Vinnumálastofnun
Um atvinnutengda endurhæfingu sem atvinnuleitendur stendur til boða hjá Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan starfsendurhæfingarsamning við atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins enda um að ræða atvinnutengda endurhæfingu skv. e- eða f-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Með starfsendurhæfingarsamningnum skuldbindur atvinnuleitandi sig til að taka fullan þátt í starfsendurhæfingaráætlun sem hann hefur gert í samvinnu við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og aðra þjónustuaðila, þegar við á, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, og greiðir Vinnumálastofnun honum á sama tíma atvinnuleysisbætur sem hann á rétt til á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar. Skilyrði er að starfsendurhæfingaráætlunin komi til með að nýtast atvinnuleitandanum beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og sé til þess fallin að skila honum árangri við að finna starf.
Atvinnuleitandi skal eiga regluleg samskipti við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og aðra þjónustuaðila, þegar við á, meðan á gildistíma starfsendurhæfingarsamnings stendur en hann þarf ekki að vera í virkri atvinnuleit á sama tíma.
Gildistími hvers starfsendurhæfingarsamnings getur að hámarki verið þrettán vikur. Heimilt er að framlengja starfsendurhæfingarsamninginn einu sinni enda hafi starfsendurhæfingin borið viðunandi árangur að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
Starfsendurhæfingaráætlun er fylgiblað með samningi um atvinnutengda endurhæfingu
Sá tími sem starfsendurhæfing á grundvelli starfsendurhæfingarsamnings skv. 1. mgr. stendur yfir telst ekki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna.
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd
















