Hópuppsagnir í apríl
Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í apríl þar sem 55 starfsmönnum var sagt upp störfum í fjármála – og vátryggingastarfsemi. Uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu ágúst til nóvember 2021.
Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í apríl þar sem 55 starfsmönnum var sagt upp störfum í fjármála – og vátryggingastarfsemi. Uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu ágúst til nóvember 2021.
Stjórnvöld ætla að verja um 2,4 milljörðum króna í í átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn í sumar. Stefnt er að því að til verði um 2.500 störf fyrir námsmenn 18 ára og eldri.
Almennt atvinnuleysi var 11,0% í mars og minnkaði úr 11,4% í febrúar. Atvinnuleysið var 11,6% í janúar, 10,7% í desember og 10,6% í nóvember.
Engar tilkynningar um hópuppsagnir í mars höfðu borist Vinnumálastofnun síðla miðvikudagsins 31.mars.
Í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar og yfirlýsingar Eflingar í dag um afgreiðslu Ábyrgðasjóðs launa á kröfum starfsmanna í þrotabú Menn í vinnu, vill Vinnumálastofnun koma eftirfarandi á framfæri:
Almennt atvinnuleysi var 11,4% í febrúar og minnkaði úr 11,6% í janúar. Atvinnuleysið var 10,7% í desember, 10,6% í nóvember og 9,9% í október. Vinnumálastofnun spáir því að almennt atvinnuleysi minnki í mars og verði á bilinu 10,9% til 11,3%. Sjá nánar:
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í febrúar þar sem 287 starfsmönnum var sagt upp störfum í verslun og flutningum flestum á höfuðborgarsvæðinu 259 og 28 á Norðurlandi eystra. Uppsagnirnar taka flestar gildi í júní.
Almennt atvinnuleysi var 11,6% í janúar og jókst úr 10,7% í desember. Vegna Covid-19 faraldursins er gert ráð fyrir að talsverð fækkun verði á vinnumarkaði á fyrstu mánuðum ársins 2021 frá árinu 2020. Vinnuaflstalan að baki atvinnuleysisútreikningum lækkar því nokkuð frá því í desember, sem skýrir allnokkra hækkun atvinnuleysis þrátt fyrir að atvinnulausum fjölgi ekki að ráði. Meðalfjölgun atvinnulausra var þannig 527 í janúar. Sjá nánar:
Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar munu opna um land á næstu dögum en panta þarf tíma áður en mætt er.
Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í janúar.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna endurgreiðslna til íþróttafélaga á vef Vinnumálastofnunar en stofnuninni var falið af hálfu félags- og barnamálaráðherra að sjá um framkvæmd laga nr. 155/2020 um greiðslur vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Vinnumálastofnun tekur þátt í Nýsköpunardeginum sem fer fram 21. nóvember. Það eru margir spennandi fyrirlestrar eða Nýsköpunarmolar, þar sem opinberir vinnustaðir segja frá spennandi verkefnum sem hrint hefur verið í framkvæmd á liðnu ári. Vinnumálastofnun ætlar að segja frá Innleiðingu á snjalmenninu Vinný.
Þú hefur skoðað 132 fréttir af 221