Vinnumálastofnun
Þróun eigin viðskiptahugmyndar
Umsóknarferli / gerð samnings
Skilyrði
- Umsækjandi eigi bótarétt og bótaréttur sé ljós
- Viðskiptahugmyndin verður að teljast líkleg til að skapa atvinnuleitandanum framtíðarstarf
- Umsækjandinn þarf að hafa kynnt sér stofnun og rekstur smáfyrirtækja eða geti sýnt fram á þekkingu á því sviði
- Úrræðið skal vera samfellt í tíma
- Atvinnuleitandi getur opnað virðisaukanúmer á meðan á úrræðinu stendur en fellur þá undir breytingu á bráðabirgðaákvæði IV við lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sem felur í sér að aðlögunartími sjálfstætt starfandi einstaklinga til að hafa opinn rekstur ásamt því að þiggja atvinnuleysisbætur er þrír mánuðir
- Sé atvinnuleitandi með opið virðisaukanúmer þegar hann fær samþykkta ÞEV fellur hann undir ofangreint skilyrði
Framkvæmd
- Atvinnuleitandi fyllir út umsóknareyðublað
- Atvinnuleitandi skilar umsókn á þjónustuskrifstofu. Ef ráðgjafi VMST álítur þessa vinnumarkaðsaðgerð henta atvinnuleitanda sendir hann umsóknina í mat eftir að hafa yfirfarið umsókn og fylgibréf sem óskað er með umsókn
- Matshópur yfirfer umsóknir hálfsmánaðarlega og hefur til hliðsjónar matsreglur (nýnæmi, samkeppni, möguleg framþróun, lýsing á viðskiptahugmynd, fjármögnun og kostnaðaráætlun og verkáætlun)
- Umsækjandi fær svar þegar umsókn hefur verið metin. Ef hún er samþykkt hefur umsækjandi samband við þjónustuskrifstofu og fer yfir næstu skref
- Starfsmaður þjónustuskrifstofu gerir tvíhliða samning við umsækjanda sem báðir undirrita
- Úrræðið er veitt til þriggja eða sex mánaða
Framvinda - framlenging - eftirfylgni
- Framvinduskýrslu er skilað eftir 3 mánuði ef samningur er gerður til 6 mánaða. Ef samningur er gerður til 3ja mánaða er einungis lokaskýrslu skilað.
- Lokaskýrslu er alltaf skilað í lok verkefnis. Nálgast má eyðublöðin hér. Mikilvægt er að skila skýrslum á réttum tíma svo greiðslur atvinnuleysisbóta dragist ekki.
- Sá tími sem starf á grundvelli samnings um þróun eigin viðskiptahugmyndar stendur yfir dregst frá bótatímabili atvinnuleitanda.
Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan samning við atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins um að hann vinni í allt að sex mánuði að þróun eigin viðskiptahugmyndar með það að markmiði að koma hugmyndinni í framkvæmd.
|
Hér er hægt að sækja Umsókn um samning á þróun eigin viðskiptahugmyndar |
|
Hér er hægt að sækja Fylgiblað með samningi |
|
Hér er hægt að sækja framvinduskýrslu: |
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd
















