Vinnumálastofnun
Um námsúrræði sem atvinnuleitendum stendur til boða hjá Vinnumálastofnun - Verklagsreglur um nám samhliða atvinnuleysisbótum
Námsmenn eru ekki tryggðir samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 nema þegar námið er hluti vinnumarkaðsaðgerða skv. ákvörðun Vinnumálastofnunar.
Atvinnuleitandi skal ávallt hafa samráð við ráðgjafa Vinnumálastofnunar um val á starfstengdu námi eftir að færni hans og staða hefur verið metin. Gerður skal tvíhliða námssamningur um slíkt vinnumarkaðsúrræði.
Nám sem skilgreint er sem vinnumarkaðsúrræði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum er eftirfarandi:
- Nám sem haldið er samkvæmt námsskrá sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur viðurkennt.
- Nám sem haldið er á vegum fræðslustofnana atvinnulífsins
- Önnur námskeið en þau sem talin eru í lið 1 og 2, og haldin eru á vegum Símenntunarmiðstöðva
- Námskeið sem haldin eru á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
- Námskeið/nám sem haldið er á vegum endurmenntunarstofnana á háskólastigi sem ekki verður metið til eininga
- Nám á námsbrautum á framhaldsskólastigi sem leiða til framhaldsskólaprófs (ný námsleið), nám á verk- og starfsnámsbrautum á framhaldsskólastigi og frumgreinanám sem boðið er á forsendum fullorðinsfræðslu, þ.e. námið og uppbygging þess tekur mið af og er sniðið að þörfum fólks sem hefur verið þátttakandi á vinnumarkaði
- Námskeið á vegum endurhæfingarmiðstöðva
- Önnur námskeið sem eru líkleg til að styrkja fólk á vinnumarkaði að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar
Hér er hægt að sækja umsókn um námssamning og umsókn um námsstyrk:
Skilyrði fyrir námssamningi 1
Dæmi um nám sem stunda má á námssamningi 1:
|
||||||||||||||||||||
Skilyrði fyrir námssamningi 2
Dæmi um nám sem stunda má á námssamningi 2:
Sjálfstætt starfandi einstaklingur sem er samþykkur á bráðabirgðaákvæði 26. gr. laga nr. 54/2006 um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, á ekki rétt á námssamningi. Atvinnuleitandi sem fellur undir bráðabirgðaákvæði um minnkað starfshlutfall sbr. 25. gr. laga nr. 54/2006 á rétt á námssamningi.
|
||||||||||||||||||||
Undanþágur vegna háskólanámsHeimilt er að stund nám á háskólastigi sem nemur að hámarki 10 ECTS háskólaeiningum á námsönn hvort sem um er að ræða nám í háskólum eða á vegum endurmenntunarstofnana háskólastigsins. Atvinnuleitandi skal vera í virkri atvinnuleit samhliða námi og upplýsa Vinnumálastofnun um námið. Atvinnuleitandi má ekki vera að koma úr námi. Vinnumálastofnun getur við sérstakar aðstæður veitt heimild til náms sem nemur allt að 20 ECTS háskólaeiningum. Er þá gerður við atvinnuleitanda námssamningur 2. Skilyrði fyrir slíkri undanþágu:
ECTS einingar Skerðingarhlutfall
|
||||||||||||||||||||
Námsstyrkur VinnumálastofnunarLeiðbeiningar þessar eiga við um sjálfvalin námskeið - ekki þau sem eru skylduvirkni. Skylduvirkninámskeiðin eru greidd 100% af VMST. Vinnumálastofnun er heimilt að styrkja atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins vegna þátttöku hans í starfstengdu námi eða námskeiði sem viðurkennt er sem vinnumarkaðsúrræði. Styrkurinn er háður því skilyrði að ráðgjafi meti að hið starfstengda nám eða námskeið komi til með að nýtast atvinnuleitandanum beint við atvinnuleit og til þess fallið að skila honum árangri við að finna sér starf. Atvinnuleitandi getur valið að fara á námskeið á vegum VMST sem greitt er að fullu eða námskeið sem hann velur að eigin frumkvæði og fær þá námsstyrk til að greiða hluta af námskeiðsgjaldi. Ekki er mögulegt að nýta sér hvoru tveggja að fara á námskeið og sækja um námsstyrk á sömu önninni, velur á milli og getur einungis fengið eitt úrræði á önn. Bótaréttur viðkomandi skiptir ekki máli og undir þessar reglur falla einnig sjálftætt starfandi á eigin kt. (eftir 3 mánuði). Atvinnuleitendur í lækkuðu starfshlutfalli hafa ekki þennan rétt ef þeir eru komnir inn vegna samdráttar (er í 50% - 80% starfi) enda er litið á lækkað starfshlutfall sem vinnumarkaðsúrræði. Styrkurinn skal að hámarki nema 50% af heildar námskeiðsgjaldi en þó aldrei hærri en 70.000 kr. á önn eða á hverjum þrettán vikum. Þetta á við þegar atvinnuleitandi hefur ekki nýtt námskeið eða önnur úrræði á vegum VMST á þessari sömu önn sem um ræðir. Styrkurinn reiknast ekki í hlutfalli af bótarétti. Einstaklingur sem er tryggður í atvinnuleysistryggingakerfinu á rétt á vinnumarkaðsúrræðum óháð bótarétti. Undantekning er eins og áður segir það fólk sem fellur undir minnkað starfshlutfall vegna samdráttar í rekstri atvinnurekanda. Atvinnuleitanda skal bent á rétt sinn hjá stéttarfélagi en ekki er gerð krafa um að hann sé nýttur. *Í einstaka tilvikum getur Vinnumálstofnun greitt hærri styrk en sem nemur 50% s.s. ef Vinnumálastofnun getur ekki boðið upp á námskeið á eigin vegum vegna fámennis á dreifbýlum svæðum og kaupir því stakt námskeiðspláss fyrir atvinnuleitanda hjá námskeiðshaldara. Umsóknum berist náms- og starfsráðgjöfum VMST. Meðfylgjandi gögn fylgi umsókn:
fræðslustofnunar).
Umsækjandi þarf að hafa verið á atvinnuleysisbótum í a.m.k. einn mánuð áður en hann ávinnur sér réttindi til námsstyrkjar. Umsókn um námsstyrk þarf að liggja fyrir a.m.k. 5 virkum dögum fyrir upphaf námskeiðs til að unnt sé að afgreiða umsóknina áður en námskeiðið hefst. Greiðslur Námsskeiðshaldari sendir reikning til þjónustuskrifstofu VMST fyrir þeirri upphæð sem VMST á að borga. Með skulu fylgja upplýsingar um heildarkostnað námskeiðs frá námskeiðshaldara s.s. upplýsingar um námskeið og námskeiðskostnað eða afrit af heildarreikningi vegna námskeiðs eða þeirrar greiðslu sem kemur í hluta atvinnuleitanda sjálfs að greiða. Umsóknareyðublað um námsstyrk má nálgast hér: pdf-form word-form
|
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd
















