Vinnumálastofnun
Átaksverkefni - 9. gr.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan samning við fyrirtæki, stofnun eða frjáls félagasamtök um að ráða atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins til að sinna sérstökum tímabundnum átaksverkefnum sem eru umfram lögbundin og venjuleg umsvif sbr. 9. gr. reglugerðar 12/2009.
Verklag við ráðningar, útreikninga og samskipti við Vinnumálastofnun.
Hverjir geta sótt um / hvernig verkefni / ýmis skilyrði:
- Sveitarfélög, ríkisstofnanir, fyrirtæki og frjáls félagasamtök geta sótt um átaksverkefni
- Verkefnið skal vera afmarkað í tíma og rúmi.
- Verkefnið skal vera samfellt í tíma.
- Verkefninu þarf að vera lokið ári eftir að umsókn barst Vinnumálastofnun
-
Verklýsing sé vel unnin og kostnaðaráætlun skýr.
- Gæta skal samkeppnissjónarmiða eins og kostur er.
- Verkefnin þurfa að vera umfram lögbundin og venjuleg umsvif.
- Ráðning atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannahaldi.
- Æskilegt er að verkefni nýtist báðum kynjum.
- Sveitarfélög geta ekki sótt um átaksverkefni fyrir verkstjóra verkefna. Þeir verða að hafa fastráðningu hjá sveitarélögunum.
- Sveitarfélög hafa möguleika á að semja við fyrirtæki um aðstöðu eða tækjaleigu fyrir starfsfólk sem sveitarfélagið ræður í átaksverkefni. Mikilvægt er að gera nákvæma grein fyrir slíkum kostnaði í kostnaðaráætlun.
Umsóknarferli - gerð samnings - breytingar - samningslok:
-
Atvinnurekandi snýr sér til Ásdísar Guðmundsdóttur asdis.gudmundsdottir@vmst.is, ráðgjafa Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki , Faxatorgi 1, 550 Sauðárkróki, sem hefur yfirumsjón með verkefninu. Sérstakt umsóknareyðublað er til að sækja um átaksverkefni, útfyllanlegt í tölvu:
Umsókn um ráðningasamning vegna sérstaks átaksverkefnis á vegum fyrirtækis, stofnunar eða félagasamtaka - PDF
- Ráðgjafahópur metur og afgreiðir umsóknir á vikulegum fundum á mánudögum. Til að umsóknir verði teknar fyrir og afgreiddar þurfa þær að hafa borist fyrir hádegi á föstudögum.
- Þegar umsókn hefur verið samþykkt sendir ráðgjafi á Sauðárkróki upplýsingar þar um til umsækjanda.
- Á þjónustuskrifstofu er í samvinnu við umsækjanda leitað að hæfu fólki til þess að vinna í átaksverkefninu.
- Ráðgjafar Vinnumálastofnunar samþykki alla jafna einstaklinga í átaksverkefni. Leitast verði við að finna til að byrja með atvinnuleitendur með 100% bótarétt.
- Gerður er þríhliða samningur atvinnurekanda, atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar. Allir aðilar þurfa að undirrita hann.
- Samningarnir skulu gerðir til tímabils sem getur verið frá 1 til 6 mánuðir. Framlenging eftir 6 mánuði kemur ekki til greina nema viðkomandi hafi skerta starfsorku.
- Ef einstaklingi er skipt út á miðju tímabili, skal það gert í samráði við ráðgjafa.
- Greinargerð yfir framkvæmd verkefnis skal skila við lok þess til umsjónarmanns verkefnisins á Vinnumálastofnun.
Greiðslur
- Greiðsla til fyrirtækis tekur mið af bótarétti einstaklings (sjá dæmi um útreikning neðar).
- Reikningur skal vera númeraður og úr bókhaldi fyrirtækisins/stofnunarinnar og vera án VSK.
- Atvinnurekandi sendir reikninginn til:
Vinnumálastofnun
b.t. Gunnars Richardssonar
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu
150 Reykjavík
- Reikningarnir skulu vera í samræmi við efni samningsins.
- Á reikningnum skal koma fram:
A. Nafn atvinnuleitanda
B. Tímabil samnings (hvenær viðkomandi fer á samning og hvenær hættir)
C. Bótaréttur einstaklings
D. Kjarasamningur sá sem laun eru tekin eftir eða miðuð við
- Á reikningnum skal koma fram:
- Afrit launaseðils skal fylgja reikningi.
- Reikningar geta verið innheimtir mánaðarlega eða í lok verkefnisins.
Útreikningur - dæmi:
- Nota skal í útreikningi dagpeningaskrá VMST og margfalda með unnum virkum dögum. Við þá fjárhæð skal bæta 8% mótframlagi í lífeyrissjóð.
- Dæmi: Atvinnuleitandi er með 80% bótarétt og hefur unnið í 3 vikur sem eru 15 dagar (ekki er greitt fyrir aðra en virka daga).
15 unnir dagar x 5.520 (80% af fullum bótum sjá dagpeningaskrá) = 82.800.-
Ofan á þá upphæð leggst 8% lífeyrissjóðsframlag: 82.800 x 8% = 6.624 + 82.800.-
Reikningur er því samtals kr. 89.424.-
Eftirfylgni / um réttindi einstaklings
- Þegar samningstíma er lokið boðar ráðgjafi atvinnuleitanda á sinn fund og fer yfir árangur og reynslu af úrræðinu.
- Ef atvinnuleitandi er á tekjutengdum bótum þegar hann fer í sérstakt átaksverkefni frestast taka tekjutengingar þar til hann sækir aftur um atvinnuleysistryggingar.
- Einstaklingur í sérstöku verkefni eykur ekki rétt sinn til atvinnuleysisbóta á tímabilinu og samningstími telst hluti af bótatímabili.
9. gr. reglugerðarinnar:
Vinnumálastofnun, fyrirtækið, stofnunin eða frjálsu félagasamtökin og atvinnuleitandinn skulu undirrita samninginn um samþykki sitt. Með undirritun sinni samþykkir atvinnuleitandinn að Vinnumálastofnun greiði grunnatvinnuleysisbætur hans ásamt 8% mótframlagi í lífeyrissjóð beint til fyrirtækis, stofnunar eða frjálsra félagasamtaka sem greiða honum laun.
Í átaksverkefnasamningi skv. 1. mgr. skal kveðið á um að Vinnumálastofnun greiði til fyrirtækisins, stofnunarinnar eða frjálsu félagasamtakanna sem nemur fjárhæð þeirra grunnatvinnuleysisbóta sem atvinnuleitandi á rétt til úr Atvinnuleysistryggingasjóði auk 8% mótframlags í lífeyrissjóð en fyrirtækið, stofnunin eða frjálsu félagasamtökin skulu greiða atvinnuleitandanum laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings. Samningurinn skal vera gerður að hámarki til sex mánaða og óheimilt er að framlengja hann vegna sama atvinnuleitanda.
Skilyrði fyrir gerð átaksverkefnasamnings skv. 1. mgr. er að ráðning atvinnuleitandans feli í sér aukningu á starfsmannafjölda fyrirtækis, stofnunar eða frjálsu félagasamtakanna.
Fyrirtækið, stofnunin eða frjálsu félagasamtökin skulu tilnefna sérstakan tengilið við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skulu þeir vera í reglulegum samskiptum á gildistíma samningsins skv. 1. mgr. til að meta framvindu hans. Atvinnuleitandi skal jafnframt vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar en hann þarf ekki að vera í virkri atvinnuleit á sama tíma.
Sá tími sem þátttaka í átaksverkefni skv. 1. mgr. stendur yfir telst ekki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna.
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd
















