Aukinn réttur til fæðingarorlofs

Við ákveðnar aðstæður skapast lengri réttur til fæðingarorlofs eða heimildir til að lengja eða framlengja rétt foreldra til fæðingarorlofs.


Öryggi og heilbrigði á vinnustöðum

Ef öryggi og heilbrigði þungaðrar konu sem er starfsmaður er í hættu samkvæmt sérstöku mati og ekki er unnt að tryggja öryggi hennar þannig að veita þarf henni leyfi frá störfum kann hún að eiga rétt á lengra fæðingarorlofi þann tíma.

Vinnuveitandi þarf áður að hafa reynt að breyta tímabundið vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma starfsmannsins eða fela honum önnur verkefni. Sé það ekki unnt eða verið fullreynt getur starfsmaðurinn sótt um lengra fæðingarorlof.

Gögn sem þurfa að berast auk hefðbundinna umsóknargagna:

  1. Vottorð og rökstuðningur vinnuveitanda um að veita þungaðri konu leyfi frá störfum vegna öryggi og heilbrigði á vinnustöðum.
  2. Vottorð um væntanlegan fæðingardag.

Veikindi móður á meðgöngu

Sé þungaðri konu nauðsynlegt af heilsufarsástæðum sem tengjast meðgöngunni að leggja niður launuð störf eða hætta þátttöku á vinnumarkaði samkvæmt rétti til atvinnuleysisbóta meira en mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag getur hún átt rétt á lengra fæðingarorlofi þann tíma en þó aldrei lengur en 2 mánuði.

Með heilsufarsástæðum er átt við:

  1. Sjúkdóma sem koma upp vegna meðgöngu og valda óvinnufærni.
  2. Sjúkdóma, tímabundna eða langvarandi, sem versna á meðgöngu og valda óvinnufærni.
  3. Fyrirbyggjandi meðferð til að koma í veg fyrir fyrirburafæðingu eða til að vernda heilsu fósturs, enda valdi meðferðin óvinnufærni.

Gögn sem þurfa að berast auk hefðbundinna umsóknargagna:

  1. Læknisvottorð vegna veikinda móður.

Starfslokavottorð vegna veikinda móður á meðgöngu

Veikindi móður í tengslum við fæðingu

Komi upp alvarleg veikindi hjá móður í tengslum við fæðinguna sem rekja má til fæðingarinnar sjálfrar og hún hefur af þeim völdum verið ófær um að annast um barn sitt í fæðingarorlofinu að mati sérfræðilæknis er heimilt að framlengja fæðingarorlof hennar um allt að 2 mánuði.

Gögn sem þurfa að berast:

  1. Læknisvottorð vegna veikinda móður.

Veikindi barns eða fötlun

Heimilt er að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarorlofs um allt að 7 mánuði ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns eða alvarlega fötlun sem krefst nánari umönnunar foreldris.

Gögn sem þurfa að berast:

  1. Vottorð vegna alvarlegs sjúkleika og/eða fötlunar barns.

 

 


Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni