Vinnumálastofnun
Skv. 10. gr. reglugerðar 12/2009 er Vinnumálastofnun heimilt að gera samning við frjáls félagasamtök um að atvinnuleitandi taki þátt í sjálfboðaliðastarfi.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan samning við frjáls félagasamtök um að atvinnuleitandi taki þátt í sjálfboðaliðastarfi enda um að ræða vinnumarkaðsúrræði skv. b-lið 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Vinnumálastofnun, frjálsu félagasamtökin og atvinnuleitandi skulu undirrita samninginn um samþykki sitt. Með undirritun sinni samþykkir atvinnuleitandinn að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi sem hann hefur valið sér en samhliða starfi sínu sem sjálfboðaliði skal hann vera í virkri atvinnuleit skv. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun greiðir atvinnuleitanda á sama tíma atvinnuleysisbætur sem hann á rétt til á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar og skulu frjálsu félagasamtökin sjá til þess að atvinnuleitandi sé slysatryggður við sjálfboðaliðastarfið.
Frjálsu félagasamtökin sem gera sjálfboðaliðastarfssamning skv. 1. mgr. skulu tilnefna sérstakan tengilið við ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skulu þeir vera í reglulegum samskiptum á gildistíma samningsins til að meta framvindu hans. Atvinnuleitandi skal jafnframt vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
Sá tími sem þátttaka í sjálfboðaliðastarfi skv. 1. mgr. stendur yfir telst ekki til ávinnslutímabils skv. 15. eða 19. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. einnig e-lið 1. mgr. 13. gr. og e-lið 1. mgr. 18. gr. laganna.
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd
















