Vinnumálastofnun
Um reynsluráðningu er fjallað í 4. grein reglugerðar 12/2009.
Verklag við ráðningar, útreikninga og samskipti við Vinnumálastofnun.
Umsóknarferli / gerð samnings:
-
Atvinnurekandi fyllir út verkbeiðni á heimasíðu þjónustuskrifstofu og hefur því næst samband við starfsfólk þjónustuskrifstofunnar um framhaldið.
-
Ráðgjafar VMST finna alla jafna einstaklinga í verkefnin. Leitast verði við að miðla til að byrja með atvinnuleitendum með 100% bótarétt.
-
Gerður er þríhliða samningur atvinnurekanda, atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar. Allir aðilar þurfa að undirrita hann. Hér eru eyðublöð vegna reynsluráðningar í pdf eða word, útfyllanlegir í tölvu:
UMSÓKN UM REYNSLURÁÐNINGU - Pdf UMSÓKN UM REYNSLURÁÐNINGU - Word-dot
-
Samningarnir skulu gerðir til allt að 6 mánaða. Framlenging eftir 6 mánuði kemur ekki til greina nema viðkomandi hafi skerta starfsorku.
-
Úrræðið skal vera samfellt í tíma.
Skilyrði fyrir ráðningu einstaklings í reynsluráðningu
-
Viðkomandi einstaklingur eigi bótarétt og hafi verið á atvinnuleysisbótum í a.m.k. 1 mánuð.
-
Fyrirtækið þarf að vera skráð, sé í öruggum rekstri, þ.e. ekki í rekstrarörðugleikum eða á leið í gjaldþrot.
-
Fyrirtækið hafi eins árs rekstur eða meira að baki (sjá kennitölu).
-
Ráðning atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannahaldi fyrirtækis.
-
Starfsmenn í úrræðinu skulu að jafnaði ekki vera fleiri en 4 hjá sama fyrirtæki eða hlutfallslega fleiri en 25% af heildarstarfsmannafjölda.
-
Að jafnaði verði ekki gerðir samningar við þau fyrirtæki sem hafa nýlega verið með 6 mánaða samning við annan einstakling.
Greiðslur
-
Greiðsla til fyrirtækis tekur mið af bótarétti einstaklings (sjá dæmi um útreikning neðar).
-
Reikningur skal vera númeraður og úr bókhaldi fyrirtækisins/stofnunarinnar og vera án VSK.Atvinnurekandi sendir reikninginn til:
Vinnumálastofnun
b.t. Gunnars Richardssonar
Hafnarhúsi Tryggvagötu
150 Reykjavík
Gunnar yfirfer reikningana. Reikningarnir skulu vera í samræmi við efni samningsins.
-
Afrit launaseðils skal fylgja reikningi.
-
Á reikningnum skal koma fram:
A. Nafn atvinnuleitanda
B. Tímabil samnings (hvenær viðkomandi fer á samning og hvenær hættir)
C. Bótaréttur einstaklings
D. Kjarasamningur sá sem laun eru tekin eftir eða miðuð við
-
Þegar reikningur hefur verið yfirfarinn, er hann sendur til fjármálastjóra VMST.
Útreikningur - dæmi:
-
Nota skal í útreikningi dagpeningaskrá VMST og margfalda með unnum virkum dögum. Við þá fjárhæð skal bæta 8% mótframlagi í lífeyrissjóð.
- Dæmi: Atvinnuleitandi er með 80% bótarétt og hefur unnið í 3 vikur sem eru 15 dagar (ekki er greitt fyrir aðra en virka daga):
15 unnir dagar x 5.520 (80% af fullum bótum sem eru 6.900 sjá dagpeningaskrá) = 82.800.-
Ofan á þá upphæð leggst 8% lífeyrissjóðsframlag: 82.800 x 8% = 6.624 + 82.800.-
Reikningur er því samtals kr. 89.424.-
Eftirfylgni / um réttindi einstaklings
-
Þegar samningstíma er lokið boðar ráðgjafi atvinnuleitanda á sinn fund og fer yfir árangur og reynslu af úrræðinu.
-
Ef atvinnuleitandi er á tekjutengdum bótum þegar hann fer í starfsþjálfun frestast taka tekjutengingar þar til hann sækir aftur um atvinnuleysistryggingar.
-
Einstaklingur í reynsluráðningu eykur ekki rétt sinn til atvinnuleysisbóta á tímabilinu og samningstími telst hluti af bótatímabili.
4. gr. reglugerðarinnar:
Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við fyrirtæki eða stofnun um reynsluráðningu atvinnuleitanda sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins enda um að ræða vinnumarkaðsúrræði skv. b-lið 1. mgr. 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Vinnumálastofnun, fyrirtækið eða stofnunin og atvinnuleitandinn skulu undirrita samninginn um samþykki sitt. Með undirritun sinni samþykkir atvinnuleitandinn að Vinnumálastofnun greiði grunnatvinnuleysisbætur hans ásamt 8% mótframlagi í lífeyrissjóð beint til fyrirtækisins eða stofnunarinnar sem greiðir honum laun. Markmið samningsins er að atvinnuleitandinn fái tækifæri til að öðlast reynslu í þeirri starfsgrein sem fyrirtækið eða stofnunin starfar innan og að veita fyrirtækinu eða stofnuninni tækifæri til að ráða atvinnuleitandann til reynslu í þeim tilgangi að stuðla að framtíðarráðningu hans innan fyrirtækisins eða stofnunarinnar.
Í reynsluráðningarsamningi skv. 1. mgr. skal kveðið á um að Vinnumálastofnun greiði til fyrirtækisins eða stofnunarinnar sem nemur fjárhæð þeirra grunnatvinnuleysisbóta sem atvinnuleitandi á rétt til úr Atvinnuleysistryggingasjóði auk 8% mótframlags í lífeyrissjóð en fyrirtækið eða stofnunin skal greiða atvinnuleitandanum laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings. Samningurinn skal vera gerður að hámarki til sex mánaða og óheimilt er að framlengja hann vegna sama atvinnuleitanda nema atvinnuleitandi hafi skerta starfsorku og nauðsynlegt sé að veita honum lengri tíma til hæfingar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
Skilyrði fyrir gerð reynsluráðningarsamnings skv. 1. mgr. er að ráðning atvinnuleitandans feli í sér aukningu á starfsmannafjölda fyrirtækis eða stofnunar og að fyrirtækið eða stofnunin skuldbindi sig til að ráða atvinnuleitandann með hefðbundnum hætti til a.m.k. jafn langs tíma og sem nemur gildistíma samningsins eftir að gildistíma hans lýkur.
Fyrirtækið eða stofnunin skal tilnefna sérstakan tengilið við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skulu þeir vera í reglulegum samskiptum á gildistíma samningsins skv. 1. mgr. til að meta framvindu hans. Atvinnuleitandi skal jafnframt vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar en hann þarf ekki að vera í virkri atvinnuleit á sama tíma.
Sá tími sem reynsluráðning atvinnuleitanda skv. 1. mgr. stendur yfir telst ekki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna.
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd
















