586 | 36 | 35 | 39 | 60 |
| Átaksverkefni | 638 | 514 | 33 | 19 | 51 | 96 |
| Námsstyrkir | 766 | 245 | 69 | 50 | 37 | 87 |
| Nýsköpunarverkefni | 431 |
151 |
||||
| Fræðslumiðstöð atvinnulífsins | 766 | 265 | ||||
| Samtals | 12.771 | 6.920 | 1.027 | 666 | 1.178 | 1.618 |
Vinnumálastofnun annast skipulag vinnumarkaðsúrræða sem skiptast í eftirfarandi flokka:
a. einstök námskeið, svo sem námskeið um gerð starfsleitaráætlunar eða sjálfstyrkingu og námskeið til að bæta tiltekna færni,
b. starfsúrræði, þ.e. starfskynning, starfsþjálfun og reynsluráðning,
c. ráðgjöf samhliða námskeiðsþátttöku og reynsluráðningu,
d. námsúrræði,
e. atvinnutengd endurhæfing, og
f. atvinnutengd endurhæfing einstakra hópa.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera þjónustusamninga um þátttöku atvinnuleitenda í einstökum vinnumarkaðsúrræðum sem aðrir þjónustuaðilar annast framkvæmd á.
Félagsmálaráðherra skal í reglugerð1) kveða nánar á um skipulag vinnumarkaðsúrræða að fenginni umsögn stjórnar Vinnumálastofnunar, svo sem hvers konar námskeið skuli haldin og hvaða nám teljist til vinnumarkaðsaðgerða.
1)Rg. 12/2009. Rg. 13/2009, sbr. 116/2010.
Ráðgjafar Vinnumálastofnunar skulu hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Vinnumálastofnun er heimilt að synja atvinnuleitanda um þjónustu samkvæmt lögum þessum þegar hann fylgir ekki eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, þar á meðal ítrekað hafnar þátttöku í einstökum vinnumarkaðsúrræðum, sinnir því ekki að leita sér aðstoðar hjá öðrum þjónustuaðilum, eða lætur hjá líða að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar um vinnufærni sína eða þær breytingar er kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti.
Heimilt er að binda þátttöku atvinnuleitanda í vinnumarkaðsaðgerðum við það skilyrði að hann leiti sér fyrst eða samhliða aðstoðar annarra þjónustuaðila.
Heimilt er að kæra ákvarðanir Vinnumálastofnunar sem teknar eru á grundvelli laga þessara til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.




English

