Nám hjá Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi

Atvinnuleitendum með staðfestan rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta stendur til boða að sækja um námsstyrk vegna þessa náms. Nauðsynlegt er að senda inn umsókn um námsstyrk a.m.k. 5 dögum áður en námskeiðið hefst svo tími gefist til að svara umsóknum tímanlega.

Nánari upplýsingar varðandi þessi námskeið gefur Símenntunarmiðstöðin í síma 437-2390 og tölvupósti á netfangið simenntun@simenntun.is


Raunfærnimat

Raunfærnimat er staðfesting og mat á raunverulegri færni einstaklings án tillits til þess hvernig eða hvar hennar hefur verið aflað. Raunfærni er samanlögð færni sem einstaklingur hefur öðlast t.d. með starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi. Markmiðið er að sá sem fer í raunfærnimat fái viðurkennt það sem hann kann í raun og veru og þurfi ekki að sækja nám í efni sem hann þegar kann.

Nánari upplýsingar: https://simenntun.is/

Íslenskunámskeið vor 2023

Nú í janúar fer Símenntun á Vesturlandi af stað með fjögur íslenskunámskeið víðsvegar um landshlutann.

Smelltu hér til að nálgast upplýsingar um námskeiðin


Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni